Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2007, Qupperneq 16
miðvikudagur 10. október 200716 Sport DV
Santa Cruz gæti
þurft í aðgerð
Svo gæti farið að Roque Santa Cruz,
leikmaður blackburn, þurfi að fara í
aðgerð vegna skaddaðrar vöðvafest-
ingar. Santa Cruz
hefur dregið sig
út úr landsliðs-
hópi Paragvæ
vegna
meiðslanna.
„Santa Cruz
meiddist í leik
með blackburn
um síðustu helgi
og það er líklegt
að hann þurfi að fara í aðgerð,“ segir í
yfirlýsingu frá knattspyrnusambandi
Paragvæ. Forráðamenn blackburn
komu af fjöllum þegar þeir voru spurðir
um málið í gær.
Bíður þolinmóður
Norberto Solano, leikmaður West Ham,
segist vera tilbúinn að bíða eftir sínu
tækifæri með liðinu. West Ham keypti
Solano frá
Newcastle í
ágúst og svo
virðist sem
leikmaðurinn
hafi ekki náð að
heilla alan
Curbishley,
stjóra félagsins,
upp úr skónum,
því Solano hefur
ekki leikið eina mínútu fyrir West Ham.
„Ég hef ekki áhyggjur þótt ég hafi ekki
enn spilað leik fyrir West Ham. Ég veit
að enska deildin er rétt að byrja og ég
bý yfir mikilli reynslu,“ segir Solano.
ajax óSátt við ten Cate
Forráðamenn ajax eru ósáttir við
framgöngu þjálfarans Henk Ten Cate á
undanförnum
dögum. ten Cate
á í viðræðum við
Chelsea um að
taka við
þjálfarastöðu hjá
liðinu eftir að
ajax og Chelsea
komust að
samkomulagi.
„Henk ræddi við
Chelsea í síðustu viku. Í kjölfarið hitti
hann stjórnina og sagði að hann vildi
fara til Chelsea. Henk sagði að hann
væri ákveðinn og að við ættum engra
kosta völ. við vildum ekki starfa með
þjálfara sem var með hugann við
Chelsea. Það hefði átt að fara öðruvísi
að málum,“ segir martin van geel,
tæknilegur ráðgjafi hjá ajax.
man. united er Betra
en arSenal
Carlos Tevez, leikmaður manchester
united, segir að þrátt fyrir að arsenal sé
á toppi deildarinnar sé manchester
united með
betra lið.
„arsenal er í efsta
sæti deildarinn-
ar, en manchest-
er united er
líklegra til að
vinna titilinn og
meistaradeildina.
Ég tel að við
munum sýna
það og sanna í leikjum gegn helstu
andstæðingum okkar. united hefur
sérstaka leikmenn innanborðs og
Cristiano ronaldo er besti leikmaður
úrvalsdeildarinnar,“ segir tevez.
ferguSon gæti reiðSt Saha
Patrice evra, leikmaður manchester
united, segir að Louis Saha, félagi evra
hjá liðinu, gæti lent upp á kant
við sir alex Ferguson, stjóra
manchester united, ef hann
spilar landsleikinn
með Frökkum á
laugardaginn. „Saha
verður klár í slaginn
gegn Færeyjum og
það gæti angrað sir
alex Ferguson. Hann mun
fara með liðinu á
fimmtudaginn. Hann
mun ekki taka
áhættu. Það kæmi
mér ekkert á óvart
ef hann myndi
spila og það gæti
farið í taugarnar á
Ferguson,“ segir
evra.
enSki Boltinn
HK mætir danska liðinu FC Köb-
enhavn í EHF-keppninni í hand-
bolta, en dregið var í gær. Fram dróst
gegn tyrkneska liðinu Ankara í Áskor-
endakeppni Evrópu og svo gæti farið
að Fram kaupi heimaleik tyrkneska
liðsins hingað heim.
„Svona upp á það að komast
áfram erum við kannski óheppnir
en ég held reyndar að við séum sáttir
við þennan drátt. Það sem var í boði
var til dæmis Rússland.
