Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2007, Síða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2007, Síða 32
„Ekki er ljóst hvort ekið hafi ver- ið á hann eða ráðist á hann,“ segir Margeir Sveinsson hjá rannsóknar- deild umferðardeildar lögreglunn- ar á höfuðborgarsvæðinu um mann sem fannst illa haldinn í Breiðholt- inu á föstudagskvöldið. Vegfarandi kom að manninum sem er á sex- tugsaldri. Vegfarandinn þurfti að beita skyndihjálp þar sem maður- inn var í lífshættu. Bremsuför voru á staðnum þar sem maðurinn fannst. Það var á föstudagskvöldið sem vegfarandi kom að afar illa útleikn- um manni við Hraunberg í Breið- holti. Vegfarandinn veitti honum skyndihjálp þar til sjúkrabifreið og lögreglan komu á svæðið. Maður- inn var fluttur á Landspítalann því hann var í lífshættu. Lögreglunni tókst með aðstoð vitna að hafa uppi á bifreiðinni sem hugsanlega var ekið á manninn og í kjölfarið var tekin skýrsla af fjórum mönnum. Nokkrir eru af erlendu bergi brotnir en einnig voru Íslend- ingar með í för. Að sögn Margeirs er verið að skoða alla þætti málsins. Ekki er ljóst hvort ekið hafi verið á manninn eða honum veittir áverkarnir með öðr- um hætti. Lögreglan hefur bifreið mannanna undir höndum og rann- sakar hana nú. Engin játning liggur fyrir af hálfu mannanna eða frásögn um það hvernig atvikið átti sér stað. Að sögn Margeirs eru mennirnir ekki í haldi lögreglunnar og er áætlað að rann- sókn ljúki á allra næstu dögum. Maðurinn er úr lífshættu en hann þurfti að vera í öndunarvél. Hann mun vera á batavegi en ekki er búið að taka skýrslu af honum enn sem komið er. valur@dv.is Tölvusneiðmyndatæki Fjórðungs- sjúkrahússins á Akureyri er bilað og hefur starfsemi myndgreininga- deildar sjúkrahússins truflast veru- lega í kjölfarið. Vegna bilunar tækisins hefur það ástand skapast að sjúkrahúsið hefur ekki haft möguleika á því að taka á móti stórslösuðu fólki síð- ustu daga. Sneiðmyndatæki sjúkrahúss- ins bilaði þegar mynda átti alvar- lega slasaðan mann sem féll ofan í Glerárgljúfur skammt frá Akureyri um helgina, var maðurinn í kjölfar- ið sendur með hraði til Reykjavíkur með þyrlu Landhelgisgæslunnar. Starfsfólkið þreytt Samkvæmt heimildum hefur nokkur titringur verið á Fjórðungs- sjúkrahúsinu að undanförnu og vakthafandi starfsfólk haft áhyggjur af stöðu tækjabúnaðar því það hafi ekki haft upplýsingar um hvenær gert yrði við búnaðinn. Tækið hefur bilað áður og starfsfólk haft áhyggj- ur af ástandi þess um nokkurt skeið. Viðgerð á slíkum búnaði þolir held- ur enga bið. Ef alvarlegt ástand hefði skapast hefði sjúkrahúsið verið illa í stakk búið til þess að sinna slösuðu fólki. Sneiðmyndatæki gera læknum kleift að mynda höfuð, háls og kvið í einu og er nauðsynlegt þegar ástand stórslasaðra sjúklinga er metið. Ekk- ert bráðatilfelli hefur þó komið upp síðan tækið bilaði þar sem fólk hef- ur verið sent til Reykjavíkur til sneið- myndatöku Enginn möguleiki á varatæki Þorvaldur Ingvarsson, lækninga- forstjóri Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri, segir rétt að tækið sé bil- að en vonast til þess að það kom- ist í lag í dag. „Það vill sem betur fer svo til að það eru fimm sambærileg tæki til á landinu svo það kemur ekki að sök. Það er hins vegar nauðsyn- legt að þessi tæki séu í lagi en það er enginn möguleiki að hafa varatæki af þessari gerð á spítalanum. Við búum jafnframt við þær aðstæður að það er innan við klukkutíma flug til Reykjavíkur,“ segir hann. Þorvald- ur bendir einnig á að tækið sé starf- hæft, það virki hins vegar mun hæg- ar en eðlilegt geti talist og því hafi þurft að panta varahluti frá útlönd- um. Síðustu daga hefur deildin not- ast við annars konar búnað til þess að mynda sjúklinga. „Það er ekki gott að fólk þurfi að bíða þegar það er slasað, en við látum ekki svona lagað vera bilað.