Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2007, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2007, Blaðsíða 22
Í langan tíma hef ég haft áhyggj-ur af eftirlitslausu fólki á öllum aldri. Hvernig má það vera að þjóð nái að þroskast og eflast þegar ekkert eftirlit er með fólki? Það þarf kjark til að viðurkenna brotalamirn- ar í samfélaginu okkar. Það hafa Akureyringar gert og það með þeim hætti að ekki er unnt að fara á mis við kjark og áræðni þeirra Akureyringa. Hér er ekki verið að fjalla um takmark- anir að bæjarfélagi þeirra norð- anmanna. Ó, nei. Nema kannski aðeins. Fréttunum af Akureyri fylgdu myndir og á einni þeirra sást mikið og stórt skilti þar sem meðal annars stóð það sem allir eiga að vita og þurfa að vita. Aðgangur var bannaður fyrir fólk á aldrinum átján til tuttugu og þriggja ára, nema í fylgd með forráða- mönnum, nema í fylgd mömmu eða pabba. Það er málið. Loksins sagði þetta einhver. Orð í tíma töluð. Hvaða vit er það að tuttugu og þriggja ára fólk fari um landið, fari hreinlega um allt án þess að vera í fylgd með fullorðn- um? Okkar blessaði dómsmálaráð- herra gekk ekki aðeins lengra þegar hann greip til sinna ráða. Hann vissulega og blessunarlega bann- aði tuttugu og fjögurra ára að gift- ast, það er útlendingum. Það var tímabært hjá ráð-herranum, en Akureyr-ingar hefðu átt að taka ráðherrann sér til fyrirmyndar og banna tuttugu og fjögurra ára að koma til Akureyrar, nema þá í fylgd mömmu og pabba eða ömmu og afa. Nú er búið að gefa tóninn og það er vonandi að fleiri taki upp þráðinn og banni tuttugu og þriggja ára að fara á bari og aðrar skemmt- anir nema mamma komi með. Þá yrði friðsælla og ekki væri þörf fyr- ir allar þessar löggur, allar þessar myndavélar og fleiri kæmu heilir heim. Umfram allt, borðaði þetta unga fólk hollari mat. Það er víst og ekki er vanþörf á. Hér eftir er best að taka öll-um tuttugu og þriggja ára og yngri með varúð, nema þeir séu í fylgd með mömmu eða pabba. Akureyringum verður seint fullþakkað það áræði sem þeir hafa sýnt og að hafa opnað augu þjóð- arinnar fyrir þessari skæru lausn á vanda þjóðarinnar. Það er ekki bjóðandi að tuttugu og þriggja ára fólk fari um land og bæi án þess að forráðamennirnir séu með. Nú er búið að stoppa þessa vitleysu og hún skal aldrei í gang á ný. Svo væri mörgu foreldrinu rórra ef sama gilti um giftingar Íslend- inga og dóms- málaráðherrann gerði varðandi gifting- ar útlendinga. Forráðamennirnir verða að koma að ráðahag tuttugu og þriggja ára. Treyst er á að Akur- eyringar bjargi því. miðvikudagur 8. ágúst 200722 Umræða DV Útgáfufélag: Dagblaðið-Vísir útgáfufélag ehf. Stjórnarformaður: Hreinn loftsson framkVæmDaStjóri: Hjálmar Blöndal ritStjóri og áByrgðarmaður: Sigurjón m. Egilsson fulltrÚi ritStjóra: janus Sigurjónsson fréttaStjóri: Brynjólfur Þór guðmundsson aðStoðarritjóri: Sigríður Dögg auðunsdóttir auglýSingaStjóri: auður Húnfjörð Umbrot: dv. Prentvinnsla: Prentsmiðja morgunblaðsins. Dreifing: árvakur. dv áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. aðalnúmer 512 7000, ritstjórn 512 7010, áskriftarsími 512 7005, auglýsingar 512 70 40. AkureyringAr og forráðAmennirnir Daggeisli Sigurjón M. EgilSSon ritStjóri Skrifar. ...og bera saman árangur í stangarstökki og hástökki. Dagblöðin, lesin og ólesin leiðari Capacent hefur birt niðurstöður úr lestrarkönnun sem gerð var í vor. Þar kemur fram að lestur DV hefur auk-ist um fjörutíu prósent milli kannana. Það er ágæt-ur árangur. Lestur DV hefur aukist og er í dag meiri en könnunin segir til um. Lestur Morgunblaðsins eykt lítillega en lestur dreifiblaðanna, Blaðsins og Fréttablaðsins, minnkar nokkuð. Það er ýmislegt við könnun Capacent að athuga. Til að mynda er lestur helgarblaðs DV með mjög sér- stökum hætti. Safnað er upplýsingum um lestur þess á föstudegi og laugardegi og þegar lestr- artölurnar eru lagðar saman er deilt í með tveimur og þannig fengin tala sem er kynnt sem lestur helgarblaðsins. Þetta er vitavonlaus aðferð sem segir engum neitt. Lífdagar helg- arblaðsins eru þrír dagar, ekki tveir hálfir dag- ar. Ástæða þess að túlkun Capacent er með þess- um hætti er einföld, mælingin er sniðin að