Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1942, Blaðsíða 5

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1942, Blaðsíða 5
SVEITARSTJORNARMAL Tímarit um málefni íslenzkra sveitarfélaga. 2. árcangur Útgefandi og ritstjóri: 19 42 JÓNAS GUÐMUNDSSON, eftirlitsmaáur sveitarstjórnarmálefna. 1. HEFTI Utanáskrift: „Sveitarstjórnarmál", Alþýðuhúsiá, Reykjavík. Guðbrandur Jónsson: A K R A N E S Nu á dögum eru takmörk Akranes- hrepps, er verður að telja ná til þess lands, sem kallað er Akranes, Kúludalsá að suðaustan, en Berjadalsá að norðaust- an. Það er þó ekki minnsti vafi á því, að landfræðilega mætti telja nesið mun stærra og hafa takmörk þess allmiklu austar. Ekki kemur heldur fornum heim- ildum alveg saman um, hver hafi verið takmörk nessins. Landnáma telur tak- mörkin milli Hvalfjarðarstrandar og nessins vera Kalmansá, sein rennur úr Hól.mavatni nokkuð vestur af Kalastaða- koti, en norðaustur af Katanesi, og er sú á nú í Strandarhreppi, og norðan Akra- fjalls telur hún Urriðaá, sem er nokkru austar en Berjadalsá, vera takmörk Akra- ness. Akranes kemur nokkuð við Harðar sögu og Hólmverja; þar eru takmörkin að Hvalfjarðarströnd kölluð vera Kú- vallará, en fræðimenn, þar á meðal Kaa- lund, hafa litið svo á, að þetta mundi vera misskrift fyrir Kúludalsá, og leitt að því nokkur líkindi. Þegar ísland var numið, fór landnámið fram skipulagslaust, sem vonlegt var, þar sem landrými var kappnóg og þurfti því að engu að hyggja. Kylfa réð því al- gerlega kasti um það, hvar menn námu lönd og settust að; menn hafa þar vafa- laust fyrst og fremst farið eftir landgæð- um, en nokkuð þó eftir því, hvort frænd- ur eða vinir sátu einhvers staðar fyrir. Það er kunnugra en frá þurfi að segja, að ísland byggðist af tveim kynstofnum, keltneskum og norrænum, og hafa menn á siðari tímum ranglega meira eða minna hyllzt til þess að gera mun meira úr hinu norræna landnámi og áhrifum þess en rétt er, eins og íslenzk fornmenning ber með sér sjálf. Ekki hefur þessi þjóð- ernistvískinnungur í landsmönnum þó orðið þess valdandi, að þeir i heild sinni hafi hnappað sig saman eftir uppruna, heldur hafa þeir setzt að hverjir innan um aðra af einskæru handahófi. Þó eru frá þessu nokkrar undantekningar, þár sem eru m. a. Dalir og Akranes, því að háðir þessir staðir hafa í heikl sinni i upphafi verið hyggðir svo til einvörð- ungu af Keltum. Þormóður hinn gamli og Ketill Bresa- synir fóru af írlandi til íslands og námu Akranes allt milli Urriðaár og Kalmans- ár, og Jieir voru írskir. Kalman var og írskur og bjó fyrst í Katanesi, enda er það nafn alírskt. Þormóður gamli átti lönd fyrir sunnan Reyni og til Kalmans- ár og hjó á Ytrahólmi, en Ketill Bresa- son átti lönd fyrir vestan Reyni og fyrir norðan Akrafjall til Urriðaár. Komu miklar og góðar ættir af þeim bræðrum báðum. Sonur Ketils var Jörundur kristni, sem byggði Jörundarholt á Akra- nesi, er nú er nefnt Garðar, og var hann einsetumaður í elli sinni; bendir það Qg

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.