Morgunblaðið - 24.11.2011, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 24.11.2011, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. NÓVEMBER 2011 Jónas Jónasson, dag- skrárgerðarmaður hjá Ríkisútvarpinu, lést á líknardeild Landspít- alans í fyrrakvöld eftir skammvinn veikindi. Jónas var áttræður, fæddur 3. maí 1931 í Reykjavík, sonur Sig- urlaugar Margrétar Jónasdóttur húsmóður og Jónasar Þorbergs- sonar, ritstjóra, alþing- ismanns og fyrsta út- varpsstjóra Rúv. Jónas var gagnfræð- ingur og nam bæði tón- list og leiklist hér heima, í Dan- mörku og á Bretlandi. Hann hóf störf hjá Ríkisútvarpinu sautján ára gamall og starfaði þar nær sleitu- laust til hinsta dags. Á löngum ferli sinnti Jónas rit- störfum samfara marg- víslegum störfum sín- um hjá RÚV. Hann skrifaði nokkrar bæk- ur og unglingabók hans Polli ég og allir hinir var valin besta bók ársins 1973. Hann skrifaði barnsögur fyr- ir útvarp, leikrit og samdi sönglög. Þá var hann leiklistar- gagnrýnandi á Alþýðu- blaðinu í tvö ár. Út- varpsþáttur hans, Kvöldgestir, var á dag- skrá klukkan ellefu á föstudagskvöldum í þrjá áratugi. Jónas var tvíkvæntur. Eftirlifandi kona hans er Sigrún Sigurðardóttir og eiga þau eina dóttur. Fyrri kona hans var Auður Steingrímsdóttir og eiga þau tvær dætur. Andlát Jónas Jónasson Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Sú fyrirætlan í frumvarpi fjármála- ráðherra að leggja stighækkandi skatta á kolefni í föstu formi „er bæði óvænt og ófyrirsjáanleg“, segir á minnisblaði fjárfestingarsviðs Ís- landsstofu, sem lagt var fyrir efna- hags- og viðskiptanefnd í gær. Starfsmenn sviðsins kynntu sjónar- mið sín á fundi nefndarinnar þar sem fram kemur gagnrýni á þessi skatt- lagningaráform en Íslandsstofa heyrir undir utanríkisráðuneytið og vinnur m.a. að því að laða erlenda fjárfestingu til Íslands. Á minnisblaði Þórðar H. Hilmars- sonar, forstöðumanns fjárfestingar- sviðsins, er minnt á að innan Evr- ópusambandsins hafi árum saman verið stefnt að aðild stórra iðnfyr- irtækja að evrópska viðskiptakerf- inu með losunarheimildir (ETS). Ekkert ríki innan EES hafi lagt skatt á kolefni í föstu formi til notk- unar í iðnaði. Einnig er bent á algera óvissu um framvinduna á næstu ár- um, þar sem í frumvarpinu er lýst fyrirætlunum um að gjald á kolefni í föstu formi fari stighækkandi til árs- ins 2015. Aukinni óvissu um nánustu framtíð sé bætt ofan á það óöryggi sem óvænt álagning nýrra skatta veldur. Í hinu umdeilda frumvarpi um kol- efnisskatta er annars vegar lögð til hækkun á kolefnisgjaldi vegna flug- véla- og þotueldsneytis frá 1. janúar nk. og hins vegar álagningu nýs gjalds á kolefni af jarðefnauppruna í föstu formi frá 1. janúar 2013. Flug- starfsemi mun heyra undir við- skiptakerfi ESB með losunarheim- ildir (ETS) frá 1. janúar nk og skv. tilskipun sem væntanlega verður tekin upp í EES-samninginn á næstu mánuðum mun stóriðjan heyra undir ETS frá og með 2013. Þegar stóriðjufyritæki færast undir evrópska viðskiptakerfið er ekki gert ráð fyrir skattlagningu þeirra með kolefnisgjaldi. Viðskipta- kerfið gengur út á að fyrirtækin fá úthlutaðar losunarheimildir úr sam- evrópskum potti og afli sér heimilda ef upp á vantar. Í umsögn Umhverf- isstofnunar er á það bent að með til- lögum um gjald á kolefni af jarðefna- uppruna í föstu formi sé verið að búa til nýtt stjórntæki í loftslagsmálum. Arnar Guðmundsson, verkefnis- stjóri fjárfestingarsviðs Íslands- stofu, segir í minnispunktum til efna- hags- og viðskiptanefndar í gær að „kolefnagjald á aðföng þeirra sem falla undir ETS í nafni þess að „eitt skuli yfir alla ganga“ er því annað- hvort ákvörðun um að hætta við þátttöku í ETS eða þá meðvituð ákvörðun um tvöfalda gjaldlagningu á hluta íslensks iðnaðar og fyrir- tækja sem gerir framsetninguna um leið merkingarlausa.