vilja og þörfum dreifiblaðanna. Enginn greinarmunur er gerður á hvort dreifiblöð- in eru lesin eða þeim flett, og engin lýsing er til um hvað er að fletta blaði. Þannig svarar sá rétt, að hann hafi lesið eða flett dagblaði, ef hann tekur blaðið úr póstkassa eða upp af forstofugólfinu og skoðar forsíðuna um leið og hann hendir blaðinu. Það telst til jafns við lestur blaðsins, samkvæmt rann- sóknum Capacent. Þetta er villandi og gefur ekki rétta mynd af notkun dagblaða. Ekki verður séð að útgefendur þannig blaða séu nokkru nær, þeir vita ekki hver lesturinn er, og það sem meira er um vert er að með aðferðinni er verið að villa um fyrir auglýsendum. Það hefur tekist ótrúlega vel. Áskriftarblöðin DV og Morgunblaðið auka lestur- inn milli kannana. Það er engum til góðs að bera saman lestur þeirra blaða og dreifiblað- anna. Notkun blaðanna er það ólík og það lætur nærri að álíka mörgum Fréttablöð- um sé hent ólesnum hvern dag og nemur upplagi DV. Enn fleiri eintökum af Blaðinu er hent ólesnum, hvern einasta útgáfudag. Sam- anlagt er hent jafnmörgum eintökum ólesnum af Fréttablaðinu og Blaðinu og nemur upplagi Morg- unblaðsins. Einn daginn munu útgefendurnir kalla eftir raunverulegum lestrartölum og sníða sér stakk eftir vexti, það er hætta að dreifa tugum þúsunda blaða á hverjum degi, blaða sem enginn les. Og að bera saman lestur áskriftarblaða og dreifiblaða er ámóta og bera saman ár- angur í stangarstökki og hástökki. Það er ekki hægt. Dómstóll götunnar Er EðlilEgt að bankar hækki vExti á íbúðalánum á sama tíma og þEir skila mEthagnaði? „Ég held að það sé erfitt að finna einhvern sem er ánægður með þetta, nema kannski einhver sem hefur beinan hag af þessum hækkunum. kannski hægir þetta á þenslu á húsnæðismarkaði samt.“ Anna Margrét Elíasdóttir, 45 ára garðyrkjufræðingur „Þetta er fáránlegt. Ég á íbúð og finn fyrir þessum hækkunum sjálf. Það ætti að fara að verða hægt að lækka þessa vexti.“ Eva Rún Colmsdóttir, 24 ára blómaskreytingameistari „Þetta er fremur slæmt. Þetta hækkar greiðslubyrðina hjá fólki og það er ekki gott.“ Helga Halldórsdóttir, 44 ára efnafræðingur „mér þykir það ekki eðlilegt. Ég þekki hins vegar forsendurnar ekki nægilega vel til þess að segja hvort það ætti að lækka vextina.“ Jón Kristján Johnsen, 50 ára nemi sanDkorn n Hróður alheimsfegurðar- drottningarinnar Unnar Birnu Vilhjálmsdóttur fer víða. Á vefsíðu sem varar við rússneskum svikahröpp- um sem hafa fé af fólki í gegnum skipti á svo- kölluðum póstlista- brúðum, er mynd af skilríkj- um rússneskrar konu að nafni Larisa Gaynullina. Mögu- legir kaupendur hafa hins vegar tekið eftir því að konan á myndinni er sjálf alheims- fegurðardrottningin og varað við því að þarna séu svikarar á ferð. n Yndislegt er að fylgjast með stríði Moggans við fólk í sjáv- arútvegi. Eftir að Agnes Braga- dóttir skrifaði greinar þar sem öllum sem starfa í sjávarútvegi finnst þeir hafa ver- ið kallaðir glæpamenn. Þetta hef- ur orðið til þess að fólk í sjávarbyggðum hefur sagt upp áskrift að Mogganum og í blaðinu í gær upplýsir Hjörtur Gíslason, blaðamaður á Mogg- anum, að nú sé svo komið að fólk vilji ekki tala við Mogg- ann. Hjörtur vill að lesendur og Mogginn taki saman hönd- um að móta nýja fiskveiði- stjórn. Það er ekkert annað. n Áheyrendur Stuðmanna í Laugardal á sunnudag voru furðu lostnir þegar bíða varð eftir hljómsveitinni fram yfir auglýstan tíma. Þar sem Stuð- menn hafa meiri reynslu en aðrir af tónleikahaldi kom óstundvísi hljómsveit- arinnar á óvart, því eftir auglýst- an tíma var enn verið að tengja raf- magn, sem hefði mátt vanda betur þar sem það sló út og aðeins hluti hátalara virkaði allan tímann. n Oft veitist blaðamönnum erfitt um vik að ná tali af ráð- herrum þjóðarinnar, enda er ráðherrastarfið annasamt. Ráðherrar koma sér gjarn- an upp neti aðstoðarmanna sem hafa það hlutverk eitt að banda blaðamönnum frá ráð- herranum. Því skal þó haldið til haga að hvorki Össur Skarphéð- insson né Björgvin G. Sigurðsson hafa skipt um stíl frá því þeir voru í stjórnar- andstöðu. Báðir svara þeir iðulega sím- tölum og svara því sem spurt er um. Ennþá.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.