Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2007, Page 7

Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2007, Page 7
Hitaveita Suðurnesja fer fram á að ís- lenska ríkið greiði stóran hluta lagn- ingar nýrra vatnslagna til Vestmanna- eyja. Ef ekki, ætlar fyrirtækið að hækka þjónustugjöld sín til að safna upp í framkvæmdina. Áætlaður kostnað- ur verksins er 1,2 milljarðar króna og hitaveitan fer fram á að ríkið greiði að minnsta kosti 600 milljónir af því. Til Vestmannaeyja liggja í dag tvær vatnslagnir sem eru báðar nærri 40 ára gamlar. Önnur þeirra er ónýt og hin illa farin. Fyrir tveimur árum fór í sundur vatnslögn til Vestmannaeyja og þá varð ljóst að leysa þyrfti vand- ann með því að leggja nýja lögn. Gert er ráð fyrir því að leggja nýju vatns- lögnina næsta sumar þegar kjörað- stæður eru til lagningarinnar. Stjórn- endur Hitaveitu Suðurnesja hafa þegar leitað til fjárveitingavaldsins eftir fjármagni til framkvæmdarinnar en hafa ekki fengið nein svör ennþá. Tvær leiðir Júlíus Jón Jónsson, forstjóri Hita- veitu Suðurnesja, staðfestir að annað hvort komi ríkið að verkinu eða gjald- skráin verði hækkuð í topp. Hann segir ríka þörf fyrir því að ráðast hið allra fyrsta í verkið. „Við krossleggjum fingur um leið og vind hreyfir. Ég hef áhyggjur af því að lögnin sem fyrir er haldi ekki út til vorsins. Það má enginn misskilja það svo að við ætlum ekki að fara í framkvæmdina, málið snýst eingöngu um hver borgar brúsann. Nú þegar höfum við greitt inn á þetta en við bendum á að þetta er félagsleg framkvæmd sem ríkið eigi að koma að,“ segir Júlíus. Grétar Mar Jónsson, þingmaður Frjálslynda flokksins, segir lykilatriði að Eyjamenn fái nýj- ar vatnsleiðslur hið fyrsta og undrast kröfu stjórnenda Hitaveitu Suður- nesja. Hann spyr hvort íslenska ríkið eigi nú að fara að greiða allar fram- kvæmdir sem einkaaðilum í orkumál- um þyki ekki arðbærar. „Þetta er óarð- bær framkvæmd og nýju eigendurna, einkaaðilana, langar ekkert til að fara í svoleiðis. Maður skilur það svo sem al- veg en þeir verða að gera sér grein fyrir því að þeir geta ekki bara hirt gróðann heldur þurfa líka að sinna grunnal- mannaþjónustu. Ég kemst ekki hjá því að spyrja mig hvort þetta sé það sem koma skal í einkavæðingu orkufyrir- tækja,“ segir Grétar Mar. Vilja ekki tapa Árni Johnsen, þingmaður Sjálf- stæðisflokks, er ósammála og telur sjálfsagt að ríkið styrki framkvæmd- ina. Hann telur ekki rétt að krefjast þess af Hitaveitu Suðurnesja að gera þetta hvort sem verkefnið sé arðbært eður ei. „Þetta er eitt af þessum félags- legu verkefnum í landinu. Byggðamál á ekki að leggjast á einkaaðila. Spurn- ingin er fyrst og fremst sú hvort vatnið í Vestmannaeyjum eigi að vera miklu dýrara en annað vatn í landinu. Ef rík- ið kemur ekki til móts við þá þurfa þeir að hækka gjöldin. Mér finnst þetta spurning um jafnræði og því tel ég mjög eðlilegt að ríkið komi að með styrkjum. Í gegnum tíðina hafa Vest- mannaeyjar verið ein stærsta verstöð landsins og skilað gífurlegum tekjum í ríkissjóð. Við þurfum á vatninu að halda,“ segir Árni. Aðspurður um gagnrýni á þá kröfu fyrirtækisins að ríkið greiði stóran hluta verksins segist Júlíus virða öll sjónarmið. Hann segir markmið hita- veitunnar að tapa ekki á framkvæmd- inni. „Við erum ekki að fara að græða á þessu en við viljum að sjálfsögðu ekki tapa heldur. Sú er grunnhugsunin. Hinn valkosturinn er sá að keyra allar gjaldskrár í topp og við höfum heim- ildir fyrir því í lögum. Við viljum reyna að koma framkvæmdinni niður í það að vera núlldæmi fyrir okkur. Menn geta alveg haft þá skoðun að við eig- um að greiða þetta en það er ekki okk- ar skylda. Við lítum hins vegar á þetta sem skylduverkefni opinberra aðila og vonandi tekur fjárveitingavaldið vel í beiðni okkar,“ segir Júlíus. DV Fréttir miðvikudagur 10. október 2007 7 Frjálslyndir ósáttir við vinnubrögð bæjarstjórnar á Akranesi: Bæjarfulltrúi botnar ekki í frjálslyndum „Ég veit ekki hvað Magnús er að fara,“ segir Karen Jónsdóttir, formað- ur bæjarráðs Akraness og fulltrúi frjálslyndra og óháðra, um þær yf- irlýsingar Magnúsar