“ Bæði óvænt og ófyrirsjáanlegt  Annaðhvort ákvörðun um tvísköttun eða að hætta í ETS Morgunblaðið/ÞÖK Álið Þegar stóriðjufyrirtæki færast undir evrópska viðskiptakerfið er ekki gert ráð fyrir skattlagningu þeirra með kolefnisgjaldi. Sú fyrirætlan að leggja skatta á kolefni í föstu formi hefur verið harðlega gagnrýnd að undanförnu. Kjartan Kjartansson Andri Karl „WOW er náttúrlega bara WOW, og við höfum sagt að okkur finnist Ís- land einfaldlega WOW. Svo er ekki verra að ef vörumerkinu er snúið við þá er þetta MOM [ísl. móðir] og það vilja allir vera í fanginu á móður sinni. Þannig að þetta fór ágætlega saman,“ sagði Skúli Mogensen, stjórnarformaður og aðaleigandi WOW Air, en opnað var fyrir bók- anir í hádeginu í gær. Skúli kynnti starfsemina fjölmiðlum í gær og fékk hann Jónu Lovísu Jónsdóttur, vaxt- arræktarkonu og prest, til að opna vefsvæði flugfélagsins og blessa starfsemina. Tólf áfangastaðir verða í boði í Evrópu næsta sumar hjá flugfélag- inu og verða um 130 þúsund sæti í boði. Áfangastaðir félagsins verða Alicante, París, Lyon, Basel, Köln, Stuttgart, Berlín, Lundúnir, Varsjá og Kraká. Segir Skúli að töluverður fjöldi af þeim 130 þúsund sætum sem séu í boði verði viðbót á markaðnum og markmið félagsins að stækka kökuna á ferðamannamarkaði. Hann telur raunhæft að tvöfalda fjölda ferðamanna sem koma til Íslands á næstu fimm árum. „Ágætt er að byrja með tólf staði, reyna gera það mjög vel og ná utan um verkefnið al- mennilega. Svo sjáum við til með framhaldið,“ segir Skúli spurður hvort stefnt sé að fjölgun áfanga- staða. Skapa sjötíu störf hér á landi Ráðið verður í fimmtíu til sextíu stöður hjá WOW auk flugmanna og hefur því verið beint til flugrekstr- araðila félagsins, sem verður íslenskættaða fyrirtækið Avion Ex- press, að litið verði til þess að ráða ís- lenska flugmenn eftir því sem kostur er. „Til að byrja með verða að minnsta kosti fimmtíu manns, bæði á skrifstofu, flugfreyjur og flugþjón- ar,“ segir Skúli. „Svo er líka mjög ánægjulegt að samstarsfaðilar okkar úti, sem eru að leigja okkur flugvél- ar, hafa mikinn áhuga á að ráða til sín íslenska flugmenn líka. Þannig að það gætu orðið allt að tuttugu störf í viðbót og því um sjötíu manns fyrir sumarið.“ Þá var greint frá því í gær að WOW Air muni notast við nýlegar Airbus A320-vélar sem taka 168 far- þega í sæti. Vefsvæði WOW Air sem opnað var í hádeginu réð ekki við álagið þegar á reyndi og gekk erfiðlega að komast inn á hana fram eftir degi. Á milli 400 og 500 manns fóru inn á síðuna á hverri sekúndu skömmu eftir að hún var opnuð og virðast netþjónar hennar ekki hafa ráðið við umferð- ina. „Það vilja allir vera í fanginu á móður sinni“  Byrjað að bóka hjá WOW Air í gær Morgunblaðið/Ómar Kynning Skúli Mogensen fór yfir starfsemi WOW með fjölmiðlum. Welcome Our Way » WOW Air ehf. hefur verið að fullu fjármagnað og verður í meirihlutaeigu Títan, sem er í eigu Skúla Mogensen. » Stjórn félagsins skipa Skúli Mogensen, Baldur Oddur Bald- ursson, Davíð Másson, hluthafi í Avion Capital Partners, og Björn Ingi Knútsson. » Skúli Mogensen verður stjórnarformaður félagsins. Líklegasta afleiðing boðaðra breytinga á kolefnisskatti til skamms tíma litið er sú að stefna í tvísýnu fyrirhugaðri uppbyggingu kísilvers í Helgu- vík. Þetta kemur fram á minn- isblaði Þórðar H. Hilmarssonar, forstöðumanns Fjárfesting- arsviðs Íslandsstofu, sem lagt var fyrir efnahags- og við- skiptanefnd í gær. Þórður segir einnig að tals- vert dragi úr líkunum á því að áform um kísilver við Húsavík, sem nýta myndi orkuna í Þing- eyjarsýslum, verði að veruleika auk þess sem óvíst sé að Elkem stækki verksmiðju sína á Grundartanga. Þá eykst óvissan um eitt fjárfestingarverkefni sem snýst um endurvinnslu á málmi hér á landi,“ segir hann. Ein afleiðing þess að stöðva uppbyggingu kísilvera er að þar með væru hugmyndir um verð- mæta áframvinnslu hér á landi einnig í uppnámi, að mati hans. „Þá eykst óvissan“ STEFNT Í TVÍSÝNU Umskipun á freðfiskfarmi úr flutn- ingaskipinu Ölmu yfir í systurskip þess Green Lofoten lýkur vænt- anlega á Fáskrúðsfirði síðdegis í dag, að sögn Garðars Jóhannssonar, framkvæmdastjóra Nesskipa sem eru með umboð fyrir útgerð Ölmu. Green Lofoten mun síðan sigla með farminn til St. Pétursborgar í Rússlandi. Sem kunnugt er missti Alma stýrið í Hornafjarðarósi í byrj- un mánaðarins og gat því ekki haldið ferð sinni áfram. Unnið er að því að koma Ölmu í slipp til að setja nýtt stýri á skipið. Ekkert liggur enn fyrir um hvar skipið verður tekið í slipp að sögn Garðars. Til greina kemur að taka skipið upp í þurrkví annaðhvort í Hafnarfirði eða á Akureyri, einnig kemur til greina að draga skipið til útlanda til viðgerðar. gudni@mbl.is Umskipun lýkur í dag Skannaðu kóðann til að lesa viðtal við Skúla Hátíðarkörfur Ostabúðarinnar eftir þínu höfði OSTABÚÐIN SKÓLAVÖRÐUSTÍG Við erum byrjuð að taka á móti pöntunum í síma 562 2772 og á ostabudin.is Opið: Mán - Fim 11:00 - 18:00 Fös 10:00 - 18:30 & Lau 11:00 - 16:00

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.