Morgunblaðið - 24.11.2011, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. NÓVEMBER 2011
Jólastemningin er þegar farin að lífga upp á
Laugaveg í Reykjavík en þar er fjöldi verslana af
öllu tagi. Fyrst eftir hrunið 2008 drógu margir
saman seglin og gömul gildi eins og ráðdeild
náðu yfirhöndinni. Íslenska lopapeysan varð vin-
sæl jólagjöf. En að sögn Rannsóknaseturs versl-
unarinnar er neysluhegðunin nú aftur að fara í
sama horf, veltan eykst og verslun með raftæki
og húsgögn hefur aukist á ný.
Morgunblaðið/Kristinn
Björt jólaljósin prýða Laugaveg
Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Fjöldi þeirra sem hafa hlotið refsingu
en geta ekki hafið afplánun vegna
plássleysis í fangelsum landsins hefur
haldist stöðugur undanfarnar vikur
og mánuði. Á boðunarlista stofnunar-
innar eru nú í kringum 370 manns.
Það sem hefur komið í veg fyrir að
listinn hefur lengst er að margir hafa
getað afplánað í bráðabirgðafangels-
inu Bitru, sem hefur nánast verið full-
setið frá því það var tekið í notkun í
fyrra, og að skilyrði til að afplána
dóma með samfélagsþjónustu voru
nýlega útvíkkuð.
Páll Winkel, forstjóri Fangelsis-
málastofnunar, segir að sú staða hafi
vissulega komið upp að ekki hafi verið
hægt að láta menn sem hafa hlotið
dóma fyrir alvarleg afbrot hefja af-
plánun. Þá sé ljóst að miðað við nú-
verandi stöðu, þ.e. stöðugt þyngri
dóma og óbreyttan húsakost, muni
ekki takast að vinna á biðlistanum
sem nokkru nemi.
Á næsta ári er stefnt að því að hefja
rafrænt eftirlit og gert er ráð fyrir að
5-10 fangar geti afplánað hluta dóma
sinna með því að gangast undir það.
Mestu máli skiptir þó að fá stærri
húsakynni en eins og kunnugt er hef-
ur ríkisstjórnin ákveðið að byggja
nýtt fangelsi á Hólmsheiði. Fram-
kvæmdasýsla ríkisins hefur fengið
það hlutverk að hafa umsjón með
undirbúningi og framkvæmd sam-
keppninnar um hönnun og innanrík-
isráðherra hefur skipað dómnefnd til
að fara yfir tillögurnar. Formaður
dómnefndar er Steinunn Valdís Ósk-
arsdóttir.
Samkvæmt upplýsingum frá inn-
anríkisráðuneytinu eiga niðurstöð-
urnar að liggja fyrir í maí 2012.
Kemur inn við 2. umræðu
Fangelsið á Hólmsheiði á að fjár-
magna með skattfé en í fjárlögum
2012 er þó ekki gert ráð fyrir fram-
lögum til smíði þess. Ögmundur Jón-
asson innanríkisráðherra sagði á
fundi með allsherjarnefnd fyrir stuttu
að framlög til fangelsisins, sem á að
kosta um 2,1 milljarð, yrðu sett inn í
frumvarpið við aðra umræðu á Al-
þingi.
Bitra heldur boðunarlista í horfinu
Um 370 manns á boðunarlista Fangelsismálastofnunar Bráðabirgðafangelsið Bitra nánast fullsetið
Búið að skipa í dómnefnd fyrir fangelsi á Hólmsheiði Framlögin koma fram við 2. umræðu fjárlaga
Hlutfall brota að
baki boðunarlista
Þjófnaður/Fjársvik 11,64%
Annað 0,95%
Eignaspjöll 0,48%
Auðgunarbrot 0,71%
Fíkniefnabrot 21,38%
Kynferðisbrot 2,38%
Ofbeldisbrot 11,16%
Skjalafals/útl.lög 1,66%
Umferðarlagabrot/
nytjataka 49,64%
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Gert er ráð fyrir að Ögmundur Jón-
asson innanríkisráðherra taki á föstu-
dag ákvörðun um það hvort fyrirtæki
kínverska auðmannsins Huangs Nu-
bos fái að kaupa Grímsstaði á Fjöllum.
Ríkið á hluta jarðarinnar og deilir því
nýtingarrétti með seljendum. Í 40.
grein stjórnarskrár segir m.a.: „Ekki
má heldur taka lán, er skuldbindi rík-
ið, né selja eða með öðru móti láta af
hendi neina af fasteignum landsins né
afnotarétt þeirra nema samkvæmt
lagaheimild.“
Ólíklegt er að þetta merki að ráð-
herra hafi ekki lokaorðið, að Alþingi
þurfi að samþykkja sérstakt frumvarp
vegna sölunnar, að mati Sigurðar Lín-
dal lagaprófessors. Þegar talað sé um
fasteignir landsins sé sennilega átt við
fasteignir ríkisins en ekki eignir
einkaaðila.
