Hús & Búnaður - 01.06.1968, Qupperneq 12
í dimmu skammdegis, meðan ísinn liggur enn við
land og allt er þröngt og tyrfið eygjum við samt alltaf
eina von, meira að segja fulla vissu: Sumarið kemur,
sól rennur upp. Við munum sjá birtu morgunsins og
getum aftur glaðst á ný. En til eru þeir, sem aldrei sjá
dimmuna víkja, enga von eiga um bjarta sumardaga,
en una þó glaðir við sitt. Von þeirra hlýtur að liggja
í hinni líðandi stund, viðfangsefni dagsins, árangri á-
þreifanlegra verka.
Sennilega eiga fá félög meiri hljómgrunn en félög
blindra. Merki og happdrættismiðar þeirra munu yfir-
leitt seljast vel, þótt framboð slíks varnings sé mikið.
Hitt er mér til efs, að fólk hirði eins um þótt það geti
orðið að liði á annan hátt. Blint fólk stundar fram-
leiðslu á varningi, sem við þurfum mikið að nota, en
við gætum einnig orðið að liði með því að kaupa. Og
ef við hugsum dálítið dýpra, gæti slíkur hlutur á heim-
ilinu haft meira gildi en margir aðrir. Kannski gæti
hann minnt okkur á sumt sem okkur nútímamenn van-
hagar einna mest um.
Okkur sjáandi mönnum hættir til að vilja gylla verk
okkar sem mest, hver sem þau eru. E.t.v. er okkur
mest í mun, að þau líti sem bezt út á yfirborðinu.
Hinn blindi lítur ekki á verk sitt til þess að dást að
því, heldur fer um það höndum til þess að það megi
verða sem bezt úr garði gert. Metnaður hans liggur
ekki í að skapa verk sem glansar og skín, heldur eitt-
hvað sem raunverulega ER. Er það ekki eitthvað skylt
við spurninguna sem eitt sinn var orðuð svo: Að vera
eða vera ekki?
í lítilli verzlun að Ingólfsstræti 16 hefur Körfugerðin
muni sína til sýnis og sölu. Munir þessir eru blindra-
iðn, þótt erfitt muni að sjá þess merki. Körfuhúsgögn
hafa talsvert rutt sér til rúms á síðustu tímum og notk-
un þeirra yfirleitt aukizt. Annars hafa þau átt allmiklum
vinsældum að fagna um langan tíma, þótt nokkur ára-
skipti séu að tízku þeirra. Ýmsa augljósa kosti hafa
körfuhúsgögn. Gerð þeirra og munstur getur verið með
ýmsum hætti, og þau minna stundum dálítið á antík, en
eru létt og þægileg í meðförum. Vegna þess hve létt
þau eru, er auðvelt að breyta til með þeim, jafnvel flytja
þau út á svalirnar eða í garðinn og nota þau þar á
góðviðrisdögum, en geta þess á milli farið vel í stof-
unni. Þau eru sveigjanleg og ekki eins hörð og stíf og
venjuleg húsgögn.
Annars eru það fyrst og fremst körfur af mörgum
gerðum, sem þarna eru á boðstólum, og svo vöggur,
bæði barnavöggur og brúðuvöggur af ýmsum stærðum.
Ef þið hafið í hyggju að kaupa brúðuvöggu handa dótt-
urinni, ættuð þið að líta þarna inn. Auk þess er gam-
an að sjá hversu vel hið blinda fólk hefur vandað til
iðju sinnar, þótt það hafi ekki átt þess kost að virða
hana fyrir sér á sama hátt og við getum gert.