Sveitarstjórnarmál - 01.06.1942, Blaðsíða 17
SVEITARSTJÓRNARMÁL
13
Reykjavík.
Kosningin þar fór fram 15. marz 1942.
Guðmundur Ásbjörnsson,
Jakob Möller,
Guðrún Jónasson,
Valtýr Stefánsson,
Arni Jónsson,
Helgi H. Eiríksson,
Gunnar ThoTbddsen,
Gunnar Þorsteinsson,
Haraldur Guðmundsson,
Jón A. Pétursson,
Soffía Ingvarsdóttir,
Sigfús Sigurhjartarson,
Björn Bjarnason,
Katrín Pálsdóttir,
Steinþór Guðmundsson.
Borgarstjóri:
Bjarni Benediktsson.
Forseti bæjarstjórnar:
Guðmundur Ásbjörnsson.
Samstarf milli flokka varð nokkurt í
kosningunum.
Alþýðuflokkurinn og Framsókn höfðu
mest samstarf. Voru sameiginlegir listar,
er þessir flokkar stóðu að, í eftirtöldum
kauptúnum:
Keflavík,
Ólafsvík,
Bíldudal,
Flateyri í Önundarfirði,
Suðureyri í Súgandafirði,
Hvammstanga.
Varð samanlagt atkvæðamagn þeirra
í öllum þessum kauptúnum 796 atkvæði
og komu að 15 mönnum. Teljast 8 þeirra
til Alþýðuflokksins, en 7 til Framsóknar.
Alþýðuflokkurinn og Sósíalistaflokk-
urinn höfðu sameiginlega lista á tveim
stöðum:
Siglufirði og
Eyrarbakka.
Sameiginlegt atkvæðamagn þeirra varð
þar 825 atkvæði og komu að 7 mönnum.
Teljast 4 þeirra til Alþýðuflokksins, en
3 til Sósíalistaflokksins.
Alþýðuflokkurinn, Framsóknarflokk-
urinn og Sósíalistaflokkurinn voru allir
saman um einn lista á Sauðárkróki, og
hlaut sá listi 265 atkvæði og 4 menn
kosna, er skiptast þannig, að 2 teljast
til Framsóknar, en 1 til hvors hinna
flokkanna.
Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknar-
flokkurinn höfðu sameiginlega lista á
þrem stöðum:
Húsavík,
Bolungavík og
Fáskrúðsfirði.
Voru samanlögð atkvæði þeirra í þess-
um stöðum 442 og fulltrúar þeirra, er að
komust, 11 al,ls. Munu þeir skiptast
þannig, að 5 teljast til Framsóknar, en 6
til Sjálfstæðisflokksins.
Við aðra flokka höfðu sjálfstæðismenn
ekki samvinnu í kosningunum.
Utanflokkalistar komu fram á eftir-
töldum stöðum:
Hafnarfirði,
Isafirði,
Siglufirði,
Akureyri,
Seyðisfirði,
Iveflavik,
Hellissandi,
Stykkishólmi,
Ólafsfirði og
Hrísey.
Fengu þeir saintals í öllum þessum
stöðum 1 310 atkvæði og komu að 10 full-
trúum.
Sjálfkjörnir urðu hreppsnefndarmenn
á Blönduósi og Djúpavogi, því að aðeins
einn listi kom fram í hvorum þeirra
staða með jafnmörgum mönnum og kjósa
har. Var á Blönduósi samkomulag milli
Alþýðuflokksins, Framsóknarflokksins
og Sjálfstæðisflokksins um listann þar,
en á Djúpavogi mun Sósíalistaflokkurinn
einnig hafa A'erið með um listann, sem
þar var fram borinn.
Á þessum stöðum kom því ekkert at-
kvæðamagn fram, og verður því atkvæða-
magnið aðeins úr 29 sveitarfélögum.