Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2007, Page 15

Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2007, Page 15
DV Sport miðvikudagur 10. október 2007 15 Sport Miðvikudagur 10. október 2007 sport@dv.is HK fer til Kaupmannahafnar AZ Alkmaar mætir Everton kr mun verja titilinn í körfubolta karla og keflavík verður íslandsmeistari kvenna en árleg spá fyrirliða og forráðamanna var kunngjörð í gær. bls. 16 og 17. Bjarni Jóhannsson aðstoðar- landsliðsþjálfari tók í gær við liði knattspyrnuliði Stjörnunnar í Garða- bæ og mun hann verða með liðið næstu þrjú árin ef að líkum lætur. Í yfirlýsingu frá Stjörnunni kemur fram að liðið hafi miklar væntingar til Bjarna sem þjálfara og að stefnt sé að því að vinna sér sæti í Lands- bankadeild karla á næsta ári. Bjarni telur þetta vera mjög spenn- andi verkefni. „Mér líst vel á þetta starf enda góðir og spennandi tím- ar fram undan. Það á að setja meiri kraft í þetta og það er hið besta mál. Þetta eru ungir og efnilegir strákar og það er krefjandi verkefni að taka þetta starf að sér. Maður er náttúrlega fyrst og fremst þjálfari og það hefur alltaf kitlað að fara í þennan slag. Það eru mjög mörg spennandi lið á Íslandi að þjálfa og Stjarnan er eitt þeirra. Þarna er frábær aðstaða og forráðamenn fé- lagsins eru staðráðnir í að styðja vel við bakið á liðinu. Það heillaði mig og þessi ungi leikmannahópur og önn- ur umgjörð eru til fyrirmyndar. Það er mjög spennandi verkefni að reyna að koma liðinu upp í úrvalsdeild. Því fyrr sem það tekst, því betra. Ef vel er haldið á spöðunum á það að takast á næstu árum. Önnur lið hafa svo sem verið í myndinni en ég hef ekki farið í við- ræður við neitt annað lið en Stjörn- una. Ég hef farið víða að þjálfa og þessar viðræður við Stjörnuna heill- uðu mig og ég ákvað að taka þetta að mér.“ Ragnar Árnason, formaður meist- araflokksráðs, er mjög ánægður með að hafa fengið Bjarna til starfa. „Okk- ur líst mjög vel á Bjarna og hann er stór fengur fyrir félagið. Hann hefur frábæra reynslu og náð mjög góðum árangri. Hann hefur bæði reynslu af því að vera með topplið og lið sem hafa þurft að byggja sig upp eins og Breiðablik er dæmi um. Það fylg- ir honum kraftur og við þekkjum til hans. Við þurfum vissulega að styrkja aðeins liðið en það er samt reynsl- unni ríkari frá því í fyrra. Í því eru margir gríðarlega efnilegir leikmenn en það sem hefur vantað í það er náttúrlega meiri reynsla. Við ætlum engu að síður að reyna að halda öll- um okkar mönnum en lið sem lendir í 8. sæti í deildinni og er með óbreytt- an mannskap þarf á fleiri leikmönn- um að halda. En við erum ekkert að fara að kaupa heilt lið, það þarf bara réttu leikmennina inn í þetta,“ segir Ragnar Fyrstu deildar lið Stjörnunnar í knattspyrnu réð í gær Bjarna Jóhannsson til að taka við þjálfun liðsins: Bjarni jóhannsson tekur við stjörnunni spáð sigri Nýr þjálfari Stjörnunnar bjarni Jóhannsson tók í gær við þjálfun Stjörnunnar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.