Sveitarstjórnarmál - 01.08.1959, Side 20
16
SVEITARSTJÓRNARMÁL
Fíá AlFin^i.
Hér í ritinu hefur jafnóðum verið getið
helztu laga, sem Alþingi samþykkti á síðast-
liðnum vetri og varða almannatryggingar
eða skyld málefni. í eftirfarandi yfirliti um
lög og þingsályktanir, sem samþykkt voru
á vetrarþinginu, og mál, sem ekki urðu út-
rædd, er því vísað til þess, er áður hefur
verið um málin sagt, til að forðast endur-
tekningar.
I. Lög frá Alþingi.
1. Lög nr. 68/1958 um breyting á lögum
nr. 24/1956, um almapnatryggingar.
Með lögum þessum var ákveðin 9i/2%
grunnhækkun elli-, örorku- og barnalíf-
eyris og fleiri bóta frá 1. september 1958
að telja (sjá nánar í 6. hefti 18. árg.
Tryggingamála, bls. 20).
2. Lög nr. 69/1958 um breyting á lögum
nr. 33/1958, um útflutningssjóð o. fl.
Samkvæmt þeim skyldi grunnhækkun
sú (5%), sem ákveðin var í lögunum
um útflutningssjóð, ná til allra bóta al-
mannatrygginga (sjá nánar í 6. hefti 18.
árg. Tryggingamála, bls. 20).
3. Lög nr. 74/1958 um breyting á lögum
nr. 24/1956, um almannatryggingar.
Lögin veittu ráðherra heimild til að
fresta ákvörðun iðgjalda og framlaga
til almannatrygginga 1959, þar til fjár-
lög fyrir það ár höfðu verið sett.
4. Lög nr. 1/1959 um niðurfærslu verð-
lags og launa o. fl. í 1. gr. laga þessara
segir m. a. svo:
„Frá 1. febrúar 1959 skal greiða verð-
lagsuppbót á laun og allar aðrar
greiðslur, er fylgja kaupgreiðsluvisi-
tölu, samkvæmt vísitölu 175 stig. Á
bótaupphæðir þær, sem ákveðnar eru
í II. kafla laga nr. 24/1956, um al-
mannatryggingar, svo og í 37. og 38.
gr. sörnu laga og í lögum nr. 29/1956,
um atvinnuleysistryggingar, skal þó
frá sama tíma greiða verðlagsuppbót
samkvæmt vísitölu 185.“
Samkvæmt 5. gr. laganna skal frá 1.
marz 1959 verðlagsuppbót samkvæmt 1.
gr. lögð við grunnupphæðir launa og
annarra greiðslna, er fylgja kaup-
greiðsluvísitölu, og telst hvorttveggja
grunnlaun. Verðlagsuppbót skal síðan
greiða samkvæmt nýrri kaupgreiðslu-
vísitölu með grunntölu 100 1. marz 1959.
1 lögunum eru ýmis fleiri ákvæði.
5. Lög nr. 4/1959 um breyting á lögum
nr. 29/1956 um almannatryggingar. í
lögunum er kveðið nánar á um það en
áður, hvernig iðgjöld skuli breytast,
þegar grunnkaupsbreytingar verða. Þá
er ráðherra heimilað, að fengnum til-
lögum stjórnar atvinnuleysistrygginga-
sjóðs, að breyta upphæðum bóta sam-
kvæmt lögunum í samræmi við breyt-
ingarnar á grunnkaupi Dagsbrúnar-
verkamanns í almennri dagvinnu, og
loks er sá tveggja ára frestur, sem settur
var til endurskoðunar á lögunum frá
1956, framlengdur um tvö ár.
6. Lög nr. 5/1959 um breyting á lögum
nr. 43/1958, um aðstoð við vangefið
fólk. Gjaldi því (10 aurum af hverri
gosdrykkja- og ölflösku), sem rennur í
Styrktarsjóð vangefinna, skyldi sam-
kvæmt lögunum frá 1958 varið til að