Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2007, Page 16
í kvöld
20:00 PREMIER lEAGUE WORld
Nýr þáttur þar sem enska úrvalsdeildin
er skoðuð frá ýmsum óvæntum hliðum.
20:30 SEASON HIGHlIGHTS
Allar leiktíðir Úrvalsdeildarinnar gerðar
upp í hröðum og skemmtilegum þætti.
21:30 Pl ClASSIC MATCHES (TOTT-
ENHAM - MAN. UTd.)
Svipmyndir frá leik Tottenham Hotspur
og Manchester United leiktíðina 2001-
2002.
22:00 MASTERS FOOTBAll
Gömlu brýnin leika listir sínar, stjörnur á
borð við Matt Le Tissier, Glen Hoddle,
Ian Wright, Paul Gascoigne, Lee Sharpe,
Jan Mölby og Peter Beardsley.
MIðvIkUdAGUr 8. áGÚST 200716 Sport DV
ÍÞRÓTTAMOLAR
ÞRíR á SölUlISTA
Manchester City hefur skellt danny
Mills, Ousmane dabo og Paul dickov á
sölulista en þeir eru allir komnir yfir
þrítugt. Sven-
Göran Eriksson,
nýr knattspyrnu-
stjóri liðsins, hefur
verið duglegur á
leikmannamark-
aðnum í sumar og
fengið átta
leikmenn til
liðsins. Sam-
kvæmt heimild-
um breska ríkisútvarpsins gætu fleiri
leikmenn verið á förum frá City en þar
eru nefndir til sögunnar þeir Georgios
Samaras, darius vassell, Ishmael Miller
og kasper Schmeichel. Fyrsti leikur
City er á laugardag gegn West Ham.
MORRISON TIl WBA
West Bromwich Albion hefur keypt
miðjumanninn James Morrison frá
Middlesbrough fyrir um 200 milljónir
íslenskra króna.
Þessi 21 árs
miðjumaður
skrifaði undir
fjögurra ára
samning eftir að
hann stóðst
læknisskoðun í
gær. Morrison lék
tæplega hundrað
leiki fyrir Boro en
hann lék sinn fyrsta leik þegar hann
var sautján ára gamall í janúar 2004.
Hann var m.a. í byrjunarliðinu þegar
liðið lék í úrslitum UEFA-bikarsins í
fyrra. WBA gekk frá kaupum á öðrum
leikmanni í gær en það er varnarmað-
urinn Carl Hoefkens sem var keyptur
frá Stoke City.
FyRIRlIðINN FRá
damien Johnson verður fjarri góðu
gamni þegar Birmingham mætir
Chelsea í ensku úrvalsdeildinni um
helgina. Þessi 28 ára miðjumaður
meiddist í
æfingaleik í
síðasta mánuði
og hefur ekki
getað æft síðan.
Þetta eru virkilega
slæmar fréttir fyrir
Birmingham enda
er Johnson
fyrirliði liðsins.
„Hann verður frá í
rúmar tvær vikur og því ljóst að hann
missir af leiknum gegn Chelsea og
einnig af heimaleik gegn Sunderland.
Hann stefnir þó á að vera tilbúinn fyrir
leik gegn West Ham 18. ágúst,“ sagði
Steve Bruce, stjóri Birmingham.
lIvERPOOl HORFIR TIl CICINHO
Sögur eru uppi um að Liverpool hafi
áætlanir um að reyna að krækja í
Cicinho, sókndjarfa bakvörðinn knáa
sem leikur með real Madrid. Sagt er
að Liverpool sé tilbúið að borga um
900 milljónir
króna fyrir
Cicinho eða sjö
milljónir punda.
Þá sé ætlunin að
bjóða honum
talsvert betri laun
en hann hefur hjá
real. roma hefur
einnig áhuga á
þessum brasilíska
leikmanni en getur ekki keppt við
veskið hjá Liverpool. Annars er það að
frétta frá Liverpool að Gabriel Heinze
gerir allt sem hann getur til að komast
til liðsins frá Manchester United.
