Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2007, Page 17

Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2007, Page 17
DV Sport fimmtudagur 6. september 2007 17 Anderson þArf tímA Sir Alex Ferguson, stjóri manchester united, hefur sagt að anderson muni láta ljós sitt skína fyrr en síðar í búningi manchester-liðsins. Hann þótti ekki vera neitt sérstakur gegn sunderland en ferguson er ekki í neinum vafa að þarna fer hæfileikaríkur leikmaður. „Hann er aðeins 19 ára gamall. Hann er með mikla hæfileika og ég er viss um að hann verði í lagi. Hraði leiksins á móti sunderland var mikill og hann á eftir að venjast honum. svo var hann einnig að leika sinn fyrsta leik með nýjum félögum og það tekur alltaf tíma.“ CArrAgher vill titil Jamie Carragher, varnartröll Liverpool-manna, þráir ekkert heitar en að vinna ensku deildina með Liverpool áður en félagið flytur á nýjan og glæsilegan völl í stanley park. Carragher hefur ekki unnið deildina ensku þrátt fyrir velgengni í öðrum keppnum. „Það væri æðislegt að koma með bikarinn einu sinni enn á anfield áður en við förum héðan. Þegar ég tala við aðdáendur liðsins er það deildartitillinn sem þeir vilja. Við vorum með gott lið fyrir en stjórinn kom með fimm eða sex nýja leikmenn og við erum komnir með mikla breidd. Ég er bara ánægður að enginn af þeim var í minni stöðu.“ etherington vAr spilAfíkill Matthew Etherington, leikmaður West Ham, kom fram og sagði að spilamennska hans hefði verið svona slæm í fyrra vegna spilafíknar. Hann hefur hins vegar leitað sér aðstoðar og veðjar ekki lengur. Hann skoraði tvisvar sinnum gegn reading um síðustu helgi. „Ég var á botninum á síðasta tímabili og það hafði vissulega áhrif á hvernig ég spilaði. einhvern tímann á ferlinum kemur sá tími þar sem ekkert gengur upp og hann var hjá mér í fyrra. en ég tókst á við vandamálið og það er allt að baki núna. Ég var ekki ánægður síðasta ár en vonandi tek ég rétt skref í þetta sinn,“ sagði etherington. ferguson of fljótur Að dæmA stAm alex ferguson, framkvæmdastjóri manchester united, viðurkennir að hafa verið of fljótur að útiloka Jaap Stam frá liðinu. eins og frægt er orðið féll stam í ónáð eftir að umdeild ummæli birtust frá kappanum um manchester united í ævisögu hans. Hann segir að salan á stam til Lazio hafi verið mistök „í knattpyrnulegum skilningi“. ferguson segir að hann hafi haft áhyggjur af því að kappinn myndi ekki komast í sitt besta form eftir meiðsli. „Á þessum tíma var hann nýkominn til baka eftir meiðsli á hæl og okkur fannst hann aðeins hafa misst neistann. Við fengum tilboð upp á 16,5 milljónir punda frá Lazio fyrir 29 ára miðvörð og okkur fannst tilboðið of gott til að hafna því. en ef horft er út frá fótboltanum voru það mistök því hann spilar enn í dag og stendur sig vel með ajax,“ sagði ferguson. stam er nú 35 ára en leiktímabilið 2001–2002 sem var árið sem stam fór frá manchester united var eitt fárra sem liðið vann enga titla undir stjórn alex ferguson. stam fór til ajax árið 2006 eftir að hann hafnaði samningi frá aC-milan. Juventus byrjar tímabilið í ítölsku A-deildinni vel eftir að hafa verið dæmt til þess að spila í ítölsku B- deildinni á síðustu leiktíð. Nokkrir af bestu leikmönnum Evrópu féllu úr sviðsljósinu þegar Juventus féll um deild. Einn þeirra er David Trezeguet sem hefur alla sína tíð skorað mikið af mörkum en hann átti erfiða leiktíð í fyrra og skoraði einungis 15 mörk í B- deildinni. Hann var vanur að gera fleiri mörk gegn mun betri andstæðingum í A-deildinni tímabilin á undan. Fyrir vikið missti hinn 29 ára gamli Trezeguet stöðu sína í franska lands- liðinu og margir töldu að hann væri búinn að ná hápunkti ferils síns. Trezeguet er hins vegar á öðru máli og eftir að Juventus sigraði í B-deildinni í fyrra hefur liðið byrjað nýtt tímabil vel og Trezeguet sérstaklega. Hann skoraði þrennu gegn Livorno á dögunum og í síðustu umferð skoraði hann eitt mark gegn Cagliari og hefur því gert fjögur mörk í fyrstu tveimur leikjunum. Hann hefur skorað 114 mörk í 160 leikjum fyrir Juventus sem allir fram- herjar geta verið stoltir af. Hann er kannski ekki sá leikmaður sem hef- ur mestan hraða eða tækni en hann reiðir sig hins vegar á tímasetningar og sendingar miðjumanna áður en hann potar knettinum í netið. Leikstíll Trezeguet hentar ekki öllum og eftir að hann féll úr landsliði Raymonds Domenech var hann sendur niður í franska B-landsliðið og það féll í grýttan jarðveg hjá Trezeguet. „Mér fannst ég vera niðurlægður af Domenech. Enginn