Morgunblaðið - 24.11.2011, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. NÓVEMBER 2011
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is
Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson,
vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Marta María Jónasdóttir fréttastjóri dægurmála martamaria@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Ef aðeins á að baka eina sort fyrir jólin verða pipar-
kökur oftar en ekki fyrir valinu. Krakkarnir á leikskól-
anum Álfasteini í Hafnarfirði hituðu sig upp fyrir að-
ventuna í gær með litríkum piparkökuskreytingum og
smökkuðu líka aðeins á dýrðinni með því að sleikja
fingurna að hætti frægustu sjónvarpskokka.
Litríkar piparkökur á Álfasteini
Morgunblaðið/Golli
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
„Grundvallarmarkmiðið er að lög-
reglan hér sé óvopnuð og þá horfa
menn á reynsluna erlendis frá –
vopn kalla á vopn – og það vilja
menn ekki,“ segir Ögmundur Jón-
asson innanríkisráðherra um vopna-
burð lögreglunnar.
Fram kom í Morgunblaðinu í gær
að skammbyssur væru þegar í ein-
hverjum hluta lögreglubíla nokk-
urra lögregluembætta landsins og
önnur vinna að því að koma byssum
fyrir í bílum sínum.
Ögmundur segir að almenna
reglan sé sú að almennir lögreglu-
menn beri ekki byssur og hafi ekki
vopn í bifreiðum sínum. Frá 1992
hafi sérsveit lögreglunnar haft vopn
undir höndum og í bílum sínum.
Auk þess séu dæmi um að lögreglu-
embætti úti á landsbyggðinni setji
vopn í bifreiðar sínar, sérstaklega
þar sem um langar vegalengdir sé
að fara, meðal annars til þess að
geta aflífað skepnur komi sú staða
upp.
Vilja takmarka vopnaburð
Lögregluembættin geta tekið
ákvarðanir um að vera með byssur í
bílum sínum að höfðu samráði við
ríkislögreglustjóra. Ögmundur seg-
ir að ríkislögreglustjóri og embætt-
in vilji flýta sér hægt í breytingum
á vopnaburði. Almenna viðhorfið
innan lögreglunnar hafi verið að
takmarka mjög vopnaburð. „Ég er
mjög sammála því viðhorfi,“ segir
hann og leggur áherslu á að varlega
sé stigið til jarðar í þessu efni.
Steinar Adolfsson, framkvæmda-
stjóri Landssambands lögreglu-
manna, sagði við Morgunblaðið í
gær að mikilvægt væri að varn-
arbúnaðurinn væri í lagi og fagleg
úttekt, greining á aðstæðum og
áhættumat, þyrfti að fara fram. Ög-
mundur segir það áhyggjuefni ef
lögreglumenn séu settir í hættu
eins og gerst hafi nýlega. Við þeirri
hættu þurfi að bregðast en forðast
beri að vígbúast og vopnvæða lög-
regluna. Hann lýsir yfir ánægju
með það hvernig lögreglan hafi tek-
ið á þessum málum og þeim við-
horfum sem ríki innan lögreglunn-
ar. „Ég skil hins vegar áhyggjur
Landssambands lögreglumanna
sem koma meðal annars fram í
Morgunblaðinu,“ segir hann.
Ögmundur segist treysta lögregl-
unni til þess að hafa þann varn-
arbúnað sem hún þurfi á að halda.
Embættin hafi lagt áherslu á að
búa starfsmönnum sínum eins
öruggt starfsumhverfi og hægt sé
og ákveðið hafi verið að hafa meiri
samræmingu í innkaupum. Aðeins
sé beðið eftir tillögum frá embætti
ríkislögreglustjóra þess efnis.
Óvopnuð lögregla markmiðið
Innanríkisráðherra segir reynsluna þá að „vopn kalli á vopn“ sem eigi að forðast
Skilur áhyggjur lögreglumanna og beðið sé eftir tillögum frá ríkislögreglustjóra
„Ég skil hins vegar
áhyggjur Lands-
sambands lög-
reglumanna“
Ögmundur Jónasson
„Hann var mjög þungur, miklu þyngri en venjuleg full-
orðin tófa,“ sagði Birgir Hauksson tófuskytta sem veiddi
óvenjuþungan ref í fjalli ofan við Lundarreykjadal á
föstudaginn var. Birgir bar refinn til byggða.
„Hann seig alveg verulega í. Ég var margsinnis að því
kominn að skera af honum skottið og henda honum en
það varð ekki af því,“ sagði Birgir. Hann var búinn að sjá
refinn neðan af vegi og vissi því af honum. Á föstudaginn
fór hann í refaleit upp á fjall. „Það eru blettir sem maður
þekkir þar sem þær sofa og maður fer og gáir á þá. Það
var auðvelt að sjá hann því það var autt.“
Refurinn var yrðlingur frá því í vor en orðinn akfeitur
og því ljóst að hann hefur haft nóg að éta. Birgir taldi lík-
legt að hann hefði legið í hræjum og jafnvel komist í ein-
hvern úrgang.
