Sveitarstjórnarmál - 01.08.1957, Blaðsíða 18
14
SVEITARSTJÓRNARMÁL
KRISTINN BJÖRNSSON, kand. psykol.:
Athuganir á vinnumögu-
leikum öryrkja.
Kristinn Björnsson, sálfræðingur, hefur síðan 1954 starfað
á vegum Tryggingastofnunar ríkisins, Bæjarsjóðs Reykjavíkur
og félagsmálaráðuneytisins að athugun á vinnugetu öryrkja og
haft með höndum leiðbeiningarstarf á því sviði. Skrifstofa hans
er í Heilsuverndarstöð Reykjavíkur við Barónsstíg.
1
Athuganir þær á vinnumöguleikum ör-
yrkja, sem undirritaður hefur framkvæmt
og gerðar hafa verið að tilhlutan félags-
málaráðuneytisins, Tryggingastofnunar rík-
isins og Reykjavíkurbæjar hófust 1. okt.
1954. Hefur því verið unnið að þeim hér
um bil í þrjú ár. Aðalmarkmið þessara at-
hugana hefur verið að fá svar við þeirri
spurningu, hvort einliver hluti öryrkjanna
í Reykjavík mundi vera fær til starfa, ef
völ væri á störfum, sem hentuðu. Ef svo
væri, hvaða störf væru þá við hæfi hvers og
eins, er eitthvað gæti, og hvaða ráðstafanir
þyrfti að gera af hálfu hins opinbera, svo að
hægt væri að liðsinna þeim þannig, að
starfsorka þeirra nýttist sem bezt.
Rætt hefur verið við nokkur hundruð
öryrkja, í þeim tilgangi að fá svör við þess-
um spurningum, og safnað upplýsingum
um félagslegar aðstæður þeirra, heilsufar,
menntun, fyrri störf, áhugamál og annað,
er máli skiptir, þegar meta skal möguleika
þeirra til starfa.
En það er ekki hæfni eða hæfnileysi ör-
yrkjanna eingöngu, sem setur starfsmögu-
leikum þeirra takmörk. Möguleikar þeir,
sem atvinnulífið hefur að bjóða, skipta
einnig máli, en þeir eru ekki hinir sömu í
öllum landshlutum og allt aðrir hér á
landi en í nágrannalöndum okkar. Nauð-
synlegt er því að gera sérstaka athugun á
atvinnulífinu og þekkja störf þau, sem
hentað geta vissum öryrkjum. Hefur verið
byrjað á þessu liér með því að heimsækja
nokkur stærri atvinnufyrirtæki, einkum
iðnfyrirtæki, til að fá vitneskju um störf
þar, og sjá, hvaða möguleikar bjóðast fyrir
þá, sem geta ekki unnið hvað sem vera skal.
Nokkrir öryrkja þeirra, sem talað var við,
hafa farið þess á leit, að sér yrði liðsinnt
við að velja starf eða komast í starf við
sitt hæfi. Einnig hafa ýmsir fleiri, sem bag-
aðir eru við vinnu og veitist því erfitt að
fá hentug störf, leitað hingað, þótt þeir
væru ekki metnir öryrkjar og nytu ekki ör-
orkubóta. Sumir þeirra nutu sjúkrabóta.
Einnig voru hér á meðal unglingar, sem
voru í vanda með starfsval sitt. Leitazt hef-
ur verið við að liðsinna þeim, sem hingað