Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2007, Side 14
Fyrirtækið Perlukafarinn hóf í sum-
ar innflutning á Reva City Car. Bíllinn
er knúinn rafmagni og hannaður sem
borgarbíll. Það verður ekki af Reva raf-
magnsbílnum skafið að hann er hinn
allra vænsti mögulegi kostur þeg-
ar tekið er mið af umhverfinu. Þessi
smábíll mengar akkúrat ekki neitt og
kostnaðurinn við að aka 100 kílómetra
er aðeins um 78 krónur. Kostnaðurinn
við að hlaða Reva er svipaður og að
kaupa bensín á bíl sem eyðir 0,6 lítr-
um á hundraðið. Þessar staðreynd-
ir gera bílinn að raunverulegum kosti
fyrir fólk sem vill komast á milli a og b
fyrir lítinn pening.
Agnarsmár
Það verður hins vegar ekki litið
framhjá því að Reva City Car er hvorki
rúmgóður né þægilegur. Hann er
reyndar það lítill að hægt er að leggja
honum í allra smæstu bílastæðin og
að því leytinu til er hann afar þægi-
legur. Bílastæði fyrir umhverfisvæna
bíla kosta heldur ekkert og því er bíll-
inn hentugur fyrir þá sem eru mikið á
ferli í miðbænum eða þar sem stöðu-
mælar eru víða. Það er ekki vökvastýri
í Reva og því er hann nokkuð þungur í
stýri. Beygjuradíusinn er hins vegar sá
langminnsti sem ég hef heyrt um; 3,5
metrar. Ég efast hins vegar um að það
sé næg ástæða til að hinn venjulegi Ís-
lendingur stökkvi til og kaupi bílinn. Í
honum eru tvö sæti og plássið er ekki
mikið, sér í lagi ef fólk sem er í yfirvigt
eða yfirstærð. Fyrir hinn venjulega
mann dugar plássið ágætlega en eins
og myndirnar bera með sér er ekki
mjög vítt til veggja. Hann er 2,6 metrar
á lengd, 1,3 á breidd og 1,5 á hæð.
Hljóðlátur en kraftlítill
Það er harla óvenjulegt að gang-
setja Reva. Hljóðið er svipað og þegar
maður stingur brauðrist í samband.
Það heyrist akkúrat ekkert. Eina hljóð-
ið sem kemur frá bílnum í akstri er frá
dekkjunum. Reva er gíralaus þannig
að maður keyrir hann eins og um
sjálfskiptan bíl sé að ræða. Munur-
inn er hins vegar sá að bíllinn er mjög
kraftlítill, þrátt fyrir að hægt sé að gefa
honum aukakraft með einu handtaki.
Þannig er hann aðeins 17,5 hestöfl og
er því seinn af stað í brekkum og er sjö
sekúndur upp í 40 km/klst á jafnsléttu.
Ég myndi því ekki vilja keyra hann um
á Miklubrautinni eða þar sem umferð
er hröð og hættuleg. Hámarkshraði á
bílnum er 70 til 80 km/klst en ekki þarf
mikinn halla til að draga verulega úr
þeim hraða.
Einfalt að hlaða
Afar einfalt er að hlaða bílinn,
honum er einfaldlega stungið í sam-
band eins og þegar farsími er hlaðinn.
Full hleðsla á bílnum er um 9 kílów-
attstundir, en slík orka kostar um 70
krónur. Sex klukkutíma tekur að full-
hlaða batteríin en hálfan þriðja tíma
tekur að hlaða batteríin 80 prósent. Á
fullri hleðslu kemst bíllinn allt að 80
kílómetra vegalengd sem fer þó tölu-
vert eftir aksturslagi og þolinmæði
ökumannsins. Bíllinn er því alls ekki
hentugur til langferðalaga, enda er
hann ekki byggður með slíkt í huga.
Lítil öryggistilfinning
Reva City Car er búinn að miklu
leyti til úr styrktu ABS-efni. Hann er
með styrktarbita í hurðum og stál-
ramma allan hringinn, með krumpu-
svæði að framan. Bíllinn hefur lágan
þyngdarpunkt vegna þess að þung-
ar rafhlöðurnar eru undir sætunum í
bílnum. Hann liggur því vel á vegin-
um. Þrátt fyrir að bíllinn sé vel styrktur
leið mér að sumu leyti ónotalega í bíl-
túrnum sem ég fór á honum. Hann er
það lítill og lágvær að ég fann fyrir óör-
yggi í akstri á meðal fullvaxinna bíla.
Þetta er í það minnsta ekki bíll sem ég
myndi vilja klessa og ég myndi heldur
ekki vilja keyra Kjalarnesið í 30 metr-
um á sekúndu, þótt vel geti verið að
það sé í góðu lagi.
Niðurstaða
Reva City Car er góður bíll fyrir fólk
sem gerir ekki miklar kröfur um kraft,
útlit og þægindi. Hann er tilvalinn fyr-
ir fólk sem býr í grennd við miðbæ-
inn og þarf að keyra um þröngar göt-
ur og sund. Hann er einstaklega ódýr
í rekstri og álíka umhverfisvænn og
reiðhjól. Hins vegar hlýtur að koma að
því að rafhlöðunum þurfi að farga og
því má spyrja sig hvaða lausnir verða
þá í sjónmáli. Fyrir tímalausa nú-
tíma Íslendinga, er bíllinn ekki góð-
ur kostur. Ekki nema þeir eigi annan
bíl til að nota til langferða. Hins vegar
mætti spyrja sig hvort ekki væri ráð-
legt að ungir bílstjórar væru skikkað-
ir til að aka um á svona bílum fyrstu
árin. Umferðarslysum sem rekja má
til hraðaksturs myndi eflaust fækka til
muna og við fengjum betri ökumenn
út í umferðina.
Reva City car er vonandi bara byrj-
unin á því sem koma skal. Þessi hug-
mynd er afbragðs góð og vonandi ein
af framtíðarlausnum til að leysa olíuna
af hólmi sem eldsneytisgjafa. Vonandi
verður hægt að gera alvöru fjölskyldu-
bíl úr þessari hugmynd, fjölskyldubíl
sem stenst allar nútímakröfur. Þeg-
ar þar að kemur mun ég kaupa mér
svona bíl. Þangað til verða aðrir orku-
gjafar fyrir valinu.
fimmtudagur 25. október 200714 Bílar DV
Smiðjuvegi 34 - gul gata Kópavogi • Sími 544 5151 • biljofur@biljofur.is
SÉRHÆFÐ ÞJÓNUSTA FYRIR
BIFREIÐAVERKSTÆÐI
Baldur Guðmundsson reynsluók
rafmagnsbílnum Reva City Car:
Hugmynd til að byggja á
Reva City Car við Perluna
eins og sjá má er bíllinn afar smár.
Reva City Car engir gírar eru í bílnum. aðeins aftur og fram.
Reva City Car Perlukafarinn hefur
hafið innflutning á bíl sem hefur verið
lýst sem hinum fullkomna borgarbíl.
Niðurstaða
+
mengar akkúrat ekkert
afskaplega ódýr í rekstri
Hljóðlaus
frítt í bílastæði
fyrirferðarlítill
-
kraftlaus í samanburði við aðra bíla
Lítil öryggistilfinning
Plásslítill
kemst aðeins 80 km á hleðslunni
Lítill hámarkshraði
rafhlöður skaða umhverfi við förgun
frekar þungur í stýri
Lengi í hleðslu