Morgunblaðið - 24.11.2011, Page 1

Morgunblaðið - 24.11.2011, Page 1
F I M M T U D A G U R 2 4. N Ó V E M B E R 2 0 1 1  Stofnað 1913  276. tölublað  99. árgangur  ÞAKKARGJÖRÐ- ARHÁTÍÐIN ER FALLEG HEFÐ DREYMIR GOLF Á ST. ANDREWS FEÐGUNUM FER VEL AÐ VINNA SAMAN FINNUR.IS OG VIÐSKIPTABLAÐ GEFA ÚT TREE OF LIFE 33KALKÚNN OG MEÐLÆTI 10 Rúnar Pálmason runarp@mbl.is Nú stefnir í að á milli 4.000 og 5.000 Íslendingar fari með Icelandair til Boston í október, nóvember og des- ember á þessu ári og setji þar með nýtt met í Boston-ferðum með flug- félaginu. Um er að ræða um 10% aukningu frá árinu 2010, sem var þó algjört metár á þessu sviði, að sögn Guðjóns Arngrímssonar, upplýsinga- fulltrúa Icelandair. Flogið er daglega til Boston um þessar mundir og segir Guðjón að sætanýtingin sé frábær. Meirihluti farþeganna sé útlendingar, ýmist að koma frá Íslandi eða á leið frá Evrópu til Bandaríkjanna. Flestir Íslendinganna séu á leið í hefðbundna borgarferð, þ.e. þeir gisti á miðborgarhót- elum, sæki söfn, ýmsa viðburði og veitingahús og kíki í verslanir. Staða dollarans sé vafalaust ein af skýringunum á auknum vinsældum en einnig aukið framboð flugferða. „Ef þú ert í þessum gír að vilja fara í H&M, Cap, kaupa iPad, eða bara hvað sem er, þá er hagstæðara að gera það þarna megin við Atlantshafið en hinum megin,“ segir Guðjón. Þess sér stað á Keflavíkurflugvelli að margir farþeganna hafa látið til sín taka í verslunum ytra. Kári Gunn- laugsson, yfirdeildarstjóri tollgæsl- unnar á flugvellinum, segir að margir fari að rauða hliðinu og greiði virðis- aukaskatt af þeim raftækjum sem þeir hafa keypt og vinsælust eru í dag myndavélar, iPad-spjaldtölvur og far- tölvur. „Það er mun meira um að fólk skili sér í rauða hliðið til að greiða sín gjöld, við verðum mjög varir við það,“ segir Kári. Hver einstaklingur má kaupa varning fyrir samtals 65.000 krónur í útlöndum og flytja með sér. „Eins og útsöl- urnar og tilboðin eru í Ameríku í dag, þá færðu ansi mikið fyrir þetta,“ segir Kári. Það komi þó fyrir að fólk fari yfir mörkin og þá verði það að taka afleiðingunum. Í þeim tilvikum þarf fólk að greiða aðflutningsgjöld og sekt sem nemur aðflutningsgjöldunum og 15% álagi. „Þá er þetta orðið svipað verð og hér heima,“ segir Kári. „Þá er hagnaðurinn af þessu farinn.“ Nýtt met í Boston-ferðum  10% aukning frá metárinu 2010  Fleiri fara í rauða hliðið Í gegn Farþegar í Leifsstöð. Morgunblaðið/Ómar „Hún var dálítið úfin greyið og blaut en hún jafnaði sig fljótt, flaug einn hring yfir okkur og svo burt,“ segir Leifur Halldórsson í Ögri í Ísafjarðardjúpi. Hann gekk í gær fram á uglu sem hafði fest sig und- ir pípuhliði í gryfju hálffullri af vatni. Ekki reyndist átakalaust að ná henni úr prísundinni og sem betur fer var Leifur með hanska því uglan beit frá sér. Á endanum var hún þó frelsinu fegin. Ljósmynd/Leifur Halldórsson Uglu bjargað úr ógöngum Óttast er að nýr fjársýsluskattur upp á 10,5% af launagreiðslum muni koma þungt niður á sparisjóðunum sem aðallega þjóna dreifbýlinu. Velta á hverja afgreiðslu er til- tölulega lítil og leggst skatturinn því hlut- fallslega þyngra á þá en stóru bankana. „Þetta lendir því harkalegar á þeim og það er mjög dap- urlegt að þessi skattur, sem er til- kominn vegna hruns stóru bank- anna, skuli verða til að þrengja að þeim litlu sem eftir eru,“ segir Ari Teitsson, stjórnarformaður Sparisjóðs Suður- Þingeyinga. „Þetta er í rauninni bara kornið sem fyllir mælinn af því að búið er að leggja á alls konar gjöld frá hruni. Mest er auð- vitað afleiðing af því en svo hefur verið bætt jafnt og þétt á stabbann, á einhverjum tímapunkti er þetta orðið of mikið.“ Hann segir að nú sé unnið með um þriggja prósenta vaxtamun, þar af fari eitt í skatta. En er hægt að fækka fólki? „Það er ekki auðvelt, við teljum okkur alls ekki vera ofmannaða,“ segir Ari. „Og rætt er um að einstaklingar þurfi meiri skuldaeftirgjöf, það er þá lítil von til þess að þeir þoli þá hærri vexti af lánum.“ kjon@mbl.is MFjársýsluskattur »Viðskipti Baggi á spari- sjóðina  „Þetta er kornið sem fyllir mælinn“ Sjóður » Sparisjóður Suður- Þingeyinga er með um 10% af samanlagðri veltu sparisjóða landsins. » Hagnaður af rekstrinum í fyrra var 25,5 milljónir króna.  Skattur á kolefni í föstu formi stefnir í tvísýnu uppbyggingu kís- ilvers í Helguvík og dregur talsvert úr líkunum á því að áform um kís- ilver við Húsavík verði að veruleika. Þetta er álit fjárfestingarsviðs Ís- landsstofu en starfsemi þess heyrir undir stjórnvöld og hefur að mark- miði að laða erlenda fjárfesta til Ís- lands. „Þá eykst óvissan um eitt fjár- festingarverkefni sem snýst um endurvinnslu á málmi hér á landi.“ Ákvörðun um að leggja kolefnis- gjöld á aðföng þýði annaðhvort að Ísland hætti þátttöku í evrópska við- skiptakerfinu með losunarheimildir eða sé meðvituð ákvörðun um tvö- falda gjaldlagningu á hluta íslensks iðnaðar. »6 Vara við kolefnis- gjaldi á aðföng  Rekstur flugfélagsins Astraeus, flugrekstraraðila Iceland Express, hefði ekki þurft að fara í þrot ef grip- ið hefði verið til nauðsynlegra að- gerða fyrir sex til níu mánuðum. Bú- ið hafi verið að tryggja reksturinn út veturinn en verkefnin svo slegin af. Þetta segir Bruce Dickinson, söngvari Iron Maiden, einnar vinsæl- ustu þungarokkshljómsveitar heims og fyrrverandi flugmaður og mark- aðsstjóri flugfélagsins Astraeus, við Morgunblaðið. Hann vinnur nú sjálf- ur að því að reyna að kaupa félagið og koma því af stað aftur. »8 Vinnur að því að kaupa Astraeus –– Meira fyrir lesendur FYLGIR MEÐ MORGUNBLAÐINU Í DAG 3 - 110 R. 10 R. R. hálsi 3 - 110 R . . .

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.