Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2007, Blaðsíða 16
fimmtudagur 6. september 200716 Sport DV
Terry hrósar sWP
Johnt terry, fyrirliði Chelsea, hefur
hrósað Shaun Wright-Phillips fyrir að
brjóta sér leið í byrjunarlið Chelsea.
Wright-phillips
hefur að mestu
eytt tíma sínum
hjá liðinu á
bekknum eftir að
hann kom frá
manchester City
fyrir háa upphæð.
Hins vegar hefur
hinn 25 ára gamli
Wright-phillips
brotið sér leið í byrjunarliðið í ár og
staðið sig vonum framar. „Hann hefur
verið frábær frá fyrsta degi. Ég talaði við
hann í flugvélinni þegar við vorum að
fara til bandaríkjanna þar sem hann
sagði mér að hann ætlaði sér í liðið.
síðan talaði hann við stjórann þar sem
hann sagðist ætla að vera hér áfram og
síðan þá hefur hann verið magnaður.“
Beckham geTur ekki BreyTT
Bandaríkjunum
Sir Alex Ferguson, stjóri manchester
united, hefur ekki trú á því að
fyrrverandi lærisveinn hans david
beckham geti
komið fótboltan-
um á kortið í
bandaríkjunum.
dvöl beckhams
vestan hafs hefur
einkennst af
meiðslum, en
fyriráætlunir hans
eru að gera
fótboltann vinsælli
en körfubolta, hafnarbolta eða NfL. „Ég
fór með aberdeen þangað á áttunda
áratugnum. Þá voru menn eins og
Cubillas og peter shilton. fyrir þá voru
pele, Cruyff og beckenbauer. Ég veit
ekki hversu mikil áhrif hann hefur en
hann getur svo sannarlega ekki breytt
þjóðinni. stærðin á landinu skiptir líka
máli. Það tekur ekki svo langan tíma að
ferðast á milli í evrópu en ef maður
ætlar frá boston til L.a. er það sex tíma
flug. stuðningsmenn fara ekki á milli
þannig það er ekki mikill rígur á milli
stuðningsmannanna, það skiptir svo
miklu máli. svo er það ennþá þannig að
bestu leikmenn bandaríkjanna vilja
koma til evrópu.“
arsenal-menn veðja
miðjutrío arsenal, Alexander Hleb,
Tomas Rosicky og Cesc Fabregas
hefur farið í veðmál um hvaða
leikmaður skorar flest mörk í vetur. allt
frá því thierry Henry hætti hafa vaknað
spurningar um
hver eigi að skora
mörkin fyrir
félagið. Henry
skilaði undan-
tekningalaust 20
mörkum á tímabili
og einhverjir þurfa
að koma í hans
stað. Þremenning-
arnir hafa aldrei
verið þekktir sem miklir markahrókar
þótt allir séu frábærir leikmenn. „Við
höfum talað um að það þurfi að koma
mörk frá miðjunni. Við erum farnir að
undirbúa veðmál um hver verði
markahæstur af okkur. Ég vona
auðvitað að ég vinni. mörk í öllum
keppnum telja og síðasta ár var ég
markahæstur. Það væri gaman að ná því
aftur en það skiptir samt minna máli.
bara að liðið vinni leiki,“ sagði rosicky.
reyni að vera jákvæður
Kieron Dyer, leikmaður West Ham,
segist ætla að reyna að vera jákvæður
þrátt fyrir að hafa fótbrotnað í sínum
öðrum leik fyrir félagið. Hann hefur
alltaf átt í erfiðleikum með meiðsli á
ferlinum og þar virðist engin breyting á,
þrátt fyrir að hafa skipt um félag. „Ég
reyni bara að vera eins jákvæður og
hægt er.
sjúkraliðarnir hér
voru ánægðir með
hvernig aðgerðin
tókst og sjá ekkert
því til fyrirstöðu að
ég nái mér að
fullu. Núna er ég
bara að hvílast
áður en
endurhæfingin
getur hafist. Vonandi kem ég til baka
fyrr en síðar. Þeir lofa mér engu, þar
sem fólk bregst mismunandi við því að
láta setja skrúfu í beinið á sér. djibril
Cisse lenti í svipuðum meiðslum og ég
og hann kom sterkari til baka,“ sagði
dyer.
Níu börn með níu konum í fjórum ríkjum
Travis Henry, leikmaður Denver Broncos, hefur víða komið við: við
Travis Henry, leikmaður
Denver Broncos í NFL-deildinni,
er kvennaflagari mikill. Hann á níu
börn með níu konum í fjórum ríkjum
í Bandaríkjunum. Börnin hans eru í
Flórída, Norður-Karolínu, Tenessee
og Georgíuríki. Hann hefur að sögn
Denver Post þurft að fá lánaða pen-
inga frá liðsfélögum sínum til að
borga meðlög.
