Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.12.2000, Blaðsíða 45

Sveitarstjórnarmál - 01.12.2000, Blaðsíða 45
FÉLAGSMÁL Úttektir á félagsþjónustu sveitarfélaga - nýjar leiðir Marta Bergman félagsráðgjafi Vorið 1999 fór ég ásamt félögum í Samtökum félagsmálastjóra á ís- landi i kynnisferð til Englands þar sem við heimsóttum meðal annars höfuðstöðvar Joint Review í London. Joint Review er sérstök stofnun undir stjórn Audit Commission, sem er ríksendurskoð- un fyrir England og Wales, og Soci- al Service Inspectorate (SSI), sem fer með sérstakt eftirlit með félags- þjónustu sveitarfélaga og heyrir undir breska heilbrigðismálaráðu- neytið. Hlutverk Joint Review er að gera heildarúttekt á félagsþjónustu sveitarfélaga í Englandi og Wales. í heimsókninni voru okkur kynntar að því er ég tel afar áhugaverðar að- ferðir við úttektir á félagsþjónustu sveitarfélaga. Hugmyndin að baki úttektum Joint Review er byggð á heildarsýn yfir félagsþjónustu sveit- arfélaga. Þar tvinnast saman aðferð- ir félagsvísindanna, víðtæk félags- leg fagþekking meðal annars á sviði öldrunar, fotlunar, bamavemdar og vimuvarna auk þekkingar og reynslu af gæðastjómun. Um er að ræða vinnuferli sem hefur verið þró- að í áraraðir af sérfræðingum og verður ekki numið á skömmum tíma. í kjölfar áðumefndrar kynnis- ferðar fór ég þess á leit við fram- kvæmdastjóra Joint Review, John Bolton, að ég fengi að kynna mér ít- arlega starfsaðferðir stofnunarinnar. Niðurstaðan varð sú að mér var boðið að dvelja hjá stofnuninni og fylgjast með úttektum á sveitarfé- lögunum Bromley Kensington/ Chelsea í Englandi. Nokkur tími leið áður en ég byijaði þar sem gæta þurfti allra formsatriða, þar á meðal að leita samþykkis viðkomandi sveitarfélaga, en kynningin hófst síðan í júní sl. Meðan á dvölinni stóð fylgdist ég með úttektum á fé- lagsþjónustu áðumefndra sveitarfé- laga, vinnu teyma og úrvinnslu gagna í sveitarfélögunum sjálfum sem og í höfuðstöðvum Joint Re- view. Jafnframt kynnti ég mér starfsaðferðir Social Service In- spectorate og þá staðla sem stofnun- in miðar við í úttektum sinum. Kynningin hófst sem fyrr segir í júní og lauk í enda október. Breytt hugmyndafræöi A níunda og tíunda áratug síðustu aldar ruddi sér til rúms svonefnd markaðsstefna í breskri stjómsýslu. Einkunnarorð stefnunnar voru „Compulsory Competitive Tender- ing“ sem má kalla samkeppnishvetj- andi útboð. Stefnan lagði meðal annars áherslu á markaðsvæðingu ýmissa þátta í opinberri þjónustu, þar á meðal félagsþjónustu sveitar- félaga. í framkvæmd var þessi stefha að- allega gagnrýnd fyrir einhæft mat sem fólst einkum í því að meta kostnaðinn við þjónustuna. Þá var bent á að lágur kostnaður við ein- staka þætti i félagsþjónustu sveitar- félaga, svo sem bamavemd, gat ým- ist bent til góðrar eða slæmrar þjón- ustu. Sem dæmi má nefha að fá til- vik alvarlegra barnaverndarmála gátu verið annað tveggja vísbending um slaka greiningarvinnu eða öflugt fyrirbyggjandi bamavemdarstarf. Við framangreindri gagnrýni var brugðist með endurbættri stefnu undir formerkjunum „Better Govemment“ eða betri stjómsýsla. Þjónusta á vegum hins opinbera var áffam boðin út eða samið um fram- kvæmd hennar við einkaaðila, en krafan um gæði þjónustunnar var nú talin jafn mikilvæg og kostnaðurinn við hana. Mati á gæðum þjónust- unnar var bætt inn í stjómsýsluferlið og hugtakið „Best Value“ kom fram á sjónarsviðið til að stuðla að sífellt betri þjónustu. Sveitarfélögunum var gert að tileinka sér þessar nýju hugmyndir og starfshætti. Aður höfðu sveitarfélögin fengið aukið svigrúm til að breyta rekstrarfyrir- komulagi sínu en nú var einnig lögð áhersla á að tryggja gæði þjónust- unnar. Sveitarfélögum var gert að setja sér markmið og reglur um framkvæmd félagsþjónustunnar í samræmi við lög og reglugerðir sem um hana giltu. Á grundvelli hug- myndarinnar um „Best Value" var lögð áhersla á að bjóða út og gera samninga við einkaaðila um ein- staka þjónustuþætti að undangengnu hagkvæmnismati. Þá var sveitarfé- lögum gert að gæta hagsýni og að- halds í rekstri og láta gera úttektir á þjónustu sinni. Samkvæmt stefn- unni skyldi ríkið einnig gera úttektir á framkvæmd og gæðum félags- þjónustu sveitarfélaga. Ástæða þótti til að beita nýjum aðferðum við eftirlit ríkisins þar sem hefðbundnar markaðs- og gæðaúttektir, sem voru miðaðar við fjölda viðskiptavina og vinsældir þjónustunnar, voru ekki taldar eiga við meðal annars vegna þess að i lögum og reglum væri kveðið á um hveijir ættu rétt á þjónustunni, þjón- ustuþegar væru ekki alltaf sjálfVilj- 299
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.