þekkir franska B- landsliðið og liðið spilar bara á litlum völlum fyrir framan fáa áhorfendur,“ segir Trezeguet um landsliðsþjálfara Frakka og ljóst að þrátt fyrir að hann standi sig á vellinum á næstunni gæti verið langt í að hann spili fyrir franska landsliðið að nýju. -VG Á meðal þeirra bestu á ný Hinn gleymdi David Trezeguet byrjar tímabilið vel í ítölsku A-deildinni: Munið þið eftir mér? david trezeguet hefur byrjað tímabilið vel og skorað fjögur mörk í tveimur leikjum í ítölsku a-deildinni. Íslenska landsliðið í knattspyrnu undirbýr sig af fullum krafti þessa dagana fyrir þá leiki sem fram undan eru. Ísland mætir Spáni á Laugardalsvelli á laugardaginn og Norður-Írum á miðvikudaginn. Eiður Smári Guðjohnsen var kallaður í landsliðhópinn, þrátt fyrir að hann hafi ekk- ert sparkað í bolta á æfingum með Barcelona að undanförnu vegna hnémeiðsla. Hann virt- ist hins vegar í ágætis standi á æfingu í gær og kenndi sér einskis meins eftir æfinguna. „Ég finn að ég er ekkert hundrað prósent klár, svona læknisfræðilega séð. Það er ekkert vandamál að æfa með liðinu og reyna að keyra mig upp á þessum dögum sem ég er hérna. Ég er miklu betri í dag en ég var í gær. Eftir flug getur oft myndast smá vökvi. Ég er bara nokkuð góður, óragur við að gera allt, það er aðalatriðið. Þetta eru í raun fyrstu æfingarnar mínar í fótbolta með liði í tvo mánuði,“ sagði Eiður. Hann telur þó litlar líkur á því að hann verði með í leiknum gegn Spánverjum. „Ég held að það sé nánast útilokað að ég byrji inn á en það er vonandi að ég geti tekið einhvern þátt. Við þurf- um bara að meta það, þjálfarinn þarf að meta það í samráði við lækna og annað. Ég er mjög mikið til í taka einhvern þátt,“ sagði Eiður. „Það er kannski einhver vökvi inni á liðnum, sem er misjafnt frá degi til dags. Aðalatriðið er að komast í gegnum æfingu og vera eins á morgun. Að það gerist ekkert eftir æfingu og það gerist ekkert í kjölfarið. Þetta lítur bara ágætlega út, ég er í stöðugri sjúkraþjálfun og er í raun að keyra mig upp hér eins og ég myndi gera úti,“ sagði Eiður og bætti við að hugarfarið væri alltaf til staðar. „Það vantar ekki. Ég er bara tilbúinn að taka að mér það hlutverk sem mér er gefið í þessum leikjum. Innst inni vona ég að ég spili mun stærra hlutverk í Norður-Íra-leiknum heldur en Spánverjaleiknum. Það gefst meiri tími til að undirbúa og styrkja sig jafnvel enn meira,“ sagði Eiður. „Það er alltaf gaman þegar við komum saman og spilum fyrir landsliðið. Oft þegar ég hef verið meiddur áður hefur verið sett spurningarmerki við það hvort ég sé virkilega meiddur. Fólk sér það núna að þegar ég er tæpur er ég samt kominn. Ég hef bara svo gaman af þessu og ég vil að fólk geri sér grein fyrir því,“ sagði Eiður. Vantar jákvæðni Hann sagði einnig að það hafi vantað jákvæðni í kringum landsliðið. „Það hefur vantað, bæði frá liðinu og fólkinu í kringum okkur, að við lítum aðeins jákvæðari augum á landsliðið. Það á að vera skemmtun að spila fyrir Ísland og skemmtun með stolt í huga. Ef við náum að smita því aðeins út frá okkur fer þetta að minna á gömlu stemninguna á Laugardalsvelli fyrir tuttugu árum,“ sagði Eiður. Hann sagði að það væri erfitt að ætlast til sigurs gegn Spánverjum. „Er hægt að ætlast til sigurs á móti Spánverjum? Það er erfitt. Ég yrði sáttur ef allir kæmu jákvæðir út úr þessum leikjum. Allir taki undir það að við séum virkilega að leggja allt sem við getum í leikina og að menn beri höfuðið hátt eftir þessa leiki og að allir breyti hugarfarinu. Það er aðalatriðið og vissulega fást einhver stig með því. Það hefur verið ákveðið tímabil þar sem ekki hefur gengið nógu vel og við höfum ekki náð þeim árangri sem ætlast er til af okkur. Við höfum ekki náð öllu út úr sjálfum okkur. Það er alltaf auðvelt að horfa bara á þjálfarann og segja að hann nái ekki öllu út úr liðinu. Á endanum veltur hans starf mikið á leikmönnum líka. Ég held að við þurfum allir að taka þá ábyrgð á okkur,“ sagði Eiður. dagur@dv.is Ólíklegt verður að teljast að Eiður Smári Guðjohnsen verði í byrjunarliði Íslands gegn Spánverjum. Hann segist ekki finna fyrir neinum eymslum út af hnémeiðslum sín- um og vonast til að taka einhvern þátt í leiknum. ALLUR AÐ KOMA TIL Taktar eiður smári vonast til að geta tekið þátt í leiknum gegn spánverjum að einhverju leyti. Gaman á æfingu eiður smári tók virkan þátt í æfingu landsliðsins í gær og kenndi sér einskis meins. enski boltinn FRÁBÆR ENDIR Á TÍMABILINU

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.