„Hann á engan pening. Þessi
maður er í miklum fjárhagskrögg-
um. Ég veit af þessum börnum en
það á eftir að skera úr um hvort þau
eru hans eða ekki,“ sagði lögfræðing-
ur Henry, Shiel Edlin. Hún sagði að
þótt vissulega séu þetta mörg börn
vill Henry ekkert meira en að verða
góður faðir. Hann hafi meira að segja
viljað smala þeim til sín og leyfa þeim
að horfa á æfingu með sér.
Travis Henry komst í fréttirnar
vestanhafs ekki alls fyrir löngu fyrir
að gefa út gúmmítékka þegar hann
ætlaði að borga fyrir skartgripi. Hann
á gríðarlegt magn af gullkeðjum,
úrum og hringum. Hann er með 25
milljóna dollara samning við Denver
og hefur 50 þúsund dollara í laun á
mánuði.
Í gær kom dómstóll saman, vegna
nýjasta afkvæmis Henrys. Meðlagið
hljóðaði upp á þrjú þúsund dollara
sem Henry ræður ekki við enda
vanur lífstíl fína og fallega fólksins.
Hann borgar einnig meðlög með sjö
öðrum börnum og þarf samkvæmt
dómstólnum að vera búinn að
byggja sér upp sjóð með 250 þúsund
dollurum í, þannig að meðlögin skili
sér á réttum tíma. Hann lenti á eftir
með meðlagsgreiðslur fyrir um ári og
eftir að hafa verið hótað fangelsisvist
fékk hann lánaða frá liðsfélaga
sínum 9.800 dollara. „Mín rök fyrir
réttinum voru einfaldlega þau að ef
hann hætti að kaupa sér gullkeðjur
eða úr á meðlagið ekki að vera neitt
vandamál,“ sagði lögfræðingur
móðurinnar sem á nýjasta afkvæmi
Henrys. benni@dv.is
Lausgirtur
travis Henry
er með milljóna
samning en er
samt nálægt
gjaldþroti.
enski BolTinn
Ísland vann góðan sigur á Austurríki
91–77 í síðasta leik sínum B-deild
Evrópukeppni landsliða í körfubolta.
Jakob Örn Sigurðarson átti stórleik
fyrir Ísland, skoraði 21 stig, gaf tíu
stoðsendingar og hirti sjö fráköst.
Ísland endaði í þriðja sæti síns riðils,
Finnar unnu riðilinn og Georgía varð
í öðru sæti.
Íslenska liðið var lengi í gang í
leiknum í gær og Austurríkismenn
gengu á lagið. Austurríki náði tólf stiga
forskoti strax í fyrsta leikhluta, 9–21, og
það gekk fátt upp hjá íslenska liðinu í
sókninni.
Ísland hrökk í gang undir lok fyrsta
leikhluta og hóf að saxa á forskot
Austurríkis. Staðan eftir fyrsta leikhluta
var 13–23 en það var allt annað að sjá
til íslenska liðsins í öðrum leikhluta.
Smátt og smátt tókst íslenska liðinu að
minnka muninn. Vörnin fór að vinna
betur saman og þriggja stiga skotin
rötuðu mörg hver rétta leið. Ísland
komst loks yfir undir lok fyrri hálfleiks
þegar Magnús Gunnarsson skoraði
þriggja stiga körfu, 33–36. Staðan í
hálfleik var 39–41, Austurríki í vil.
Íslenska liðið náði hægt og
bítandi undirtökunum í leiknum
með gríðarlegri baráttu, sem skein
úr andliti hvers einasta leikmanns.
Ísland náði mest sex stiga forystu
í þriðja leikhluta, 57–51, áður en
Austurríkismenn minnkuðu muninn
í 59–57. Það var hins vegar Jakob Örn
sem átti lokaorðið í leikhlutanum, hitti
úr þriggja stiga skoti og staðan var 62–
57 þegar þriðja leikhluta lauk.
Fjórði leikhluti var aftur á móti eign
íslenska liðsins. Liðið spilaði fantagóða
vörn og hver þriggja stiga karfan á fætur
annarri rataði rétta leið. Þar var fremstur
í flokki sem fyrr Jakob Örn sem hitti vel,
auk þess sem hann mataði samherja
sína á góðum sendingum.
Íslenska liðið gerði algjörlega út
um leikinn í fjórða leikhluta og síðustu
mínútur leiksins náðu því aldrei að
verða spennandi. Lokatölur urðu 91–
77, fyllilega verðskuldaður sigur hjá
Íslandi.