Þetta er stutt ferðalag og ég segi
að það sé bara frábært að fá jafn-
sterkt lið og FCK í Digranesið. Það er
bara upplifun,“ segir Gunnar Magn-
ússon, aðstoðarþjálfari HK, sem tel-
ur þó möguleika HK á að komast
áfram ekki mikla.
„FCK er eitt af betri liðum þessar-
ar keppni og eitt af betri liðum Evr-
ópu. Ég gef okkur ekki mikla mögu-
leika á að komast áfram en hins vegar
er þetta þægilegt ferðalag og gam-
an að mæta Íslendingum. Þannig
að þetta er bara spennandi ferðalag.
Möguleikinn er að vinna heimaleik-
inn, það er raunhæft,“ segir Gunnar
en Íslendingarnir Arnór Atlason og
Gísli Kristjánsson leika með danska
liðinu.
Fyrri leikur liðanna fer fram í
Digranesi fyrstu helgina í nóvember
og sá síðari í Kaupmannahöfn, helg-
ina eftir. Gunnar segir að nú þegar sé
byrjað að skipuleggja ferð á leikinn
ytra.
Magnús Jónsson, aðstoðarþjálf-
ari Fram, segir að til standi að kaupa
útileikinn gegn Ankara hingað heim
eða að selja heimaleikinn til Tyrk-
lands.
„Þetta er lið sem við ættum að
geta unnið. Þetta er bara svolítið dýrt
ferðalag og það situr svolítið í okkur.
Ég reikna fastlega með því að selja
heimaleikinn út eða að við kaup-
um þeirra heimaleik hingað,“ segir
Magnús og bætir við að hann viti lít-
ið um tyrkneska liðið.
„Sergei Serenko var að spila
þarna áður en hann kom til Fram,
fyrir þremur árum. Tite Kalandadze
spilaði líka í tyrknesku deildinni
áður en hann kom hingað. Þannig að
maður gæti rekist á einhverjar skytt-
ur. Ég held samt að það ætti að vera
nokkuð þægilegt fyrir okkur að kom-
ast áfram, með eðlilegum leik. Svo
getur allt gerst í þessu,“ segir Magn-
ús. Leikirnir fara fram fyrstu og aðra
helgina í nóvember.
dagur@dv.is
HK mætir FC KöbenHavn
HK og Fram voru bæði í pottinum þegar dregið var í Evrópukeppninni í handbolta:
Erfiður leikur fram undan
Hk mætir danska liðinu FC köbenhavn í
eHF-keppninni í handbolta. með danska
liðinu leika Íslendingarnir arnór atlason
og gísli kristjánsson.
KR-ingar urðu efstir í spá þjálfara og
leikmanna í Iceland Express-deild-
inni. Liðið fékk 398 stig af 432 mögu-
legum en í öðru sæti er Snæfell með
376 stig og Grindavík með 348.
Fjölni og Tindastóli er spáð falli
úr deildinni en nýliðar Stjörnunnar
munu bjarga sér ef marka má spána.
Þjálfarar og leikmenn eru sam-
mála um að deildin sé sterkari í ár
en undanfarin tímabil enda hafa
flest liðin bætt við sig fjölda erlendra
leikmanna. Fimm lið eru talin lík-
legust til að berjast um titilinn en at-
hygli vekur að Keflvíkingum er spáð
fimmta sætinu en það er til marks
um hve deildin er sterk í ár.
KR verður höktandi í fyrstu
Fannar Ólafsson, fyrirliði KR,
bjóst við því að þeim yrði spáð efsta
sæti. „Spáin leggst vel í mig enda
erum við efstir í henni. Við þessu
var svo sem að búast enda erum við
meistarar frá því í fyrra og búnir að
bæta við okkur mönnum.
