Sveitarstjórnarmál - 01.06.1942, Blaðsíða 26
22
SVEITARSTJÓRNARMÁL
til lendingarbótanna, uppsáturs, íveru-
og fiskhúsa, allt að 20 þús. fermetrum,
svo og land undir brautir og vegi, er
nauðsynlegir kunna að þykja, enn frem-
ur grjót, möl og önnur jarðefni, og þola
bótalaust þær eignakvaðir, óhagræði eða
takmörkun á afnotarétti, sem lendingar-
bæturnar hal'a í för með sér. Land þetta
iná lendingarsjóður þó eigi selja.
Til þess að standa straum af kostnaði
við byggingu og viðhald lendingarvirkj-
•inna og til árlegs rekstrarkostnaðar
lendingarinnar er heimilt að innheimta i
lendingarsjóð Stokkseyrar allt að 0% af
brúttóverði afla hvers báts, er haldið er
úti til fiskveiða á Stokkseyri, vörugjald
af vörum, sem fluttar eru í land eða úr
landi innan takmarka Stokkseyrarhafn-
ar, svo og önnur gjöld, er ákveðin kunna
að verða í reglugerð sa.mkv. 12. gr.
Gjöld þessi má taka lögtaki, og ganga
þau fyrir sjóveðum“.
Breyting'ar á útsvarslögunum.
Alþingi hefur enn fremur afgreitt lög
um breytingar á útsvarslögunum, og eru
þau þannig:
1. gr.
Aftan við 9. gr. laganna bætist ný
málsgr., svo hljóðandi:
Á meðan vísitala kauplagsnefndar er
hærri en 110, miðað við grunntöluna 100
í jan.—marz 1939, skulu fjárhæðir þær,
sem um getur í 2. og 3. tölulið, hækk-
aðar sem nemur meðalframfærslukostn-
aði á skattárinu samkvæmt vísitölu
kauplagsnefndar.
2. gr.
17. gr. laganna orðist þannig:
í kaupstöðum jafnar niðurjöfnunar-
nefnd niður útsvörum. Utan Reykja-
víkur er formaður skattanefndar einnig
formaður niðurjöfnunarnefndar. Auk
jiess eiga sæti i nefndinni fjórir menn,
kosnir hlutbundnum kosningum af
bæjarstjórn í nóvembermánuði ár bvert
lil eins árs í senn. í Reykjavík kýs bæjar-
stjórn á sama hátt og til sama tima fimm
menn i niðurjöfnunarnefnd, og einn
þeirra formann nefndarinnar. Með sama
hætti skal kjósa fjóra — i Reykjavík
fimm — menn til vara, er taka sæti í
nefndinni í forföllum aðalmanna. Kjör-
gengir eru þeir, sem kjörgengir eru til
bæjarstjórna. Skylt er hverjum manni,
sjálfum sér ráðandi, vngri en 60 ára,
heilum og hraustum, konum jafnt sem
körlum, að starfa i niðurjöfnunarnefnd,
en óskvlt er þó sama manni að sitja í
benni samfleytt lengur en 6 ár, enda þarf
bann ekki að taka við endurkjöri fyrr
cn 6 ár eru liðin síðan hann sat síðast í
nefndinni. f Reykjavík skal skrifstofu-
stjóri skattstjóra aðstoða við starf niður-
jöfnunarnefndarinnar og veita allar upp-
lýsingar, sem hægt er.
Áður en niðurjöfnunarnefndarmaður
tekur í fyrsta skipti til starfa í nefnd-
inni, vinnur hann skriflegt drengskapar-
heit um að rækja starfið með alúð og
samvizkusemi.
Bæjarstjórn ákveður þóknun niður-
jöfnunarnefndar.
3. gr.
Lög þessi öðlast gildi þegar í stað, og
koma ákvæði 1. gr. þegar til fram-
kvæmda við innheimtu útsvara, álagðra
á árinu 1942.
Á breytingin samkv. 1. gr. við það, er
menn stunda atvinnu utan heimilissveitar
eða eru lögskráðir í skip utan heimilis-
sveitar. Samkvæmt 2. Iið 9. gr. útsvars-
laganna þarf maður að hafa minnst 3000
krónur í tekjur þar, sem atvinnan er
stunduð, til þess að útsvarsskylt sé, en
nú hækkar sú tala sein nemur visitölu-
hækkuninni, eða eins og nú standa sakir
upp i 5590 krónur. Ákvæðin í 3. lið söinu
greinar um lögskráða menn á skip utan
lieimilissveitar eru hliðstæð, nema hvað
þá þarf að fá 5000 krónur, að viðbættri
verðlagsuppbót, til þess að útsvar megi
á leggja.