Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2007, Page 4
fimmtudagur 25. október 20074 Fréttir DV
Fundað í 75 ár
Fimm þúsundasti fundur
ráðsins verður haldinn í dag. Vil-
hjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti
Sjálfstæðisflokks og fyrrverandi
borgarstjóri, er einn þeirra sem
setið hafa yfir þúsund borgar-
ráðsfundi. Bæjarráð fundaði í
fyrsta skipti 4. ágúst 1932 en þá
var Reykjavík aðeins bær.
Undanfarin ár hafa um 1.200
mál verið afgreidd árlega af
ráðinu. Dregið hefur nokkuð úr
fjölda þeirra vegna breytts vinnu-
lags og embættisafgreiðslna.
Ofsahraði endaði
á ljósastaur
Mikil mildi þykir að ekki varð
stórslys þegar 25 ára ökumað-
ur missti stjórn á BMW-bifreið
sinni í fyrrakvöld. Slysið varð á
Kringlumýrarbraut á móts við
Nesti en bílnum var ekið á ofsa-
hraða norður Kringlumýrar-
braut.
Ökumaðurinn missti bílinn
upp á kant, fór yfir umferðareyju
og kastaðist þaðan upp á ljósa-
staur sem bognaði niður í göt-
una við áreksturinn. Loka þurfti
Kringlumýrarbraut í báðar áttir í
um tvær klukkustundir. Brak-
ið af bílnum dreifðist yfir mjög
stórt svæði og mikil mildi þykir
að hann hafi ekki farið á bíla sem
komu á móti. Ökumaðurinn og
farþegi bifreiðarinnar sluppu án
teljandi meiðsla.
Fær 110 þúsund
króna sekt
Lögreglan á höfuðborgar-
svæðinu var með sérstakt um-
ferðareftirlit á Hafnarfjarðarvegi
á dögunum. Mikill fjöldi öku-
manna var stöðvaður í þessu eft-
irliti lögreglunnar og tólf kærðir
fyrir ýmis umferðarlagabrot.
Einn ökumaður gerðist sekur um
gróft brot á lögum um hámarks-
hraða en bifreið hans mældist
á 135 kílómetra hraða þar sem
hámarkshraði er 80 kílómetrar á
klukkustund. Hann má eiga von
á 110 þúsund króna sekt.
Hrasaði í bjargi
en slapp vel
Lögregla og björgunar-
sveitarmenn á Suðurnesjum
voru með nokkurn viðbún-
að vegna tilkynningar um að
maður hefði fallið í klettun-
um á Berginu við smábáta-
bryggjuna í Reykjanesbæ og
kynni að vera illa slasaður í
fjörunni. Í ljós kom að um 16
ára pilt var að ræða og hafði
hann hrasað um tvo til þrjá
metra í brattri skriðu. Hann
náði að hringja í vin sinn
sem hringdi í Neyðarlínuna
eftir aðstoð. Pilturinn komst
skömmu síðar af sjálfsdáð-
um upp og slapp hann með
nokkrar skrámur.
„Börn og foreldrar eru farin að tala
meira saman og við erum farin að sjá
jákvæðan árangur. Eitt af markmið-
unum er að brúa bilið þannig að for-
eldrar og börn tali sama tungumál,“
segir Guðberg Jónsson, verkefnis-
stjóri Samfélags, fjölskyldu og tækni,
SAFT, sem er vakningarátak um ör-
ugga og jákvæða netnotkun barna og
unglinga á Íslandi.
Myndabeiðnir ókunnugra
Samkvæmt niðurstöðum rann-
sóknar á vegum SAFT sem gerð var
af Capacent fyrr á þessu ári talar
tæplega helmingur ungmenna nú
mikið eða nokkuð mikið við foreldra
sína um það sem þau gera á netinu.
Svipuð könnun var gerð árið 2003 og
þá ræddi aðeins um fjórðungur op-
inskátt við foreldra um netnotkun.
Guðberg segist heyja jákvæða
baráttu. „Við erum ekki að reyna að
draga úr netnotkun heldur stuðla að
því að fólk komi sér saman um já-
kvæðar leikreglur til að umgangast
þennan skemmtilega miðil. Flestir
sem nota netið gera það á uppbyggi-
legan hátt. Við reynum hins vegar að
gera fólk meðvitað um þær hættur
sem þar geta leynst,“ segir hann.
Þeim börnum fækkar um átta
prósent á milli kannana sem hafa
hitt ókunnuga á netinu sem biðja um
mynd eða símanúmer. Salvör Giss-
urardóttir, lektor í upplýsingatækni
við Kennaraháskóla Íslands, telur að
fækkunin stafi af því að fólk sé orð-
ið vanara því að umgangast netið og
taki síður áhættu en áður. „Fólk var
ekki nógu varkárt í byrjun. Ég held
að áróður um örugga netnotkun hafi
skilað sér,“ segir hún.
Heimilistölvan á opnu svæði
„Börn og foreldrar eru á réttri leið
og það er gott að geta látið þau vita
af því. Mér sýnist okkur hafa tek-
ist nokkuð vel að eyða þeirri grýlu
að netið sé verkfæri hins illa,“ segir
hann. Niðurstöður könnunarinnar
benda til þess að börn byrji að nota
netið tæplega átta ára gömul og því
sé mikilvægt að vera meðvitaður um
kosti þess og galla. Þeim fjölgar sem
segja reglur um tölvunotkun gilda á
heimili sínu.
