Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2007, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2007, Blaðsíða 22
miðvikudagur 10. október 200722 Fókus DV í kvöld Friðarmyndir Í tilefni þess að kveikt var á Friðarsúlu yoko ono á afmælisdegi Johns Lennon í gær hafa leikskóla- og grunnskólabörn í japönsku borginni Chiryu og reykvísk börn úr leikskólunum Hálsakoti, Fálkaborg og Steinahlíð og grunnskólanum víkurskóla velt fyrir sér „friði“ og teiknað og málað myndir sem þeim hefur fundist lýsa friði best. myndirnar eru nú til sýnis í borgarbókasafni reykjavíkur. á m i ðv i k u d e g i Guðrún fær fimm stjörnur Þau mistök urðu í DV í gær að með dómi Jóns Viðars Jónssonar um Ævintýri í Iðnó – söguveislu með Guðrúnu �smundsdóttur voru einungis birtar fjórar stjörnur. Eins og kannski ráða má af dóminum gefur Jón Viðar sýningunni fullt hús, eða fimm stjörnur, líkt og greint var frá á baksíðu blaðsins. Þetta leiðréttist hér með. Heims- þekktur gítarleikari Hinn heimsþekkti gítarleikari Manuel Barrueco heldur ein- leikstónleika í Salnum í Kópa- vogi í kvöld kl. 20. Barrueco er mörgum landsmönnum að góðu kunnur fyrir einleikstón- leika sína á Listahátíð Hafnar- fjarðar árið 1993 og þegar hann kom fram sem einleikari með Sinfóníuhljómsveit Íslands árið 1999. Í bæði skiptin hlaut hann afburða dóma. � tónleikunum í Salnum leikur Barrueco meðal annars Sónötu í g-moll BWV 1001 eftir Bach og Tango-Études eftir Astor Piazzolla. Svartálfadans í norræna húsinu Guðrún Jóhanna Jónsdóttir sópran og Agnes Löve píanóleikari flytja sönglagaflokkinn Svartálfadans eftir Jón �sgeirsson á Háskólatón- leikum í dag. Lögin eru samin við ljóð úr samnefndum ljóðaflokki Stefáns Harðar Grímsson- ar. Tónleikarnir fara fram í Norræna húsinu og hefjast kl. 12.30. Aðgangseyrir er 1000 krónur, 500 krónur fyrir eldri borgara og öryrkja en ókeypis fyrir nemendur Háskóla Íslands. SuShiStaður Sem lofar góðu Sushi virðist njóta vaxandi vin- sælda hjá landsmönnum. Veitinga- og skyndibitastöðum sem bjóða upp á þennan forna japanska rétt fer allavega fjölgandi og á dög- unum var Sushibarinn svokallaði opnaður á Laugavegi 2. Aðeins tveir sátu þarna inni þegar undir- ritaður gekk inn í þröng húsakynn- in þegar klukkan nálgaðist eitt á mánudegi og fékk ég því afgreiðslu pronto. Úrval rétta er afar fjölbreytt og ákvað ég að skella mér bara á það sem ein stúlka sem ég kann- ast við mælti með þegar ég mætti henni í dyrunum, hinum bragð- sterku túnarúllum eins og þær kall- ast á matseðlinum. Viðkunnanleg afgreiðslustúlkan tók niður pönt- unina en svaraði neitandi þegar ég prófaði að vera með vesen og spurði hvort hægt væri að fá að- eins helminginn af þeim sex rúll- um sem skammturinn samanstóð af, og þá þrjár rúllur af einhverri annarri tegund. Ég reiddi fram 900 krónurnar sem rétturinn kostaði – sanngjarnt verð myndi ég segja sem og fyrir aðra rétti matseðilsins – og fékk mér svo sæti. Hefði viljað setj- ast í eitt þeirra þriggja sem eru við gluggann en áðurnefndir tvímenn- ingar (helvískir!) höfðu dreift þar úr sér. �tta viðunandi mínútur liðu þar til ég fékk rúllurnar. Hefði samt viljað hafa úr meira lesefni að velja en eintaki af Grapevine og einhverj- um glansbæklingi. Í stuttu máli voru túnarúllurnar ljúffengar en voru þó ekki alveg jafnsterkar og ætla mætti af nafninu. Nóg wasabi er hins veg- ar á diskinum til að dýfa í fyrir þá sem vilja meiri styrk. Í heildina var ég mjög sáttur við þessa ferð á hinn nýja Sushibar á Laugaveginum. í skyndi Góð viðbót við fjölbreytta veitingahúsa- flóru miðborgarinnar. kRISTJÁN hRAFN gUÐMUNDSSON fór á Sushibarinn. Fyrirlestraröð um glæpasögur Fyrirlestraröð um glæpasögur hefst í Amtsbókasafninu á Akureyri í dag kl. 17.15. Það er framhaldsskóla- kennarinn Kristín �rnadóttir sem mun halda fyrirlestrana, enda er hún í algjör- um sérflokki þegar kemur að kunnáttu í glæpasögum að því er fullyrt er í tilkynn- ingu. Fyrirlestrarnir hjá Kristínu verða alls fjórir, eða alla miðvikudaga í október. Bækur höf- unda sem fjallað er um eru til kynn- ingar og lestrar á Amtsbókasafninu. Yfirskrift fyrirlestrar dagsins er Upp- haf sakamálasagna. hRAÐI: HHHHH MATUR: HHHHH VIÐMóT: HHHHH UMhVeRFI: HHHHH VeRÐ: HHHHH K arl og kona hittast eftir margra ára aðskilnað. Hann er nær sextugu, hún að nálgast