Sveitarstjórnarmál - 01.08.1957, Blaðsíða 21
SVEITARSTJÓRNARMÁL
17
batnaðar á síðustu árum vegna bættra sam-
gangna, sjúkratrygginga og betri efnahags
almennings. Vissir þættir heilbrigðisþjón-
ustunnar skipta sérlega miklu máli fyrir
endurhæfingu,. Má þar fyrst og fremst
benda á þjálfun bæklaðra og vinnulækn-
ingar á sjúkrahúsum, þar sem sjúklingar
dvelja lengi. Það er því stórt framfaraskref
á þessu sviði, að nýlega hefur æíingastöð
fyrir lamaða og fatlaða hafið starfsemi hér
á landi. Vinnulækningar á sjúkrahúsum
eru hér mjög takmarkaðar og víðast hvar
engar. Er það óheppilegt, því að þær eru oft
byrjunin á verkþjálfun, og eiga mikinn
þátt í að glæða sjálfstraust og starfslöngun
þeirra, sem þola mega langvarandi van-
heilsu.
Annar þáttur endurhæfingar, starfsvalið,
er í senn auðveldara og erfiðara hér á landi
en víða annars staðar. Auðveldara að því
leyti, að hér er ekki úr eins mörgum störf-
um að velja og í tæknilega háþróuðum
þjóðfélögum, þar sem verkaskipting er mik-
il. Er því auðveldara að hafa yfirsýn yfir
þá möguleika, sem atvinnulífið hefur að
bjóða. Fábreytileiki atvinnulífsins hefur þó
fleiri galla en kosti í för með sér íyrir ör-
yrkjana. Færri starfa er völ, sem þeim lienta,
og nauðsynlegra, að þeir möguleikar séu
fundnir og nýttir, sem kunna að vera til
fyrir hvern öryrkja. Gerir það starfsvalið
vandasamara. Ekki má heldur gleyma því,
að margbreytileiki fólksins er sá sami hér
á landi og annars staðar, þótt atvinnulífið
sé fábreyttara, og öryrkjar flestir eru ekki
annað hvort hæfir eða óhæfir til vinnu held-
ur mismunandi hæfir til einstakra verka.
Erlendis annast vinnusálfræðisstofnanir
víða leiðbeiningar fyrir öryrkja. Sums stað-
ar eru og starfræktar sérstakar leiðbeining-
arstofnanir fyrir þá. Hér á landi hefur und-
irritaður leitazt við að verða öryrkjum til að
stoðar við starfsval og leiðbeint um starfs-
möguleika síðan athuganir á vinnumögu-
leikum öryrkja hófust.
Nám er nú talið heppilegast að öryrkjar
stundi í venjulegum skólum með heilbrigð-
um nemendum eftir því sem við verður
komið, og það er oftast framkvæmanlegt.
Fyrrum voru víða reistar sérstakar mennta-
stofnanir t. d. iðnskólar fyrir öryrkja, og
slíka skóla er að finna í nágrannalöndum
okkar. Betra er að stuðla að því að öryrkj-
ar sæki venjulega skóla, en séu ekki ein-
angraðir. Verður því sérstakur öryrkjaskóli
væntanlega ekki reistur á íslandi.
Allt öðru máli er að gegna um þjálfunar-
verkstæði. Þeir, sem lengi hafa verið frá
vinnu vegna veikinda, eiga yfirleitt erfitt
með að hefja vinnu af fullum krafti í byrj-
un. Hlutverk þjálfunarverkstæðis er að
gefa öryrkjum kost á að æfa sig.og þjálfa
við vinnuna smátt og smátt. Vinnutími
livers og eins getur þar verið stuttur í byrj-
un og ekki þarf að gera strangar kröfur um
afköst, meðan maðurinn er að venjast því
að starfa. Hér á landi er ekkert þjálfunar-
verkstæði til fyrir aðra en berklasjúklinga,
en þörf annarra öryrkja fyrir slíkt verk-
stæði er augljós.
Að lokinni verkþjálfun er vinnuútvegun
svo lokastigið. Víðast erlendis sér hin opin-
bera vinnumiðlun um þetta, og annast þá
sérstök deild hennar vinnumiðlun fyrir ör-
yrkja. Vegna fámennis er liæpið, að hægt
verði að skipuleggja hér á landi sérstaka
vinnumiðlun fyrir öryrkja á næstunni.
Starfmenn hinnar almennu vinnumiðlunar
reyna þó að liðsinna öryrkjum eftir því
sem tök eru á og gera ávallt sitt bezta, þeg-
ar til þeirra er leitað vegna öryrkja, en
möguleikar eru hér takmarkaðir vegna fá-
breytileika atvinnulífsins. Hér í landi fá-
mennis og kunningsskapar ráða atvinnu-
fyrirtæki starfslið sitt líka að miklu leyti
beint án milligöngu vinnumiðlunar. Til