Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2007, Page 19

Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2007, Page 19
DV Jaðarsport Hvenær prófaðir þú fallhlífarstökk fyrst? „Það var árið 2002.“ Hvað varð til þess að þú fórst út í þetta sport? „Þetta var gamall draumur sem ég lét loks verða að veruleika. Ég stunda fall- hlífarstökk og svo kafa ég líka reglu- lega. Ég hef prófað ýmislegt fleira, til dæmis klifur, en flest annað hefur setið á hakanum síðan ég prófaði að stökkva.“ Hversu oft stekkur þú? „Ég stekk svona um það bil hundrað og fimmtíu sinnum á ári. Ég fer líka tvisvar til þrisvar á ári og stekk erlend- is en enn sem komið er er ekki nógu stór markaður hér á landi. Ég er ein- mitt nýkominn frá Rússlandi þar sem ég keppti ásamt öðrum úr landsliðinu. Okkur gekk bara ágætlega miðað við hvað þetta er nýtt lið en það var bara stofnað nú í sumar.“ Hvað er það sem heillar við fallhlífarstökk? „Maður fær mikið adrenalínkikk út úr þessu og þetta er mikil ögrun. Það kemst ekkert annað sport nálægt þessu. Það eru margir sem verða háð- ir þessu kikki, fólk fer að skjálfa ef það stekkur ekki lengi.“ Hefur þú orðið hræddur? „Nei. Þetta er nú þannig sport að ef þú fylgir öllum reglum og varúðarráðstöf- unum áttu að geta hoppað endalaust án þess að nokkuð komi upp á.“ Hvenær prófaðir þú fisflug fyrst? „Ég hef stundað þetta síðan 1978, í 29 ár.“ Hvað varð til þess að þú prófaðir þetta sport? „Ég byrjaði 15 ára að prófa svif- flug og tók nokkra tíma í því. Svo kynntist ég strák sem var með mér í bekk í menntaskóla. Hann átti svifdreka sem ég varð að fá að prófa líka. Það endaði með því að ég keypti af honum drekann þegar hann fékk sér nýjan og síðan þá hef ég stundað fisflug. Árið 1981 smíð- aði ég mér svifdrekamótor sem ég hengdi í dreka og fór í loftið.“ Hversu oft ferðu að fljúga? „Alltaf þegar veður leyfir. Logn er okkar vinur í mótorfisfluginu en óvinur í öllu hinu. Ég reyni að kom- ast í hverri viku, en það er náttúru- lega háð veðurfari. Fisflugmenn þurfa að hafa góða tilfinningu fyrir veðrinu á afmörkuðu svæði. Fisflug- menn eru því eins konar míkró veð- urfræðingar. Annars er Ísland vel til þess fallið að fljúga. Landið er svo opið að það er hægt að lenda nærri því hvar sem er ef maður missir afl eða þarf nauðsynlega að lenda.“ Hvað er það við flugið sem heillar? „Það er að glíma við eitthvað sem er ósýnilegt. Maður er alltaf að keppa að því að finna uppstreymi og hanga í því. Svo er það vængjaflugið sem snýst mikið um það að fljúga sem lengst án þess að nota mótor. Árið 1992 flaug ég eitt sinn 94 kílómetra á svifdreka, sem er lengsta flug sem hefur verið flogið á Íslandi. Á mót- orfisflugvélum er hægt að fljúga um allt landið. Þær hafa sex tíma flugþol. Það er margt sem heillar við flugið.“ Hefur þú orðið hræddur á lofti? „Nei, ég er svo rosalega lífhrædd- ur að ég kem mér aldrei í þá stöðu að verða hræddur. Ég fer alltaf mjög varlega. Ég veit að sumir hafa orðið skelfdir þegar þeir lenda í aðstæð- um sem þeir bjuggust ekki við en það er oftast út af vankunnáttu eða að þeir hafa ekki kynnt sér aðstæður nægjanlega vel.“ Framhald á næstu síðu Þægilega hressandi FisFlugmenn eru míkró veðurFræðingar Árni Halldór Gunnarsson fisflugmaður. mikil ögrun Hjörtur Blöndal, kerfisfræðingur og landsliðsmaður í fallhlífarstökki. * Koffín Eykur orku og fitubrennslu. * Hýdroxísítrussýra Minnkar framleiðslu fitu. * Sítrusárantíum Breytir fitu í orku. * Króm pikkólínat Jafnar blóðsykur og minnkar nart. * Eplapektín Minnkar lyst. * L-Carnitine Gengur á fituforða. BYLTING Í FITUBRENNSLU! - ÖFLUGAR BRENNSLUTÖFLUR Perfect bu rner töflu r 90 stk. Hagkvæm ustu kaup in! Söluaðilar: Hagkaupsverslanir, Heilsuhúsið, Hreysti, Lyfjuverslanir og helstu líkamsræktarstöðvar. Perfect burner er því lausnin á því að tapa þyngd á árangursríkan, skynsaman og endingagóðan hátt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.