Morgunblaðið - 24.11.2011, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 24.11.2011, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. NÓVEMBER 2011 Efnahagslögsaga Íslands nær200 mílur frá strönd lands- ins, eins og hún er skilgreind. Þó ekki hvarvetna. Hvers vegna ekki? Vegna þess að sums staðar mætir hún efnahags- lögsögu annarra ríkja. Hvað gerist þá? Þá mætist landsréttur á miðri leið.    Mótmælendurvilja fá að tjalda á Austurvelli, í hjarta höf- uðborgarinnar og fá að haga um- gengni og snyrtimennsku að eigin smekk. Höfuðborgin hefur fyrir löngu ákveðið að Austurvöllur sé í senn skrúðgarður, samkomu- staður og hjarta höfuðborg- arinnar, sem allir skuli hafa jafn- an aðgang að.    Tjaldbúðir með tilheyrandisubbuskap gera almennum borgurum ómögulegt að njóta Austurvallar í samræmi við skipu- lag hans og hefðbundna notkun. Það gengur gegn rétti þeirra og sjálfsagt einnig viðhorfum mikils meirihluta almennings um hvernig nýta skuli þau sameiginlegu svæði sem fólk vill hafa í hávegum.    Borgarstjórn Besta flokksinslætur eins og „réttur“ tjaldbúanna sé hærri en hinna. Hvaðan hefur flokkurinn það?    Talsmaður borgarstjórans segirí viðtölum að í Ráðhúsinu hafi þeir ekkert heyrt um sóðalega umgengni, því engin kæra hafi borist. Austurvöllur er nokkra tugi metra frá Ráðhúsinu.    Hvernig fylgjast ráðamennBesta og Samfylkingar hans með málum aðeins fjær Ráðhús- inu, ef þetta er þekking þeirra á næsta nágrenni? Jón Gnarr Kristinsson Réttur eins á sín takmörk STAKSTEINAR Veður víða um heim 23.11., kl. 18.00 Reykjavík 1 léttskýjað Bolungarvík 1 snjóél Akureyri 1 snjókoma Kirkjubæjarkl. 2 léttskýjað Vestmannaeyjar 3 léttskýjað Nuuk -6 skýjað Þórshöfn 7 skýjað Ósló 3 þoka Kaupmannahöfn 5 skýjað Stokkhólmur 6 skýjað Helsinki 7 skýjað Lúxemborg 7 heiðskírt Brussel 11 skýjað Dublin 12 skýjað Glasgow 10 skúrir London 10 heiðskírt París 12 þoka Amsterdam 10 léttskýjað Hamborg 5 skýjað Berlín 1 þoka Vín 0 alskýjað Moskva -7 heiðskírt Algarve 16 léttskýjað Madríd 17 skýjað Barcelona 17 léttskýjað Mallorca 17 léttskýjað Róm 13 skýjað Aþena 12 léttskýjað Winnipeg 2 léttskýjað Montreal -2 snjókoma New York 8 alskýjað Chicago 5 léttskýjað Orlando 24 skýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 24. nóvember Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 10:25 16:05 ÍSAFJÖRÐUR 10:55 15:45 SIGLUFJÖRÐUR 10:38 15:27 DJÚPIVOGUR 10:00 15:28 Sigrún Rósa Björnsdóttir sigrunrosa@mbl.is Bruce Dickinson, söngvari Iron Mai- den, einnar vinsælustu þungarokks- hljómsveitar heims og fyrrverandi flugmaður og markaðsstjóri flug- félagsins Astraeus, segist í samtali við Morgunblaðið telja að rekstur Astraeus hefði ekki þurft að fara í þrot. „Fyrir sex mánuðum var fyrir- tækið búið að tryggja sér verkefni út veturinn og af ástæðum sem eru mér ekki ljósar voru öll þau verkefni sleg- in af á einn eða annan hátt af fyrrver- andi eiganda Iceland Express, eða alla vega á meðan hann var eigandi.“ Aðspurður játar Dickinson að þar eigi hann við Pálma Haraldsson. „Já, hann og fyrrverandi rekstrarstjóra Astraeus, Shawn Monnery, greindi verulega á. Sama átti við um hann og Mario Fulgoni forstjóra sem sagði af sér í sumar. „Þegar Shawn og Mario voru við stjórnvölinn höfðu þeir tryggt nægilega mörg verkefni til að koma flugfélaginu í gegnum veturinn. Ég er viss um að Pálmi sé ósammála því,“ segir Dickinson. Sannleikurinn hafi hins vegar verið sá að hætt hafi verið við samninga og lagt hald á flugvél í Bangkok eftir að sam- komulag náðist ekki. „Í lok október, þegar allt þetta hafði átt sér stað, þá var ekkert eftir.