Hús & Búnaður - 01.10.1967, Page 4
Við hreingerningu og dagleg þrif skiptir miklu máli
að innréttingin sé þannig úr garði gerð að hún sé auð-
veld í hreinsun. Óþarfa skot og rifur safna til sín ó-
hreinindum, sem erfitt getur verið að komast að. Auð-
velt þarf að vera að taka út hillur og skúffur svo hsegt
sé að hreinsa þær og skápana að innan. Plastklæddar
innréttingar er yfirleitt létt að hreinsa en vel lakkaðar
innréttingar eru líka ágætar. Innréttingar úr tekki eru
sömuleiðis heppilegar í þessum efnum en þær eru
nokkuð dýrar.
fsskápur:
fsskápur skal vera nálægt borðkrók því margir hlutir
fara beint úr honum á matborðið. Hentugt er oft á tíðum
að ísskápurinn sé byggður inn í skáp eða vegg í hæfi-
legri hæð frá gólfi. Þegar ísskápur er innbyggður, þarfn-
ast hann loftræstingar að neðan og að ofan. Þarf að
gera ráð fyrir því strax þegar innréttingin er smíðuð.
ísskápurinn hitnar talsvert að aftan. Því þarf að ganga
svo frá að ekki sé hætta á að skápar sem komið kann
að vera fyrir yfir honum eða í námunda við hann hitni
líka og verpist. Þess skyldi líka gætt áður en ísskápur
er keyptur að hann opnist á heppilegan hátt. Stærð
og form ísskápsins þarf líka að velja þannig að hann
falli vel inn í umhverfi sitt. Stærð ísskápa er ýmist gefin
upp í kúbíkfetum eða lítrum. Hver sé heppilegasta
stærðin getur orkað tvímælis. Þó skyldi ekki ráðleggja
heimilum að kaupa minni en 7—8 kúbíkfeta skáp eða
190—220 lítra. ^
Uppþvottavél:
Uppþvottavélin er venjulega staðsett á gólfi við vask,
en betra ertalið að hafa vélina hærra frá gólfi þar sem
auðveldara er að vinna við hana. Nauðsynlegt er að
gera ráð fyrir uppþvottavél þegar innréttingin er smíð-
uð, ef gert er ráð fyrir að kaupa hana. Flestar húsmæð-
ur munu þó enn sem komið er spara sér útgjöld við
kaup á henni.
Bökunarofn:
Bökunarofn er oft hafður við hliðina á ísskápnum
uppi á vinnuborðinu. Einangra þarf bökunarofninn, t.d.
með glerull, því hitinn er mikill við notkun. í síðasta
blaði var sýnt hvernig bökunarofn og ísskápur voru
felldir inn í sérstakan vegg. Þannig er hægt að losna
við hættuna á að nálægir skápar verpist í hitanum.
Loftræsting:
Nauðsynlegt er að loftræstingin í eldhúsinu sé góð.
Við matartilbúning kemur óhjákvæmilega Iykt og reyk-
ur sem flestir vilja vera lausir við að breiði sig um
íbúðina. Til þess að loftræsting verði góð hefur verið
talið að í eldhúsinu þurfi að hafa viftu sem flytji 400—
500 m:i af lofti á klukkustund. Sé loftinu blásið í stokk