Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.12.2000, Blaðsíða 14

Sveitarstjórnarmál - 01.12.2000, Blaðsíða 14
FRÆÐSLUMÁL Skóli þar sem sköpunargleði og hug- myndaflug nemenda fær að njóta sín Arný Inga Pálsdóttir, skólastjóri Heíðarskóla Þegar ég hóf störf sem skólastjóri Heiðarskóla i ágúst árið 1998 stóð yfír undirbúningur útboðs á innréttingum og öllum búnaði skólans. Það var ánægjulegt og mikil- vægt að taka þátt í þeim undirbúningi og geta komið á framfæri ýmsum faglegum sjónarmiðum. Einsetning Heiðarskóla og sú ágæta kennsluaðstaða sem þar er gefúr kennurum möguleika á aukinni sam- vinnu og vinnu í teymum. Hægt er að brjóta upp bekkjareiningar, aldursblanda nemendum og skipta þeim í mismunandi stóra hópa. Jafnframt er hægt að byggja brýr á milli námsgreina eftir verkefnum hveiju sinni. Auðvelt er að bjóða upp á fjölbreytta og sveigjanlega kennsluhætti sem byggja á kenningum Howard Gardners en þær taka mið af mismunandi hæfni nemenda. Slík kennsla reynir jafnframt á rök- og málgreind sem og verklega hæfni þar sem sköpunargleði og hugmyndaflug nemenda fær að njóta sín. Með því að bjóða upp á fjöl- breytta kennsluhætti og vinnubrögð er líklegra að hægt sé að bjóða fleiri nemendum nám við hæfi. Sú góða aðstaða sem Heiðarskóli býður fyrir félags-, íþrótta- og tómstundastarf nemenda ýtir undir þær væntingar að í skólanum geti blómstrað gott félags- starf, nemendum og for- eldrum þeirra til gagns og gleði. Með góðu samstarfi foreldra, kennara, nem- enda og utanaðkomandi aðila getur skólinn hæg- lega orðið menningarmið- stöð hverfisins. Það er von mín að hér eigi eftir að njóta sín í starfi hugmynda- og hæfi- leikaríkt fólk sem er tilbú- ið til þess að nýta sér þessa ffábæru aðstöðu til þess að standa að ýmiss konar skólaþróunarverkefnum. Enn frernur að nemendur okkar hafi bæði gagn og gaman af skólagöngu sinni. Það er markmið Heiðar- skóla að gera nemendur sína ábyrga, gagnrýna, fróðleiksfúsa, fordóma- lausa og víðsýna. 268 Nýr skóli í leik og starfi. Myndirnarfrá Heiðarskóla eru fengnar frá Víkurfréttum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.