þrítugt. Þegar hún var tólf ára og hann um fertugt áttu þau í kynferðislegu sambandi um hríð. Þau vilja bæði trúa því að þau hafi verið ástfangin, alvöru elsk- endur; áhorfandinn er kannski ekki eins sannfærður um það. Sambandið lagði líf þeirra í rúst; hann var dæmdur í fangelsi, þar sem hann var úthrópaður barna-perri, hún mátti þola útskúfun og niðurlægingu í fjölskyldu og nánasta umhverfi, varð „nymfoman“, sjúk í skammvinn kynferðissambönd með körlum. Hún situr enn föst í hatrinu og reiðinni yfir því sem gerðist, hann hefur skipt um nafn, farið í aðra borg, er kvænt- ur og kominn í nýtt starf, en óttast stöðugt að hið liðna dragi hann uppi. Það er ekki góð blanda, ótt- inn, reiðin og hatrið, þegar þau mætast er voðinn vís. Í þessari sýningu er leikið af miklum þunga strax frá upphafi. Leikendurnir, Sólveig Guð- mundsdóttir og Pálmi Gestsson, draga ekkert af sér og hirða lítt um hin fínlegri blæbrigði sem leikstjórinn virðist ekki heldur hafa gert sér far um að nostra við. Hann er erlendur – raunar eigin- maður leikkonunnar – og ég les í blöðum að hann kunni ekki íslensku. Svartur fugl er mikið texta- verk og þarf sannarlega á leikstjóra að halda sem kann tungumálið. Ég hugsa að þýðing Hávars sé yfirleitt góð, en stundum hljómaði textameðferð- in sérkennilega. Yfir leik þeirra Pálma og Sólveig- ar er einhver frosinn stjarfi sem verður óneitan- lega einhæfur, þegar til lengdar lætur, en hæfir þó hinu ókræsilega efni á einhvern hátt vel. � pörtum nær leikur þeirra sterkum áhrifum, en heildaryfir- bragðið er heldur hrátt. Leikritið vakti mikla athygli þegar það var frumsýnt á Edinborgar-hátíðinni fyrir tveimur árum undir stjórn ekki ómerkari leikstjóra en Pet- ers Stein. Síðan hefur það verið sýnt víða, meðal annars í West-End í London, auk þess sem það hefur fengið Laurence Olivier-verðlaunin. Þetta er grimmt verk og líklegt til að kalla fram sterkar til- finningar hjá áhorfendum. Persónurnar tvær tak- ast á í harðvítugu uppgjöri; framan af virðist karl- inn ætla að verða undir, en síðan sækir hann í sig veðrið og að lokum veit áhorfandinn ekki hvort þeirra er sekara. Það er ugglaust tilætlun höfund- ar: að skilja okkur eftir í spurn, neyða okkur til að horfast í augu við hluti sem við viljum helst sópa undir teppið. Er ekki annars kjörið að bjóða upp á umræður eftir sýningu verksins? Þó þá myndi ég að vísu mæla með því að sálfræðingur, félagsráð- gjafi eða einhver fagaðili, með sérþekkingu á mál- um af þessu tagi, myndi stýra umræðum. Sviðið er allt hið hráslagalegasta. Leikið er á stórum gólffleti Hafnarfjarðarleikhússins frammi fyrir upphækkuðum sætum áhorfenda og rýmið er yfirleitt vel nýtt af leikstjóranum. Fjarlægðin milli persónanna er mikil, í raun og veru óbrúanleg. Leikurinn gerist í mötuneyti stórfyrirtækis, allt út- vaðandi í ónýtum matarumbúðum og farið langt yfir strik realismans í útfærslunni; þessi sviðsgerv- kvenfélagið garpur og HafnarfjarðarleikHúsið: svartur fugl eftir david Harrower. Þýðing: Hávar Sigurjónsson. Leikstjórn/sviðshönnun: graeme maley. Lýsing: garðar borgþórsson. Tónlist: brian docherty. HHHHH leikdómur Jón Viðar Jónsson leiklistargagnrýnandi Svartnætti í Hafnarfirði Svartur fugl Leikritið er eftir Skotann david Harrower og fékk hin virtu Laurence olivier-verðlaun. MyND BJöRN SNORRI ing er symbólsk – of symbólsk fyrir minn smekk. Það jaðrar við að verið sé að velta sér upp úr óhrjá- leikanum sem er nógur fyrir í verkinu sjálfu. Tón- listareffektar Brians Docherthy eru harðir og há- værir, en mynduðu nauðsynleg uppbrot, féllu vel að flæði leiksins. Eru þeir annars samdir sérstak- lega fyrir þessa sýningu? Ég finn ekkert um það í leikskránni. Samkvæmt leikskránni eru leikendur aðeins tveir. Undir lok leiksins birtist þó ung stúlka á sviðinu og á þar stutt atriði. Hennar er ekki getið í skránni, nema það sé sú sem fær þar „sérstakar þakkir“ fyrir eitthvað ótilgreint. Ég þykist svo sem vita af hverju þetta er gert, en mér finnst það engu að síður ekki kurteislegt, hvorki við leikandann né áhorfendur. Leiksýningin er bönnuð innan fjórtán. Til þess er sannarlega full ástæða. En það er ekki nóg að gera það bara í leikskránni, svo enn sé vísað til hennar. Það þarf líka að koma fram í auglýsingun- um.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.