Sveitarstjórnarmál - 01.12.2000, Side 14
FRÆÐSLUMÁL
Skóli þar sem sköpunargleði og hug-
myndaflug nemenda fær að njóta sín
Arný Inga Pálsdóttir, skólastjóri Heíðarskóla
Þegar ég hóf störf sem skólastjóri Heiðarskóla i ágúst
árið 1998 stóð yfír undirbúningur útboðs á innréttingum
og öllum búnaði skólans. Það var ánægjulegt og mikil-
vægt að taka þátt í þeim undirbúningi og geta komið á
framfæri ýmsum faglegum sjónarmiðum.
Einsetning Heiðarskóla og sú ágæta kennsluaðstaða
sem þar er gefúr kennurum möguleika á aukinni sam-
vinnu og vinnu í teymum. Hægt er að brjóta upp
bekkjareiningar, aldursblanda nemendum og skipta
þeim í mismunandi stóra hópa. Jafnframt er hægt að
byggja brýr á milli námsgreina eftir verkefnum hveiju
sinni.
Auðvelt er að bjóða upp á fjölbreytta og sveigjanlega
kennsluhætti sem byggja á kenningum Howard Gardners
en þær taka mið af mismunandi hæfni nemenda. Slík
kennsla reynir jafnframt á rök- og málgreind sem og
verklega hæfni þar sem sköpunargleði og hugmyndaflug
nemenda fær að njóta sín. Með því að bjóða upp á fjöl-
breytta kennsluhætti og vinnubrögð er líklegra að hægt
sé að bjóða fleiri nemendum nám við hæfi.
Sú góða aðstaða sem Heiðarskóli býður fyrir félags-,
íþrótta- og tómstundastarf
nemenda ýtir undir þær
væntingar að í skólanum
geti blómstrað gott félags-
starf, nemendum og for-
eldrum þeirra til gagns og
gleði. Með góðu samstarfi
foreldra, kennara, nem-
enda og utanaðkomandi
aðila getur skólinn hæg-
lega orðið menningarmið-
stöð hverfisins.
Það er von mín að hér
eigi eftir að njóta sín í
starfi hugmynda- og hæfi-
leikaríkt fólk sem er tilbú-
ið til þess að nýta sér þessa
ffábæru aðstöðu til þess að
standa að ýmiss konar
skólaþróunarverkefnum.
Enn frernur að nemendur
okkar hafi bæði gagn og
gaman af skólagöngu
sinni.
Það er markmið Heiðar-
skóla að gera nemendur
sína ábyrga, gagnrýna,
fróðleiksfúsa, fordóma-
lausa og víðsýna.
268
Nýr skóli í leik og starfi.
Myndirnarfrá Heiðarskóla eru
fengnar frá Víkurfréttum.