„Mín fyrstu viðbrögð eru að túlka
rétt ríkisins til að leyfa sölu í þessu til-
felli frekar rúmt,“ segir Sigurður.
„Nýtingarréttur er mjög mikilvægur
þáttur í eignarréttinum. Mér finnst
mjög hæpið að hann sé undanþeginn
lögum um eignarrétt, þau hljóta að
eiga við allar meginheimildir eignar-
réttarins. Mér finnst óeðlilegt ef nýt-
ingin [á jarðarhluta seljendanna] væri
undanþegin þannig að Alþingi þyrfti
að fjalla um málið. En ég verð að játa
að ég hef ekki lagst yfir þetta.“
Ögmundur Jónasson segir meginat-
riði málsins vera að sala af þessu tagi
til aðila utan Evrópska efnahags-
svæðisins sé óheimil samkvæmt lög-
um en í þeim sé að finna undanþágu-
atkvæði. Fyrirtæki Huangs hafi sótt
um slíka undanþágu. „Síðan fer málið
í meðferð stjórnsýslunnar þar sem
menn skoða fordæmi og lagafram-
kvæmd og fleira en það er gert á
grundvelli þessara laga. Menn horfa
aftur í tímann, til þess hvað hafi verið
tíðkað og hvernig farið hafi verið með
undanþágubeiðnir, þá hafa lögin yf-
irleitt verið túlkuð mjög þröngt. Síðan
horfa menn til þess hvaða fordæm-
isgildi þetta hefði.Við lítum svo á að
ákvörðunarvaldið sé fortakslaust hjá
innanríkisráðuneytinu og enginn hef-
ur í mín eyru vefengt það.“
Fær svar fyrir helgi
Innanríkisráðherra segir ákvörðunarvald um undanþágu
vegna kaupa Huangs á Grímsstöðum fortakslaust hjá sér
Umhverfis- og samgöngunefnd Al-
þingis hefur farið fram á það við rík-
isendurskoðanda að hann mæti á
fund nefndarinnar í dag til að út-
skýra hvers vegna hann ætli ekki að
vinna skýrslu um fyrirhugaðar fram-
kvæmdir við Vaðlaheiðargöng.
„Það er mikil undrun hjá meiri-
hluta nefndarmanna yfir því að Rík-
isendurskoðun skuli hafa hafnað
þessari beiðni,“ segir Guðfríður Lilja
Grétarsdóttir, þingmaður VG og for-
maður nefndarinnar. „Bæði er það
þannig að Ríkisendurskoðun er und-
irstofnun Alþingis sem samkvæmt
lögum á að veita þingnefndum ráð-
gjöf auk þess sem arðsemismat ligg-
ur þegar fyrir og allar forsendur eru
ljósar, svo við erum bara að biðja um
að yfir það sé farið og það kannað til
hlítar.“
Birgir Ármannsson, fulltrúi Sjálf-
stæðisflokks í nefndinni, segist ótví-
rætt telja málið þess eðlis að það falli
undir verksvið Ríkisendurskoðunar.
Hann segist ekki ætla að rengja mat
ríkisendurskoðanda á eigin vanhæfi
til að fjalla um málið, „en það er
hugsanlegur möguleiki í þessu máli
að skipaður verði ríkisendurskoð-
andi tímabundið í hans stað.“
Óska
skýringa
á svari
Undrast höfnun
Ríkisendurskoðunar
Um helmingur þeirra sem
þurfa að bíða afplánunar hafa
hlotið dóma fyrir umferð-
arlagabrot eða nytjastuld.
Þessi staða endurspeglar for-
gangsröðun Fangelsismála-
stofnunar, þ.e. reynt er að
setja þá inn fyrst sem hafa
hlotið þyngstu dómana og fyrir
alvarlegustu afbrotin.
Konur eru tæplega 10%
þeirra sem eru á boðunarlist-
anum, samkvæmt upplýsingum
frá Fangelsismálastofnun.
Ríflega 90%
eru karlkyns
SMÁGLÆPAMENN BÍÐA
Toyota Land Cruiser 120 VX
Árgerð 2006. Ekinn 121 þ. km. Fallegur og vel með farinn. Sex
strokka bensínvél sem skilar 250 hestöflum. Upphækkaður á
nýlegum 33“ heilsársdekkjum. Leðurklæddur með öllum helsta
aukabúnaði. Sérstakt tilboðsverð kr. 3.990.000.
Áhugasamir hafið samband í síma 567 2277 eða 587 7007
Til sölu