Við eigum mikið eftir að
bæta okkur og fólk þarf
að vera þolinmótt í okk-
ar garð. Við erum með
fjóra nýja í liði okkar sem
við eigum eftir að spila
inn í liðið. Við verðum
því höktandi fyrstu mán-
uðina. Við erum ekki að
spila eins vel og við get-
um í sókn en vörnin er
fín. Við erum svo sem
ekkert að leitast eftir því
að toppa núna. Hópurinn
er náttúrlega rosa fínn og
þetta eru allt mjög heilir
strákar. Það taka í raun-
inni allir liðið fram yfir eigin hags-
muni og það er merkilega rólegt á
æfingum. Menn eru lítið með egó-
ið uppi sem er ólíkt því sem maður
hefði haldið fyrirfram. Það er fullt af
góðum leikmönnum sem geta spilað
og við stefnum að því að byggja góða
liðsheild. Þannig unnum við í fyrra.
Ég tel að fimm lið geti unnið
deildina og mín tilfinning er sú að
Keflavíkurliðið sé illilega vanmetið.
Að mínu mati er það á meðal þeirra
þriggja bestu. En það er
öllum liðum mikilvægt að
byrja tímabilið vel og all-
ir verða að forðast það að
misstíga sig í byrjun,“ seg-
ir Fannar.
Snæfellingum er spáð
öðru sæti en liðið hef-
ur að mestu haldið sín-
um mönnum og bætt við
sig leikmönnum að auki.
Snæfell féll úr leik í hörku-
rimmu í úrslitakeppninni
gegn KR og ætlar sér ef-
laust góða hluti. Lið-
ið byrjaði vel og vann
KR á dögunum í úrslit-
um Powerade-bikarsins.
Grindavík og Keflavík ætla sér einn-
ig stóra hluti en bæði lið eru skipuð
mörgum góðum leikmönnum.
Njarðvík stefnir alltaf á titilinn
Njarðvíkingum er spáð fjórða
sætinu í deildinni en Teitur Örlygs-
son segir liðið stefna ótrautt á meist-
aratitilinn. „Mér finnst þessi spá ansi
raunhæf. Við misstum náttúrlega átta
leikmenn, erum með nýjan þjálfara
og aðeins einn útlending af þessum
sextíu sem eru í deildinni. Hvað sem
því líður er hópurinn góður og ef allt
fer vel með Frikka (Friðrik Stefáns-
son) erum við með svona níu manna
kjarna sem er góður. Það er mjög
gott fyrir mig og ég get þá róterað
leikmönnum sem er fínt. Við stefn-
um klárlega á titilinn eins og alltaf í
Njarðvík. Okkur hefur verið spáð titl-
inum undanfarin ár og nú er okkur
spáð fjórða sætinu en markmiðið er
alltaf það sama,“ segir Teitur.
Fjölnismönnum spáð falli
Bárður Eyþórsson, þjálfari Fjölnis,
er ánægður með hópinn og telur lið-
ið geta afsannað allar hrakspár. „Spá
er bara spá en við þurfum náttúrlega
að afsanna hana og standa okkur. Ég
er hvergi banginn því við erum með
fínan hóp og jafna leikmenn þó eng-
inn sé landsliðsmaður. Mér líst nokk-
uð vel á þetta og er jákvæður. Liðin
koma misjafnlega undirbúin til leiks
eftir undirbúningstímabilið og það
er ekkert lélegt lið í deildinni. Það
sem hefur breyst frá því áður er að
þú þarft alltaf að leggja mikið á þig
til þess að vinna leiki og standa þig í
þessari deild,“ segir Bárður.
KR-ingum spáð
meistaRatitlin m
Íslandsmeisturum KR er spáð Íslandsmeistaratitlinum af þjálfurum, fyrirliðum og for-
ráðamönnum Iceland Express-deildarinnar í körfuknattleik:
ViðaR GuðjóNSSoN
blaðamaður skrifar: vidar@dv.is
Spáin í
karlaflokki:
lið stig
kr 398
Snæfell 376
grindavík 348
Njarðvík 327
keflavík 296
Skallagrímur 246
Ír 229
Hamar 141
Þór ak. 129
Stjarnan 118
Fjölnir 117
tindastóll 84
KR-ingum spáð sigri kr verður
meistari í vor ef spá fyrirliða, þjálfara
og forráðamanna gengur eftir.