Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2007, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2007, Blaðsíða 20
miðvikudagur 10. október 200720 Besti vinur mannsins DV Hverrar tegundar eru þínir hundar? „Ég á fjóra dverg-schnauzer-hunda sem eru allir á mismunandi aldri. Sá elsti er að verða sex ára en sá yngsti er sjö mánaða.“ Þjálfar þú þá mikið? „Já, ég geri það. Þetta eru allt sýningar- hundar sem ég var að sýna núna um síð- ustu helgi.“ Hvernig gekk sú sýning? „Það gekk ofsalega vel. Ég var að sýna samanlagt 11 hunda sem eru úr minni ræktun, þótt ég eigi þá ekki alla sjálf. Mörg- um þeirra hafði gengið svo vel á sýning- unni að ég ákvað að keppa með ræktun- arhóp. Þá valdi ég fjóra hunda úr tveimur gotum sem voru sýndir með fullt af öðrum tegundum hunda. Ég var mjög ánægð með að geta sýnt úr minni ræktun og árangur- inn var framar vonum því ég var valin með besta ræktunarhóp laugardagsins. Það er gaman að fá viðurkenningu á því sem mað- ur er að gera.“ Hefur þú átt hund áður? „Ég er búin að vera með hunda frá því ég var krakki.“ Hvernig myndir þú lýsa dverg-schnauz- er-hundum? „Í mjög stuttu máli eru þetta keludýr en töffarar. Þeir hafa mikinn karakter og eru skemmtilegir þess vegna. Þeir eru fljótir að læra, eru gáfaðir, vingjarnlegir og taka öll- um jafnt, ungum sem öldnum. Þótt þeir séu litlir eru þetta alvöru hundar. Þótt þeir séu bara sjö kíló eru þeir kraftmiklir og geta auðveldlega gengið með manni á fjöll. Þeir eru algjörar kelirófur og finnst æðislegt að kúra hjá mér uppi í rúmi. Stundum er ég með þá alla uppi í rúmi og karlinn líka. Nei, nei, það er nú kannski ekki algengt en þeir eru mjög nánir okkur.“ Hvernig er að hafa þessa hunda í borg? „Þeir eru tilvaldir til að hafa í borg. Þeir eru mjög rólegir og þægilegir þannig að maður veit stundum ekki af þeim. Þeir eru hljóðlátir og fyrirferðarlitlir.“ Hvernig finnst þér aðstaðan til hunda- halds vera í Reykjavík? „Aðstaðan mætti vera miklu betri. Mér finnst mikið verið að ýta hundafólki til hlið- ar. Það er mjög víða sem er bannað að vera með hunda. Ég hef ferðast með hunda er- lendis og það er allt annað líf að vera með þá þar. Íslendingar eru með fordóma gagn- vart hundum. Það er ennþá ríkjandi við- horf hjá Íslendingum að hundar séu eitt- hvað ógeðslegir og að þeir séu miklir sóðar. Það má fara með hunda út um allt á hin- um Norðurlöndunum, hvort sem það er á hótelherbergi eða veitingastaði. Þetta er bara hluti af menningunni, alls staðar nema hér. Það vantar hundamenningu á Íslandi. Það hlýtur að fara að gerast sam- hliða auknu hundahaldi. Hundaeigendum fjölgar stöðugt og vonandi fer viðhorf fólks að breytast gagnvart hundum og eigendum þeirra.“ Margrét Ásgeirsdóttir, hundaræktandi Íslendingar fordómafullir gagnvart hundum besti vinur mannsins

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.