Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2007, Síða 13
DV Jaðarsport fimmtudagur 6. september 2007 13
Héðinn Ólafsson, eigandi kafaraskólans Kafarinn.is í Hafnarfirði.
Héðinn Ólafsson heillaðist af köfun þeg-
ar hann var lítill strákur á Raufarhöfn. „Þá sá
ég kafara en ég hafði aldrei séð svona furðu-
dýr áður,“ segir Héðinn hlæjandi. Héðinn
heillaðist þá þegar af sportinu en kom sér
aldrei til þess að byrja fyrr en árið 1999. „Ég
gerði þetta að mínu áramótaheiti að skrá
mig á byrjendanámskeið það árið. Ég beið
ekki boðanna og útskrifaðist um vorið. Ég
sótti nokkur námskeið og hélt svo til Eng-
lands þar sem ég kláraði kennararéttindin,“
segir Héðinn.
Vaxandi vinsældir
Árið 2001 stofnaði Héðinn svo
köfunarskólann Kafarinn.is sem er til húsa
í Hafnarfirði. „Eftir byrjendanámskeiðið
var ég viss um að þetta væri það sem
ég vildi gera og ákvað því að stofna
köfunarskólann,“ segir Héðinn en hann
hefur haft köfun að atvinnu undanfarin
tvö ár. Héðinn segir köfun vinsælt sport en
aldrei hafa fleiri skráð sig á námskeið hjá
honum en akkúrat um þessar mundir. „Já,
það er mikill vöxtur í þessu sporti og má
kannski þakka sameiginlegu átaki okkar
kafaranna að útrýma þeim misskilningi að
köfun sé aðeins fyrir útvalda. Það geta allir
lært köfun.“
Köfunarferðir
Samhliða köfunarskólanum sér
Héðinn einnig um sportkafarafélag sem
er félagsskapur hugsaður fyrir mjög virka
kafara. „Sportkafarafélagið skipuleggur
reglulega ferðir, bæði innanlands og
utan. Hér innanlands förum við vikulega
í styttri ferðir til, til dæmis Þingvalla og
í Straumsvík. En árlega eru líka farnar
nokkrar lengri ferðir og höfum við til dæmis
farið í helgarferðir til Vestmannaeyja, Seyð-
isfjarðar og Eyjafjarðar. Ferðir til útlanda
eru iðulega farnar til Egyptalands og er þá
kafað í Rauða hafinu.“
Margt að sjá við Íslandsstrendur
Héðinn segir það algengan misskilning
að við Íslandsstrendur sé ekkert að sjá. „Til að
leiðrétta þennan misskilning bendi ég fólki á
að við erum fiskveiðiþjóð og þar af leiðandi
er allt iðandi af lífi. Silfra á Þingvöllum er til
dæmis í þriðja sæti yfir fallegustu svæði heims
til köfunar. Svo eru það strýturnar norður í
Eyjafirði og einnig er alltaf gaman og mjög
vinsælt að skoða skipsflök en það eru tvö hér
í seilingarfjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu.“
Spurður um eftirminnilegustu ferðina sína
nefnir Héðinn Kaplagjótu í Vestmannaeyjum.
„Þetta var miðnæturferð og það var alveg
hreint ótrúlega mikið líf. Þarna má líka oft
sjá kolkrabba en þeir halda sig í gjánni við
eyjarnar,“ segir Héðinn að lokum.
Framhald
á næstu opnu
U m s j ó n : B a l d u r G u ð m u n d s s o n
N e t f a n g b a l d u r @ d v . i s
Köfun er fyrir alla
Auðveldlega má fullyrða að vinsældir íþrótta
með hlutfallslega fáa iðkendur hafi vaxið mikið
undanfarin ár. Hvort sem við köllum þær jaðar-
íþróttir eða eitthvað annað hafa vinsældir
íþrótta á borð við fallhlífarstökk, svifflug,
klettaklifur og sjósund vaxið ár frá ári. Við
spjölluðum við hressa Íslendinga sem stunda
íþróttir sem mörgum finnst eflaust bæði
spennandi og framandi.
ðarspo t