“ Betra að selja án Pálma „Ég tel að flugfélagið gæti enn ver- ið í rekstri ef réttar ákvarðanir hefðu verið teknar fyrir sex til níu mán- uðum. Það var ekki gert og fólkið sem hefði átt möguleika á að bjarga flug- félaginu hafði annaðhvort sagt upp eða verið rekið,“ segir Dickinson. Hann vill ekki ræða frekar hvort ágreiningur Pálma og stjórnenda hafi haft eitthvað að segja um það hvernig fór heldur segir aðeins: „Ég tel mun líklegra að það takist að selja Astra- eus núna þegar Pálmi kemur ekki að félaginu.“ Fjórum mánuðum fyrir gjaldþrotið hafi komið mögulegur kaupandi en samningar ekki tekist. Þegar rætt er um samstarf Astra- eus og IE segir hann flugfélagið ekki alltaf hafa getað staðið við gerða samninga vegna IE, sem hafi oft breytt tímasetningum og jafnvel komið með breytingar á síðustu stundu. Íhugar sjálfur að kaupa Dickinson er með ýmis járn í eld- inum þegar kemur að flugi. Hann staðfestir að hann sé sjálfur að hugsa um að kaupa félagið og segist vera með fjárfesti sem hann vill þó ekki ræða frekar, en hann eigi í viðræðum við slitastjórnina. Honum hafi þó ver- ið tjáð að enn sé of snemmt að koma með tilboð og þess háttar enda taki væntanlega nokkurn tíma að greiða úr óreiðunni. Flugmenn og annað starfsfólk séu tilbúin til að leggja hon- um lið. Kaupin séu líka háð leyfi breskra flugmálayfirvalda og margt annað þurfi að skoða. Þegar spurt er hversu öruggur hann sé um að kaupin á Astraeus geti gengið eftir varar Dickinson fólk við að hrapa að ályktunum, ekkert sé ennþá fast í hendi. „Ég myndi í besta falli segja 50/50-líkur.“ Enn að ráða rétt fyrir gjaldþrot „Það er sorglegt að svona fór,“ seg- ir Dickinson um gjaldþrot Astraeus enda hafi margir misst vinnuna í Bretlandi og á Íslandi. Hann segist ekki geta svarað því hve margir flug- menn störfuðu hjá Astraeus, þar sem félagið hefði enn verið að ráða flug- menn nokkrum vikum fyrir gjald- þrotið, sem hafi verið óráð, þar sem nóg hafi verið af flugmönnum fyrir veturinn. Ráðningarnar hafi byggst á því að móðurfélagið [Fengur] styddi við félagið yfir veturinn. Einnig að flugflotinn yrði stækkaður og bætt við flugleiðum. Allt í einu hafi verið hætt við að fljúga til New York og fréttir um það borist fyrst í gegnum Google. Þegar rætt er um Ísland segist Dickinson hafa eignast marga vini þar og sé gangandi auglýsing fyrir landið heima hjá sér. Margir vina hans séu á leið til Íslands í mán- uðinum til að skoða norðurljósin. Hefði verið hægt að bjarga félaginu fyrir hálfu ári  Segir fólkið sem gat bjargað því annaðhvort hafa farið sjálft eða verið rekið Morgunblaðið/Þorkell Öflugur Bruce Dickinson, söngvari Iron Maiden og flugmaður með meiru. „Okkur þykir það miður að þessir menn séu ekki með kjarasamn- ing við okkur og standi þarna rétt- lausir,“ segir Jón Þór Þorvaldsson, varafor- maður Félags íslenskra atvinnu- flugmanna, um þann hátt á þriðja tug íslenskra flugmanna sem misstu vinnuna þegar Astraeus fór í þrot í byrjun vik- unnar. Flugmennirnir hafi leitað til félagsins, þrátt fyrir að vera ekki innan vébanda þess. Hann sagði félagið gjarnan vilja kynna sér hvernig samningi þeirra við Astraeus væri stillt upp og hvort Iceland Express væri hluti af honum og átti von á að fá eintak af samningnum í gærkvöldi. „Fyrir þessa flugmenn þá þyk- ir mér miður að Iceland Express hafi ekki séð sóma sinn í að sækja um flugrekstrarleyfi og vera þá flugrekandi með kjara- samning við stéttarfélög eins og önnur flugfélög,“ segir Jón Þór. Hann gagnrýnir harðlega hvernig staðið var að málum við gjald- þrotið. „Það er öllum haldið í myrkrinu, bæði afgreiðslu- aðilanum á Keflavíkurflugvelli og fleirum og fólk bara skilið eftir úti í kuldanum. Þetta er svo sam- viskulaust sem vera má.“ Flugmenn leita til FÍA GJALDÞROT ASTRAEUS Jón Þór Þorvaldsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.