Þórs Hafsteins- sonar, varaformanns Frjálslynda flokksins, að bæjarstjórnarsamstarf frjálslyndra og Sjálfstæðisflokks á Akranesi sé í uppnámi. Hún vísar því alfarið á bug að far- ið sé að hrikta í meirihlutasamstarf- inu. Magnús er varamaður Karenar. „Ég tel mig vita hvernig meirihluta- samstarfinu er hagað,“ segir hún og bendir á að Gunnar hafi gefið henni upplýsingar um sameining- una strax eftir stjórnarfundinn. Hún segir ennfremur að ef Magnús hefði spurst fyrir hefði hann einnig feng- ið þær. „Þetta veldur ákveðinni spennu og óánægju. Við erum bara að láta þá óánægju í ljós,“ segir Magnús Þór Hafsteinsson, varabæjarfulltrúi á Akranesi, um vinnubrögð sjálfstæð- ismanna í bæjarstjórn í málefnum Orkuveitu Reykjavíkur, en Akranes- kaupstaður á sex prósenta eignar- hlut í henni. Magnús segir frjáls- lynda ekki hafa fengið upplýsingar um sameiningu Reykjavíkur Energy Invest og Geysis Green Energy eins og eðlilegt væri. Meirihluta á Akranesi skipa sjálf- stæðismenn ásamt einum fulltrúa frjálslyndra og óháðra. „Það er mikil ólga og reiði innan Frjálslynda flokksins vegna þessara mála,“ segir Magnús sem er varafor- maður flokksins. Hann undrast að Gunnar Sigurðsson, oddviti bæjar- stjórnar Akraness og fulltrúi sjálf- stæðismanna, hafi ekki haft samráð við samstarfsfólk sitt í bæjarstjórn. „Hann bara fer á stjórnarfundi og greiðir atkvæði,“ segir Magnús hneykslaður á því að Gunnar hafi á stjórnarfundi OR greitt því atkvæði að hún yrði gerð að hlutafélagi. „Það stóð aldrei til að fara að hræra í Orkuveitunni,“ segir Magnús. „Síð- an fréttum við bara af þessu í fjöl- miðlum.“ Honum finnst vanta mikið upp á upplýsingaflæði innan bæjar- stjórnarinnar. Fulltrúar Samfylkingar og Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs á Akranesi hafa einnig lýst yfir óánægju með vinnubrögð í tengslum við sameininguna. erla@dv.is Magnús Þór Hafsteinsson magnús segir frjálslynda ekki hafa verið upplýsta um sameiningu rei og geysis green energy. Stjórnendur Hitaveitu Suðurnesja hafa leitað til íslenska ríkisins eftir fjárstyrk til að leggja nýja vatnslögn til Vestmannaeyja. Fyrirtækið vill ekki tapa á hinni dýru fram- kvæmd og telur eðlilegt að ríkið styrki svona verkefni. Grétar Mar Jónsson, þingmaður Frjálslynda flokksins, telur ljóst að nýir eigendur hitaveitunnar vilji með þessu ekki ráðast í óarðbært verkefni og komi því yfir á ríkið. VILJA PENING FRÁ RÍKINU TrausTi HafsTeinsson blaðamaður skrifar: trausti@dv.is „Hinn valkosturinn er sá að keyra allar gjaldskrár í topp og við höfum heim- ildir fyrir því í lögum.“ sjálfsagt mál Árni Johnsen segir ekki hægt að krefjast þess að hitaveitan leggi vatnslögnina á sinn kostnað. skrýtnar kröfur grétar mar Jónsson segir ótækt að Hitaveitan hirði gróðann en vilji að aðrir borgi dýrar framkvæmdir. svartsengi Forsvarsmenn Hitaveitu Suðurnesja vilja 600 milljónir úr ríkissjóði til að leggja vatnslögn til vestmannaeyja. VILJA REKA GUðmUNd þessu ferli stóðu hafa ekki gætt hags- muna sinna umbjóðenda. Á Vestur- löndum hefur það tíðkast um ára- tugaskeið að stjórnmálamenn axli ábyrgð sinna gerða. Það sama á að gilda á Íslandi,“ segir Bjarni. Átakamikil saga Saga Reykjavik Energy Invest er stutt en afar átakamikil síðustu vik- urnar. Miklar deilur spruttu upp inn- an borgarstjórnar vegna ákvörðunar um sameiningu REI og Geysis Green Energy. Farið hefur verið fram á að borgarstjóri og fulltrúi Framsókn- arflokks í borgarstjórn víki úr borg- arstjórn vegna málsins. Stjórnarfor- maður Orkuveitu Reykjavíkur var látinn fjúka og nú síðast er borgar- stjóri sagður ljúga. Hann og Björn Ingi Hrafnsson eru í nauðvörn vegna málsins. Guðmundur og Björn Ingi eru báðir hissa á borgarstjóranum og báðir segja þeir borg- arstjóra hafa haft allar upplýsingar um sameininguna, þar á meðal um kaupréttar- samninga. Gæti misst starfið Sjálfstæðis- menn eru afar ósáttir við guðmund Þóroddsson sem er í leyfi frá orkuveitu reykjavíkur vegna starfa sinna hjá reykjavik energy invest. Þeir vilja losna við hann úr starfi hjá orkuveitunni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.