Salvör vekur athygli á því að sí-
fellt algengara verði að foreldrar hafi
heimilistölvuna á opnu svæði þannig
að auðveldara sé að fylgjast með net-
notkun barnanna.
28 prósent þeirra barna sem tóku
þátt í könnuninni sögðu að foreldr-
ar sætu hjá þeim „oft eða stundum“
þegar þau eru á netinu. Þegar for-
eldrar eru spurðir sömu spurning-
ar segjast 89 prósent þeirra sitja hjá
börnunum. Guðberg telur að þessi
munur skýrist af því að um 80 pró-
sent barna segja foreldra líta inn til
sín þegar þau eru á netinu og sextíu
prósent barnanna segjast geta notað
netið án vitundar foreldra.
Fræðsla fremur en síur
Frá 2003 hefur orðið 10 prósenta
aukning á því að foreldrar setji upp
sérstakar síur sem takmarka aðgang
að ákveðnum vefsíðun. Salvör er
ekki hlynnt þeirri leið. „Mér finnst
mun eðlilegra að fræða börnin. Það
er lagt mikið upp úr því í skólastarfi
að þeir séu netvæddir. Ég kenni upp-
lýsingatækni og lendi oft í því þegar
ég kem í skóla að það er lagt það mik-
ið upp úr netöryggi að ekki er hægt
að hlaða niður mikilvægu efni. Þegar
aðgengið er takmarkað eru það ekki
bara óæskilegu hlutirnir sem eru sí-
aðir frá,“ segir Salvör.
Á vefsíðu samtakanna, saft.is, má
finna margmiðlunarefni sem nýtist
börnum til að læra hvernig nota skal
netið á öruggan hátt.
NETÖRYGGI BARNA EYKST
Sextíu prósent barna segjast geta notað netið án vitundar foreldra. Börn eru meðvitaðri
en áður um netöryggi og ræða meira en áður við foreldra sína um hvað þau gera í net-
heimum. Færri börn fá beiðnir um mynd eða símanúmer frá ókunnugum.
Á netinu
börn byrja að meðaltali
tæplega átta ára að nota netið.
Erla Hlynsdóttir
blaðamaður skrifar: erla@dv.is
Sextíu prósent barn-
anna segjast geta not-
að netið án vitundar
foreldra.
„Það sem um ræðir er að ég vil fylgja eftir tilmæl-
um frá Sameinuðu þjóðunum og eins umræðu á
vettvangi Norðurlandaráðs um það að þjóðþing
setji starfsmönnum sínum ákveðnar siðareglur.
Þær fela í sér að opinberir starfsmenn kaupi ekki
kynlífsþjónustu í neinu formi í ferðum sínum í
útlöndum. Norðmenn hafa sett slíkar reglur, Svíar hafa
sett þær yfir alla þá sem starfa í utanríkisþjónustunni og
Rauði krossinn lætur alla sína starfsmenn undirgangast
þessa ábyrgð líka. Sama má segja um alla friðargæslu-
liða Sameinuðu þjóðanna eftir mjög alvarleg áföll og því
er mælst til þess að þessar reglur séu hafðar í heiðri. Ég held
að þetta geti aukið meðvitund okkar um þá ábyrgð sem hvílir á herðum
okkar um það að draga úr mansali, vændi og útþenslu klámiðnaðar-
ins. Norðurlandaráð hefur samþykkt að beina öllum sínum viðskiptum
til hótela sem gefa yfirlýsingu um að þau aðhafist ekki milligöngu um
kynlífsþjónustu af neinu tagi. Næsta skref er að mínu mati að tryggja það
að opinberir starfsmenn versli ekki við hótel sem bjóða upp á klámsýn-
ingar á herbergjum eða í innanhússkerfum. Það væri að mínu mati afar
áhrifamikil leið til að draga úr framleiðslu klámefnis.“
„Ég er alls ekki talsmaður þess að starfsmenn séu að versla sér kynlíf eða
skoða klám í ferðum sínum erlendis. Eins og ég skil þetta
frumvarp til laga er hins vegar ákveðin hugsanavilla í því
fólgin. Ég skil ekki tvo þætti þessa máls. Stjórnmálamenn
þurfa að átta sig á því að valdsvið þeirra er takmarkað.
Í fyrsta lagi geta þeir ekki náð lögum yfir alla óæskilega
breytni manna. Það er til dæmis ekki hægt að setja lög um
mannasiði. Í annan stað þurfa stjórnmálamenn
að átta sig á því að lögsaga þeirra takmarkast við
lögsögu Íslands. Íslenskir stjórnmálamenn geta ekki
sett lög um hegðun íslenskra ríksisborgara á er-
lendri grundu. Ríkisstjórn Íslands getur ekki bann-
að einhverja hegðun sem er leyfð í öðru ríki. Það er
misjafnt hvaða lög gilda um klám og stjórnmála-
menn verða að átta sig á takmörkum sínum. Það er
hægt að setja lög um að vændi eða klám sé bannað
en ekki hægt að setja lög um hvernig fólk hegðar sér
í sínum frítíma. Það er eðlilega hægt að setja fram
kröfur um hegðun embættismanna þegar þeir eru
að sínum störfum en þeir hafa líka sinn frítíma.“
Gegn mansali Lögsagan bara á Íslandi
Eiríkur BErgMann Einarsson, stjórnmálafræðingur.kolBrún Halldórsdóttir,
þingmaður vinstri grænna.
Siðareglur opinberra StarfSmanna á erlendri grundu með og á móti
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is