Hús & Búnaður - 01.10.1967, Side 1
Búnaöur
ELDHÚS
Á síðari árum hefur verið lögð meiri og meiri áherzla
á vandvirkni við gerð eldhúsinnréttinga. Gildir þetta
jafnt um vinnu, efnisval og fyrirkomulag. Erlendis hafa
víða verið gerðar mjög nákvæmar rannsóknir á vinnu-
tilhögun húsmóðurinnar í eldhúsinu, sem arkitektar
hafa síðan getað byggt á við teikningar sínar. Slíkar
^ rannsóknir hafa ekki verið gerðar hér heima. Við verð-
um því að byggja á hinum erlendu niðurstöðum þó vit-
anlega sé nokkur munur á vinnutilhögun eftir löndum.
Eldhúsið er fyrst og fremst vinnustaður húsmóður-
innar. Störf hennar þar krefjast mikillar hreyfingar fram
og aftur. Margir hlutir eru notaðir við svo að segja hvert
einasta verk, sem hún framkvæmir. Það segir sig því
sjálft að ákaflega miklu varðar að sambandið milli
hinna einstöku tækja og vinnustaða sé sem hagkvæm-
ast. Það þætti lélegur verksmiðjueigandi, sem reisti
ekki verksmiðju sína með það fyrir augum að störfin
Fallegur púði, saumaður í grátt börefni. Sjá „Saumaklúbbinn"
inni í blaðinu.
OKTÓBER 1967 8
í NÆSTA BLAÐI M. A.:
Barnaherbergi — Saumaldúbburinn —
Skákklúbburinn — nýtt á markaðnum o. fl.
gengju sem greiðlegast og afköstin yrðu sem mest.
Enda yrði hann skamma stund samkeppnisfær. Enn
þann dag í dag eru þó smíðaðar eldhúsinnréttingar,
sem eru beinlínis rangt skipulagðar, eldhústækjum og