„Hann hefur allavega ekki lifað á rjúpu, það er alveg á
hreinu því hún er nánast aldauða á þessu svæði eins og
annars staðar í Borgarfirðinum,“ sagði Birgir.
„Ég hef séð töluvert af tófu,“ sagði Birgir en hann er
búinn að veiða meira en 120 tófur það sem af er þessu ári.
„Það er með því mesta sem ég hef veitt þegar maður hef-
ur ekkert verið að beita sér við þetta. Fyrir um 15 árum
veiddum við 156 tófur á einu ári en það var með yrðling-
um. Nú er þetta að segja má allt fullorðin dýr.“
Framlög sveitarfélaga til refaveiða minnka stöðugt og
ríkið hætt að styrkja þær. Birgir sagði að kvótinn í
Lundarreykjadal hefði verið 19 dýr á þessu ári og hafði
heyrt að til stæði að minnka hann í 14 dýr. Hann sagði
fjölgun tófunnar sýna sig í minna fuglalífi og hending
væri að gæs kæmi upp ungum á þessu svæði.
gudni@mbl.is
Veiddi óvenjufeitan ref
Ljósmynd/Birgir Hauksson
Feitur Þessi óvenjulega bústni refur var skotinn í fjalli
ofan við Lundarreykjadal í Borgarfirði í síðustu viku.
Mikið er af tófum og rjúp-
an nær horfin í Borgarfirði
Um 250 voru sektaðir fyrir að leggja
ólöglega í Laugardal frá fimmtudeg-
inum 17. nóvember til sunnudagsins
20. nóvember, þ.e. á meðan á lands-
fundi Sjálfstæðisflokksins stóð.
Fjöldinn tekur til sekta í mestöllum
dalnum, þ.e. við sundlaugina, stúk-
una, Laugardalshöll og skautasvell-
ið.
Sektin nemur 5.000 krónum en sé
hún greidd innan þriggja daga er
gefinn afsláttur og þarf þá að greiða
3.900 kr. Sé miðað við að allir greiði
innan þriggja daga nema heildar-
sektirnar tæplega einni milljón
króna.
Samkvæmt upplýsingum frá Bíla-
stæðasjóði Reykjavíkur voru starfs-
menn hans í reglubundnu eftirliti í
dalnum á fimmtudag og föstudag en
lögreglan var þar eitthvað við eftirlit
á laugardag og sunnudag.
Það sem af er þessu ári er fjöldi
sekta, þ.e. stöðvunarbrotagjalda,
samtals 104.741.
Um 250
sektaðir í
Laugardal
5.000 kr. Sektað við landsfund.
Ætla má að hundruð Íslendinga hafi
beðið í ofvæni með Víkingalottómiða
í lúkunum fram eftir kvöldi í gær því
þegar draga átti út stærsta pott í
sögu lottósins kom upp bilun.
Stefán Konráðsson, fram-
kvæmdastjóri Íslenskrar getspár,
segir það tilviljun að bilun hafi orðið
einmitt þegar ofurpotturinn er svo
stór, en ástæðuna má rekja til Finn-
lands þar sem sölutölur og kerf-
istölur pössuðu ekki saman.
„Þetta verður allt að stemma
100% en það er her manns í Finn-
landi að reyna að finna út úr þessu.“
Stefnt er að því að draga kl. 9 í dag
að íslenskum tíma.
Ekki dregið
vegna bilunar
Laugavegi 174
2.990
Fyrir Heklubíla
Laugavegi 170-174 ‧ 590 5000 ‧ hekla.is ‧ hekla@hekla.is
Umfelgun frá
Ríkisstjórnin
ræðst á réttindi
almenns launa-
fólks, að mati
miðstjórnar Al-
þýðsambands Ís-
lands sem álykt-
aði um málið í
gær. Meðal þess
sem þar segir er
að skattlagning á
lífeyrissjóði sé
enn ein atlaga ríkisstjórnarinnar að
íslensku launafólki, og að ef farið
verði fram með þær hugmyndir og
fleiri verði ríkisstjórninni svarað af
fullri hörku.
Bent er á að sjö mánuðir séu síðan
stjórnvöld lofuðu að endurskoða
bætur almannatrygginga með hlið-
sjón af niðurstöðum kjarasamninga
milli ASÍ og SA, og að í fjárlaga-
frumvarpinu sé aðeins gert ráð fyrir
að bætur hækki um helming af því
sem samið var um. „Ríkisstjórnin
sem kennir sig við velferð ætlar
þannig ekki aðeins að svíkja eigin
loforð heldur einnig snupra þá sem
lökust hafa kjörin í okkar þjóð-
félagi.“ Þá segir að miðstjórn ASÍ
hafni alfarið síendurteknum árásum
á íslenskt launafólk.
Gylfi
Arnbjörnsson
Endurtekn-
ar árásir á
launafólk