Sveitarstjórnarmál

Ukioqatigiit

Sveitarstjórnarmál - 01.08.1959, Qupperneq 15

Sveitarstjórnarmál - 01.08.1959, Qupperneq 15
TRYGGINGAMÁL ----- RITSTJÓRI: GUÐJÓN HANSEN - Féla^smál í Noreéi. Unnið að lausn margháttaðra vandamála. Samhjálp er nauðsynleg ásamt ráðstöfunum yfirvalda. Á landsfundi sjúkrasamlaganna í Noregi, sem nýlega var haldinn, flutti Guðmundur Harlem, félagsmálaráðherra, athyglisvert erindi um starfrækslu og umbætur á al- þýðutryggingunum þar í landi. Það var meginuppistaðan í erindi ráð- herrans, að fjárhagsleg hjálp eða aðstoð næði ekki tilgangi sínurn og leysti ekki málefni fólksins, fjárhagsleg hjálp væri hins vegar nauðsynleg, en aðeins með einu móti væri hægt að leysa vandmálin til fulls, þ. e. með samhjálp þjóðfélagsþegn- anna, sem hefur í för með sér aðlögun eftir aðstæðum og umhverfi. Það er, sagði ráðherrann, mjög náið sam- band milli stefnunnar í félagsmálum og þjóðmálastefnunnar á öðrum sviðum. Sú staðreynd, að allir Itafa haft næga vinnu í Noregi síðan styrjöldinni lauk, hefur leyst fleiri félagsleg vandamál en allar aðgerðir í félagsmálum. Nú stendur fyrir dyrum að koma fram örorkutryggingu fyrir alla, og er það mikið og veglegt verkefni. Fyrir Stórþingið mun nú verða lagt frumvarp um opinbera ör- orkutryggingu, en með því verður lagður grundvöllurinn að skipan almennrar ör- orkutryggingar fyrir alla þjóðfélagsþegna. Byrjunin verður sú, að komið verður á við- bótarlífeyrisrétti við ellitrygginguna. Ef fjárhagsleg þróun heldur áfram að stefna í sömu átt og verið hefur síðan í stríðslok, ætti það ekki að taka allt of langan tíma að koma á fót fullkomnum ellitryggingum. Aðeins lítill hluti þjóðarinnar, einkum launþegar, njóta nú viðunandi ellitrygg- inga. Um örorkutrygginguna er það að segja, að hún á að taka til afleiðinga læknisfræði- legrar örorku. Hún skal þannig skipulögð, að hún verði liður í alþýðutryggingunum í heild, og fjár til hennar skal aflað með iðgjöldum á sama hátt og á sér stað með ellitryggingarnar. Frá mannlegu sjónar- miði er öryrkjaframfærsla léleg lausn, þess vegna hlýtur fyrsta verkefnið að vera að tryggja fjáröflun til allra þeirra leiða, sem vænlegar eru til þess að bæta úr læknis- fræðilegri örorku, þannig að um atvinnu- lega örorku verði alls ekki að ræða. Ráðherrann sagði enn fremur, að á yfir- standandi kjörtímabili Stórþingsins lægi annað stórt verkefni fyrir: sameining og endurskipulagning tryggingamálanna í heild. Taldi hann, að það mál yrði nú leyst. Það er nauðsynlegt, sagði ráðherrann, að sannfæra alþjóð um það, að enginn sé órétti beittur. Hann taldi, að Tryggingastofnun- in norska og sjúkrasamlögin væru meðal þeirra stofnana þar í landi, þar sem skrif-

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.