Þriðji sigur Íslands staðreynd og
áttundi sigurinn í síðustu níu leikjum.
Sigurður Ingimundarson, þjálfari
íslenska liðsins, var ánægður með þá
baráttu sem liðið sýndi, þrátt fyrir að
byrja leikinn illa.
„Við spiluðum af þvílíkum krafti en
skotin duttu ekki. Menn vildu virkilega
fara inn á og vinna þennan leik. Það
góða var að menn voru að vinna þótt við
misstum þá tíu fram úr,“ sagði Sigurður
og bætti við að stemningin í liðinu hafi
spilað stórt hlutverk í leiknum.
„Þetta hefur verið stemningin að
undanförnu. Þeir eru ekkert að fara að
tapa leikjum og hafa spilað mjög vel
saman í vörninni og vörnin var frábær
í leiknum, fyrir utan fyrstu átta til tíu
mínúturnar. Allar körfur þeirra voru
erfiðar og það er erfitt að spila á móti
svona vörn í fjörutíu mínútur,“ sagði
Sigurður. En bjóst hann við fjórtán stiga
sigri gegn Austurríki?
„Það hljómar smámont, en, já,
ég gerði það,“ sagði kampakátur
þjálfarinn að lokum.
Jakob Örn Sigurðarson var besti
leikmaður Íslands. Hann skoraði 21
stig, gaf tíu stoðsendingar og hirti sjö
fráköst. „Mér leið mjög vel og var að
hitta vel. Ég fann opnu mennina og þeir
settu skotin niður,“ sagði Jakob Örn eftir
leikinn.
„Það er mjög góð barátta í liðinu,
það er mjög létt yfir hópnum, við erum
allir góðir félagar og skemmtum okkur
mjög vel þegar við erum að spila. Það
hjálpar mjög mikið að vera ekki að
hugsa of mikið, bara hafa gaman af
körfuboltanum og spila,“ sagði Jakob
Örn.
Ísland lék án Jóns Arnórs
Stefánssonar og fleiri sterkra manna
í gær og Jakob Örn sagði að það
kæmi einfaldlega maður í manns
stað. „Við eigum nóg af mjög góðum
körfuboltamönnum. Ungir leikmenn
koma upp. Þeir koma bara inn á næsta
ári og þá verðum við ennþá sterkari,“
sagði Jakob að lokum.
„Þetta er okkar besti árangur í langan
tíma og við erum búnir að tapa einum
leik í sumar, af níu. Það er ótrúlegur
árangur. Við unnum smáþjóðaleikana í
fyrsta skipti í fimmtán ár, vinnum stórar
þjóðir, Georgíu og svo Austurríki sem er
góð þjóð líka. Við erum bara á uppleið,“
sagði Logi Gunnarsson og hann talaði
einnig um hve góð stemning væri í
liðinu.
„Þetta er rosalega gaman. Þetta er
góður hópur, allir eru góðir félagar og
það gerir þetta ennþá skemmtilegra.
Þá gengur okkur líka betur, þegar við
spilum sem lið og allir fyrir alla. Við
erum góð liðsheild,“ sagði Logi og bætti
við að liðið hafi alltaf haft trú á sigri,
þrátt fyrir slaka byrjun.
„Við vitum að við erum góðir að
skjóta, við erum hittnir og þó við
brennum af nokkrum í röð höldum við
bara áfram. Svo stoppuðum við þá líka
í vörninni og þá koma skotin. Þetta var
frábær endir á góðu prógrammi,“ sagði
Logi að lokum.
Ísland endaði í þriðja sæti síns riðils í B-deild Evrópukeppni landsliða í körfubolta
eftir 91–77 sigur á Austurríki í Laugardalshöll í gær. Jakob Örn Sigurðarson átti
stórleik fyrir Ísland.
FRÁBÆR ENDIR Á
TÍMABILINU
DAguR Sveinn DAgbJARTSSon
blaðamaður skrifar: dagur@dv.is
Ísland – Austurríki 91–77
stig Íslands: Jakob Örn sigurðarson 21,
páll axel Vilbergsson 13, fannar Ólafsson
12, Helgi már magnússon 11, Logi
gunnarsson 10, magnús gunnarsson 9,
brenton birmingham 5, friðrik erlendur
stefánsson 3, Þorleifur Ólafsson 3, brynjar
björnsson 2, sigurður Þorleifsson 2.
Átti góðan leik páll
axel Vilbergsson átti
góðan leik fyrir Ísland,
skoraði þrettán stig og
hirti fimm fráköst.