“ valgeir@dv.is miðvikudagur 8. ágúst 2007 n Dagblaðið vísir stofnað 1910 FréttaSkot 5 1 2 7 0 7 0 DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til frétta. Fyrir besta fréttaskot vikunnar greiðast 5.000 krónur. Að auki eru greiddar 10.000 krónur fyrir besta fréttaskot hvers mánaðar. Þannig er hægt að fá 15.000 krónur fyrir besta fréttaskot mánaðarins. Það er ekki á Akureyringa logið, vilja ekki ungt fólk og eru með bilaðan spítala... LífsspursmáL Að búnAðurinn virki Tölvusneiðmyndatæki Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri bilað síðan um helgina Vatnsbyssuslagur á Hjalteyri Svonefndir Sæludagar í sveitinni voru haldnir með pomp og prakt á Hjalteyri við Eyjafjörð nú um verslunarmannahelgina. Mikill vatnsbyssuslagur var hluti af hátíðahöldunum, sem voru á vegum Arnarneshrepps. Þessir ungu menn börðust hart og létu vatnsgusurnar ekki slá á gleðina. DV mynd Daníel Starrason Ekki ljóst hvort ekið var á mann eða hann laminn: Hugsanlega líkamsárás Fíkniefnaakstur Lögreglan var með öflugt fíkniefnaeftirlit víðast hvar um landið um verslunarmannahelg- ina. Í Reykjavík voru tólf öku- menn stöðvaðir fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Í tilkynningu frá lögreglunni segir að þetta hafi allt verið karlar á þrítugs- og fertugsaldri. Einn þessara öku- manna var tekinn tvisvar fyrir að aka undir áhrifum lyfja. Var hann fyrst stöðvaður við Smáralind á sunnudag og svo aftur stöðvaður á Dalvegi snemma á mánudags- morgun. Alls voru tíu stöðvaðir í Reykjavík og tveir í Kópavogi. áreitti fimm ára stúlku Kynferðisbrotadeild lögreglunn- ar á höfuðborgarsvæðinu rannsak- ar kynferðislegt ofbeldi í garð fimm ára gamallar stúlku sem átti sér stað í Laugarneshverfinu fyrir rúmum mánuði. Stúlkan sagði foreldrum sínum frá ofbeldinu eftir að það átti sér stað. Málið er enn í rannsókn og vonast Björgvin Björgvinsson, yfirmaður kynferðisbrotadeildar lög- reglunnar á höfuðborgarsvæðinu, til þess að málið verði sent til ríkissak- sóknara í vikulok. Aðspurður segist Björgvin ekki vilja gefa upp hvort maðurinn eigi heima í nágrenni við stúlkuna. 40 prósent fleiri lesa DV Fleiri lesa DV nú en áður, samkvæmt könnun Capacent. Lesturinn hefur aukist um fjöru- tíu prósent milli kannana. Lestur Morgunblaðsins eykst aðeins milli kannana en lestur Fréttablaðsins og Blaðsins dregst saman. Könn- unin nær til mánaðanna mars og apríl. Þá var DV ekki borið heim til áskrifenda nema að hluta. Lestur DV er því meiri í dag en mælingin segir til um. Ekið á mann eða hann laminn? Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar hvort ekið hafi verið á mann, sem fannst illa haldinn í Breiðholtinu um helgina, eða hvort ráðist hafi verið á hann. kóksmyglarar úr gæsluvarðhaldi Pari, sem tekið var fyrir að flytja inn kókaín til Íslands um síðustu helgi, hefur verið sleppt úr gæslu- varðhaldi. Þau voru handtekin við komuna til Íslands um síðustu helgi frá Bandaríkjunum. Upprunalega komu þau frá Venesúela. Parið faldi fíkniefnin í endaþarmi og nær- buxum. Hvort fyrir sig bar um 250 grömm þegar þau komu til landsins. Stúlkan er aðeins sextán ára gömul en tveimur dögum áður en hún kom til landsins á ný átti hún sextán ára afmæli. Talið er að þau hafi einnig fjármagnað kaupin á efninu en and- virði þess nemur um 30 milljónum króna. mögulegur heyskortur Miklir þurrkar sem hafa geisað í sumar geta haft alvarleg áhrif á tún bænda og seinkað hugsanlega slætti með þeim afleiðingum að uppskera getur spillst. Samkvæmt tímaritinu Feyki í Skagafirði þarf meira en smá- rigningu til þess að bæta ástandið en bændur þar hafa miklar áhyggj- ur af ástandinu. Víða eru farnir að sjást brunablettir sem hafa mynd- ast vegna mikilla þurrka og sólar. Ef ástandið batnar ekki á næstu vikum verður lítið um hey hjá bændum í vetur og má jafnvel búast við hey- skorti. Fjórðungssjúkrahúsið á akureyri Nauðsynlegur tækjabúnaður hefur ekki virkað síðan á laugardag. ValgEir Örn ragnarSSon blaðamaður skrifar: valgeir@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.