Forráðamenn United vilja ekki leyfa
honum að fara en úrskurðarnefnd
úrvalsdeildarinnar skoðar málið.
Körfuknattleikslið KR situr hjá
í fyrstu umferð Evrópukeppninnar
eða Eurocup en mun mæta Banvit
BC frá Tyrklandi í annarri umferð
keppninnar. Drátturinn fór fram á
sunnudag. Leikirnir fara fram 20.
og 27. nóvember og á KR fyrri leik-
inn á sínum heimavelli í Vestur-
bænum.
Benedikt Rúnari Guðmunds-
syni, þjálfara KR, líst vel á viður-
eignina og segir að tyrkneska liðið
sé sterkt. „Mér líst bara mjög vel á
viðureignina. Það sem ég hef náð
að kynna mér þetta lið er að það er
með ansi öfluga erlenda leikmenn.
Þeir eru að semja við rándýra Kana,
menn sem eru á margföldum laun-
um á við það sem við borgum hér á
landi. Þessir Kanar eru menn sem
eru á mörkum þess að komast inn
í NBA-deildina. Svo þeir eru án efa
sterkir,“ sagði Benedikt.
Hann bætir við að hann búist
við erfiðu ferðalagi til Tyrklands.
„Það eru ekki mörg lið í pottinum
sem eru í nágrenni við Ísland. Þetta
lið er í bæ sem er nokkuð erfitt að
nálgast þannig að við búumst við
frekar löngu og erfiðu ferðalagi.
Það fara líka margar sögur af áhorf-
endum í Tyrklandi. Maður hefur
heyrt sögur af því að það sé hrækt
á leikmenn og menn púaðir í hel.
Svo lengi sem áhorfendur hafa ekki
áhrif á dómara leiksins erum við
klárir í þessa geðsýki.“
Nái KR að sigra Banvit BC er lið-
ið komið í 16 liða úrslit keppninnar
og yrði það stórglæsilegur árangur.
„Að komast í 16 liða úrslit í þess-
ari keppni er kannski of gott til að
geta orðið að veruleika. Við ætlum
samt að gera heiðarlega tilraun til
að stela sigri í þessu einvígi,“ sagði
Benedikt að lokum. kari@dv.is
Benedikt Guðmundssyni, þjálfara KR, líst vel á viðureignina gegn Banvit í Eurocup:
Þeir eru mjög sterkir
Benedikt Guðmundsson Býst við óblíðum viðtökum tyrkneskra áhorfenda.
KR tekur á móti Val í Landsbanka-
deild karla í knattspyrnu í kvöld
klukkan 19.15. Þetta er fyrsti deild-
arleikur Loga Ólafssonar sem þjálfari
KR en hann stjórnaði fyrsta leik sín-
um með liðið á fimmtudag. Þá tap-
aði KR fyrir Häcken í Evrópukeppni
félagsliða, leikurinn fór 1-0 fyrir Sví-
ana og KR því úr leik. Vesturbæjarlið-
ið er í harðri fallbaráttu og þarf nauð-
synlega á sigri að halda í þessum leik.
Takist það ekki verður útlitið enn
svartara fyrir þá röndóttu.
Valur er öfugt við KR-inga í harðri
toppbaráttu við FH og þarf ekki síður
á sigri að halda vilji liðið ekki missa
FH of langt frá sér. Valur og KR hafa
leikið tvisvar sinnum í sumar og hef-
ur Valur unnið báðar viðureignirn-
ar. Fyrri leikurinn var í Landsbanka-
deildinni í lok maí og fór 2-1 en þá var
það Helgi Sigurðsson sem afgreiddi
KR með tveimur mörkum sínum. Í
byrjun júlí léku liðin svo í 16 liða úr-
slitum VISA-biksins og þar vann Val-
ur í vítaspyrnukeppni.
