Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2007, Qupperneq 25
DV Sviðsljós miðvikudagur 8. ágúst 2007 25
Leikararnir Shia LaBeouf, sem leikur í Transfor-mers, og Justin Long, sem leikur í Die Hard 4.0, hafa gert það gott undanfarið. Shia og Justin eru þó vanir að leika nokkuð svipuð hlutverk í myndum sínum og gera það báðir nokkuð vel.Þeir félagar leika oftar en ekki nördastrákinn sem er samt myndarlegur og flækist fyrir slysni
inn í atburðarásina. Hann veit ekki alveg hvað hann á að
gera en tekst þó að bjarga deginum.
Justin er þó nokkuð eldri en Shia en hann er fædd-
ur 1978. Justin vakti fyrst athygli á sér í myndunum Jee-
pers Creepers. Myndirnar, sem voru hrollvekjur, fengu
ágæta aðsókn þrátt fyrir hræðilega dóma. Þar sem líkt
og oft áður leikur Justin einmitt hálfvitlausa lúðann sem
er hræddur og týndur. Justin gerði það svo einnig gott í
þáttunum Ed en þar var hann líka í því hlutverki.
Nú síðast lék hann svo í Die Hard 4.0 og stóð sig nokk-
uð vel. Justin er væntanlegur í fjórum myndum á næsta
ári og því nóg um að vera hjá honum.
Shia LaBeouf er fæddur 1986 og hefur smátt og smátt
unnið sig upp á stjörnuhimininn. Hann hefur einnig
gert það gott í hlutverki fljótfæra og klaufska lúðans sem
er samt nokkuð snjall.
Árið 2005 lék Shia aðstoðarmann Keanu Reeves í
Constantine og var það stóra tækifærið hans. Shia leik-
ur aðalhlutverkið í myndinni Transformers sem fær frá-
bæra dóma um allan heim og hefur gengið gríðarlega
vel. Hann er einnig væntanlegur innan skamms í mynd-
inni Disturbia sem og að leika í fjórðu Indiana Jones-
myndinni sem kemur á næsta ári.
Við eigum því eflaust eftir að sjá nóg af þeim félögum
á komandi árum og áratugum.
Lúðarnir
LitLu sætu
Shia LaBeouf og Justin Long eru ungir og upprennandi leik-
arar. Þeir félagar hafa gert það gott í myndunum Transformers
og Die Hard 4.0. Í myndunum leika þeir þó nokkuð svipuð hlut-
verk eða sætu nördana sem flækjast inn í atburðarásina
Justin Long
Er væntanleg-
ur í fjórum
myndum á
næstunni.
Die Hard 4.0 Bruce Willis var mjög
ánægður með frammistöðu Justins.
Stórstjarna í fæðingu? shia þykir
standa sig nokkuð vel í transformers.
Shia Saide
LaBeouf
verður í fjórðu
indiana Jones-
myndinni.
Hvor ber
það betur?
Í hörðum heimi tískunnar þar sem
stjörnurnar berjast við að vera
nýmóðins og töff vill það oft gerast
að sama flíkin rati í fleiri en einn
fataskáp. Þá er bara ein spurning
eftir. Hvora þeirra klæðir flíkin betur?
Britney SpearS eða
CatHerine BeLL?
Poppprinsessan er óvenju smekkleg í
þessum kjól frá Leona Edmiston sem
hún keypti í Los angeles í síðustu viku.
Leikkonan Catherine Bell klæddist
sama kjól nokkrum dögum síðar.
KirSten BeLL eða
CatHerine Zeta-JoneS?
veronica mars-leikkonan kirsten skart-
aði þessum glæsta ungaro-kjól í mars
síðastliðnum en Zeta-Jones klæddist
honum á frumsýningu myndarinnar
No reservations í síðustu viku.
JeSSiCa aLBa eða
Jamie-Lynn SigLer?
alba mætti í þessum bláa dolce &
gabbana-kjól á frumsýningu
Fantastic Four í ástralíu á meðan
sopranos-leikkonan klæddist
fjólubláu eintaki af kjólnum á EsPY-
verðlaununum.
ViViCa a. Fox eða
Jenny mCCartHy?
Hin kynþokkafulla Fox klæddist
þessum gyllta kjól frá Naeem khan á
BEt-verðlaununum en mcCarthy í
móttökuteiti Beckhams vestanhafs.
Jólin koma snemma
Jólaheimur Harrods í London var vígður í gær af jólasveininum
sjálfum. Sveinki kippti sér lítið upp við það þótt ekki sé nema
ágústbyrjun og gaf krökkunum ís.
allir fengu ís
sveinki var glaðbeittur
og gaf krökkunum ís.
Jólasveinn mættur
Það snjóaði í London þegar
sveinki mætti á svæðið.
Vönduð jólabjalla
Eða sarabjallan eins og
hún er kölluð kostar
rúmar 42.000 krónur.
Ótrúlegt úrval
Það geta allir fundið eitthvað
við sitt hæfi í jólaheimi Harrods.
Giftu sig í leyni
Eftir að hafa hætt við brúðkaupið á
síðustu stundu fyrir rúmri viku létu
söngvarinn Usher og Tameka Foster
gefa sig saman síðastliðinn föstudag
í Atlanta. Parið játaðist hvort öðru
eingöngu frammi fyrir lögmanni
Usher sem er mun fyrirferðarminni
athöfn en áður hafði verið skipulögð.
Vinur brúðhjónanna sagði að brúð-
kaupsveislan sem hætt var við á síð-
ustu stundu hefði orðið guðdómleg
því öllu hefði verið tjaldað til að gera
athöfnina sem glæsilegasta en þau
hafi hins vegar tekið ákvörðun um
að hafa þetta smærra í sniðum og
sleppa öllum veisluhöldum og njóta
frekar samvista við hvort annað að
vígslu lokinni.
Drukkin í stúdíói
Popppönkarinn Avril Lavigne hefur
nú viðurkennt að hafa verið drukk-
in þegar hún tök upp flest lögin á
nýjustu plötu sinni, The Best Damn
Thing. Hún segist hins vegar einung-
is hafa sturtað í sig þegar hún hafi
virkilega viljað rokka en þegar hún
taki upp rólegu lögin vilji hún alls
ekki vera undir áhrifum og heldur
ekki þegar hún er á sviði. „Ég myndi
aldrei reyna að syngja einhverja
fallega ballöðu ef ég væri drukk-
in því ég yrði bara hrikalega léleg í
því. Á sviðinu á ég nógu erfitt með
að muna textana edrú hvað þá ef ég
væri drukkin svo ég fæ mér ekki sopa
áður en ég stíg á svið.“
Ekki faðirinn
Grínistinn Chris Rock hefur ásamt
eiginkonu sinni gefið út yfirlýsingu
til fjölmiðla í kjölfar þess að kona að
nafni Kali Bowyer sakaði Rock um að
vera faðir þrettán ára gamals sonar
hennar en DNA-rannsóknir sýndu
að Rock var ranglega ásakaður. Í yf-
irlýsingu þeirra hjóna segir meðal
annars : „Við höfum hingað til viljað
halda einkalífi okkar utan við fjöl-
miðla en vegna rangra ásakana um
að Rock væri faðir þrettán ára gam-
als drengs höfum við ákveðið að fara
í mál við Bowyer þar sem við meðal
annars krefjumst þess að allir pen-
ingarnir sem hún græddi á að selja
fréttina til slúðurblaðanna renni til
góðgerðarmála fyrir börn sem hafa
mátt þola misnotkun.“