Sveitarstjórnarmál

Årgang

Sveitarstjórnarmál - 01.08.1959, Side 21

Sveitarstjórnarmál - 01.08.1959, Side 21
SVEITARSTJÓRNARMÁL 17 reisa stofnanir fyrir vangefið fólk, en samkvæmt hinum nýju lögum skal því einnig varið til endurbóta á slíkum stofnunum. 7. Lög nr. 11/1959 um viðauka við lög nr. 64/1955 um lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins. Samkvæmt lögum jDessum skulu tvær nýjar málgreinar bætast aftan við 16. gr. laganna frá 1955, svohljóðandi: „Nú verður sjóðfélagi að láta af stöðu sinni vegna heilsubrests, en tek- ur síðan aftur við starfi, sem veitir aðgang að sjóðnum, og er honum þá heimilt að kaupa sér réttindi fyrir þann tíma, sem úr hefur fallið. Þeg- ar svo stendur á, að sjóðfélagi verður sökum heilsubrests að láta af stöðu sinni, en tekur þá eða síðar við lægra launuðu starfi, má reikna eftirlaun hans af Jrví starfinu, sem hærra var launað, enda hafi hann greitt iðgjöld samkvæmt því. Stjórn sjóðsins getur krafizt vottorðs tryggingayfirlæknis til sönnunar því, að sjóðfélaginn verði að láta af stöðu sinni vegna heilsu- brests. Þeir, sem gerðust sjóðfélagar áður en lög nr. 32 14. maí 1955 tóku gildi, halda rétti þeim, er lög nr. 101 30. des. 1943, 12. gr. veittu Jæim til að krefjast greiðslu ellilífeyris úr sjóðn- um, er samanlagður aldur þeirra og Jjjónustutími nemur 95 árum, enda hafi þeir fullnægt þeim skilyrðum, sem Jaeirri reglu fylgdu samkvæmt eldri lögum, þar á meðal um greiðslu iðgjalda í lífeyrissjóðinn, unz greindu tímamarki er náð.“ 8. liig nr. 27/1959 um breyting á lögum nr. 24/1956, um almannatryggingar. Lögin fela í sér 100% hækkun slysabóta vegna dauða lögskráðra sjómanna (sjá nánar í 2. hefti 19. árg. Tryggingamála, bls. 19). Lög nr. 28/1959 um breyting á lögum nr. 24/1956, um almannatrygg- ingar. Samkvæmt lögum þessum geta sjúkrasamlagsstjórnir á 2. verðlagssvæði ákveðið, að fengnu samþykki trygginga- ráðs, að samlagsmenn skuli greiða 5 krónur fyrir hvert viðtal á lækninga- stofu og 10 krónur fyrir hverja vitjun heimilislæknis (sjá nánar í 2. hefti 19. árg. Tryggingamála, bls. 20). II. Þingsályktanir. 1. Þingsályktun um heimild fyrir ríkis- stjórnina til að greiða uppbætur á laun starfsmanna ríkisins. í þingsályktuninni segir m. a., að á eftirlaun og lífeyri skuli greiða 6% uppbætur, þó þannig, að 9% uppbætur skuli greiddar á eftir- laun lífeyrisþega, sem hafa eigi hærri el’tirlaun samtals en sem svarar hámarks- grunnlaunum í XII. flokki launalaga. 2. Þingsályktun um læknishjálp sjómanna á fjarlægum miðum. Skorað á ríkis- stjórnina að athuga, á hvern liátt hægt sé að tryggja togarasjómönnum nauð- synlega læknishjálp, J)egar togararnir eru að veiðum á fjarlægum miðum. 3. Þingsályktun um vinnuskilyrði og stofn- un vist- og vinnuheimila fyrir aldrað fólk. Samkvæmt ályktuninni skal sam- einað Alþingi kjósa 5 manna nefnd til að athuga, á hvern hátt unnt sé að búa öldruðu fólki skilyrði til að nota starfs- orku sína. Nefndin kýs sér formann úr sínum hópi. Nefndin skal m. a. taka til athugunar þessi atriði: 1) Stofnun vinnuheimila fyrir aldrað fólk og þá, sem hafa skerta starfs- orku. 2) Stofnun vist- og hjúkrunarheimila.

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.