Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1942, Page 11

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1942, Page 11
SVEITARSTJÓRNARMÁL 7 íslenzkir spekúlantar, og svo fór uin síðir, að þar voru ekki nema alinnlendir kaupmenn. Aðalatvinnugrein íbúanna var eins og fyrr sjávarútvegur, en jörðin var Akur- nesingum góð eins og áður á dögum. Akuryrkja reis að vísu ekki upp þar aftur, en hins vegar varð þar ein mesta jarðeplarækt á landinu, og var nesið beinlínis frægt fyrir hinar ágætu kartöfl- ur sínar, enda er kartöflurækt þar enn í liezta gengi. Mannfjöldi fór sivaxandi á Akranesi, og skömmu fyrir aldamótin var orðið þar svo mannmargt, að óhjákvæmilegt þótti að gera það að læknishéraði. Var það kallað Skipaskagalæknishérað, og heitir svo enn. Prestssetur höfðu um skeið verið tvö á Akranesi, Garðar ng Innrihólmur, en svo fór, að Garðar urðu eftir einir, og var prestssetrið loks á þessari öld flutt frá Görðum í Akranes- kauptún, og hefur síðan verið þar. Fyrir nokkrum árum var orðið svo umsvifa- mikið á nesinu, að .þess þótti þörf að gera það að sérstöku lögregluumdæmi, og var skipaður þar lögreglustjóri, sem jafn- framt hefur á hendi ýmis störf fyrir lireppinn, og nú er svo komið, að kaup- túnið verður kaupstaður, með þeim rétt- indum, sem því fylgja, frá áramótuiu 1941—1942. Akranes er vel að þeim réttindum kom- ið. Þar hefur vérið mikið um þá fram- takssemi, sem skapar. Þar hafa á síðari árum alizt upp margir ágætir menn, og margir hafa flutzt þangað, sem starf hef- ur staðið af, enda hefur miklu verið af- kastað þar á síðustu árum. Meðal þess má telja byggingu hafskipabryggjunnar, síldarverksmiðjurnar og nú síðast vatns- leiðsluna til bæjarins. Það er því full ástæða lil að bjóða Akraneskaupstað vel- kominn í tölu íslenzkra bæja. Sveitarstjórnarkosningarnar 25. janúar og 15. marz 1942. Allt til þessa hefur ]>að verið svo hér á landi, að engar áreiðanlegar skýrslur hafa verið birtar opinberlega um bæjar- stjórnar- og hreppsnefndarkosningar nema það hrafl, sem í blöðunum hefur komið. Það er því ekki hægt að ganga að skýrslum um slíkar kosningar á nein- um ákveðnum stað, né heldur er hægt að fá að vita, hverjir eru í hreppsnefnd eða bæjarstjórn í hinum ýmsu stöðum, nema með ærinni fyrirhöfn og oftast nær alls ekki nema með símtali við bæjar- stjóra eða oddvita staðanna. Er þetta ótækt og ber vott um hirðuleysi og menn- ingarskort. En til þess að slikar skýrslur verði réttar þurfa kjörstjórnir á hverjum stað að fylla út evðublöð um kosninguna þeg- ar í stað er henni er lokið, þar scm getið er lista jieirra, sem kosið er um, atkvæða- talna, hve margir náðu kosningu af hverjum lista og nöfn þeirra, sem kosnir hafa verið, ásamt stöðu og heimilisfangi, og senda þetta þegar í stað til eftirlits- manns, sem síðan ætti að láta prenta skýrslu um kosninguna, er væri rétt í alla staði og aðgengileg öllum. Verður hér eftir leitazt við að ráða bót á þessu, og hefur nú verið safnað skýrsl- um um þær kosningar, sem fram fóru 25. janúar og 15. marz 1942, og verða þær niðurstöður nú birtar hér. Þar sem orðið hefur að afla þessara gagna á ýmsa vegu, má vel vera, að einhvers staðar skakki einhverju, t. d. um atkvæðatölu eða nöfn fulltrúa, svo sem þar sem útstrikanir

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.