KR-ingarnir Jóhann Þórhallsson
og Guðmundur Reynir Gunnarsson
eru meiddir auk þess sem Valsarinn
Barry Smith er meiddur. Aðrir leik-
menn liðanna eru heilir og klárir í
leikinn í kvöld.
Þungar byrðar á mínum
mönnum
Logi Ólafsson, þjálfari KR, segir að
verkefnið sé erfitt að mæta Val enda
liðið eitt það sterkasta á landinu.
„Mér finnst eins og brúnin sé að lyft-
ast á mínum mönnum. Þótt ég hafi
nú ekki mörg viðmið til að ganga út
frá. Við gerum okkur grein fyrir því að
þetta verður erfitt verkefni að mæta
Val enda eru þeir með eitt af betri
liðum landsins. Þeir eru að elta FH í
toppbaráttunni og mega illa við áföll-
um,“ segir Logi.
Eins og staðan er í dag er KR í
neðsta sæti deildarinnar. Nokkuð
sem stuðningsmenn KR eru ekki svo
ýkja vanir. Logi segir að hann reyni
að nálgast leikinn á annan máta til að
létta á þeirri pressu sem augljóslega
er á leikmönnum KR. „Við höfum
reynt að horfa minna á stigatöfluna,
enda er það ekki sérstök andleg upp-
lyfting, þess í stað reynum við að líta
á verkefnin sem slík. Það er þó fullur
ásetningur allra sem koma að liðinu
að rífa okkur af botni deildarinnar. Ég
legg þó áherslu á það við strákana að
taka einn leik fyrir í einu og ef hver
og einn leggur sig fram komumst
við vonandi vel frá leiknum. Ég held
að það sé full ástæða til að reyna að
létta aðeins á pressunni sem er á leik-
mönnum. Enda eru þungar byrðar á
þessum mönnum eftir erfiðan tíma.
Þess vegna hef ég ákveðið að reyna
að nálgast málin aðeins frá öðrum
hliðum,“ segir Logi.
verðum að fá þrjú stig í leiknum
Atli Sveinn Þórarinsson, fyrirliði
Valsara, býst við skemmtilegum leik
í kvöld og segir að þjálfaraskiptin
hjá KR eigi ekki að skipta öllu máli.
„Mér líst mjög vel á viðureignina, það
verður klárlega mjög skemmtilegt að
spila þennan leik. Þau breyta held ég
ekki miklu þessi þjálfaraskipti hjá KR,
þetta eru allt sömu leikmenn sem
breytast held ég ekki mikið á tveimur
vikum. Svo við vitum svona nokkurn
veginn við hverju er að búast hjá KR,“
segir Atli.
Aðspurður hvort Valsarar séu
smeykir við KR eftir þjálfaraskiptin
og búist við miklum breytingum hjá
liðinu segir Atli svo ekki vera. „Nei,
við erum ekkert smeykir en við vitum
náttúrulega af skiptunum. Auk þess
höfum við unnið þá tvisvar í vetur
sem gerir þá ábyggilega enn reiðari
fyrir vikið. Það er bara alltaf erfitt að
fara í Vesturbæinn og spila þar. Við
verðum að fá þrjú stig í kvöld, það er
klárt. Það er 21 stig í pottinum og ég
held að FH nái ekki í öll stigin sem
eru í pottinum. Við verðum einfald-
lega að ná í þau flestöll ef við ætlum
að eiga séns á titlinum,“ segir Atli að
lokum.
KR og Valur mætast í stórleik 12. umferðar Landsbankadeildar karla í kvöld á KR-velli.
KR-ingar geta komist af botni deildarinnar með sigri.
STÓRSLAGUR Á KR-VELLI
káRI GARðARSSON
blaðamaður skrifar: kari@dv.is
Stórslagur í kvöld kr og
valur mætast í sannkölluðum
stórleik á kr-velli.