Morgunblaðið - 24.11.2011, Side 10

Morgunblaðið - 24.11.2011, Side 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. NÓVEMBER 2011 María Ólafsdóttir maria@mbl.is Sandra Ósk Sigurðardóttirhefur búið stærstan hlutaævi sinnar í Bandaríkj-unum. Hún bjó þar með fjölskyldu sinni í alls tíu ár með hléi á meðan faðir hennar var við nám, en hélt síðan aftur til Bandaríkjanna til að stunda háskólanám þegar hún var 21 árs og ílengdist í níu ár. Sandra Ósk er nú flutt heim til Íslands og heldur í þá hefð að elda þakkargjörð- armáltíð. Frjálslegt og afslappað „Þegar ég flutti út í nám fór ég að skapa mínar eigin hefðir. Fyrstu þakkargjörðarmáltíðina matreiddi ég ásamt þýskri vinkonu minni fyrir stóran hóp erlendra nemenda sem við vorum í. Við keyptum risastóran kalkún og gúgluðum allar uppskriftir sem okkur datt í hug. Síðan vorum við með heilt hlaðborð af meðlæti, bökuðum brauð og gerðum allt frá grunni. Ég lærði helling af þessu og þetta var mjög gaman en síðan þá hafa boðin þó verið aðeins minni. Þetta er skemmtileg hátíð og fær fólk yfirleitt lengra frí en yfir jólin. Því er algengt að fólk noti tækifærið og skiptist á að fara í heimsókn. Þakkargjörðarhátíðin er að mörgu leyti frjálslegri en jólin, það er minna stess og ekki þessi jólaörtröð. Þetta snýst bara um að koma saman og borða og börnin fá að leika sér. Bandaríska hefðin er að byrja á há- tíðarmatnum jafnvel klukkan 14 bæði á jólunum og á þakkargjörð- ardaginn. Á mjög hefðbundnu bandarísku heimili er ýmist sitjandi borðhald eða fólk dreifir sér bara um stofuna. Svo er horft á fótbolta og verið að narta í matinn yfir daginn. Síðan er gjarnan tekinn smátími í þessum boðum til að tala um hvað fólk sé þakklátt og hafi það í rauninni gott. Þó að Kaninn sé stundum dálítið væminn þá er þetta falleg og góð hefð,“ segir Sandra Ósk. Gaman að halda veislur Kalkúnn með góðri fyllingu er ómissandi í þakkargjörðarmáltíðina. Sandra Ósk segir eiginlega ekki vera hægt að klúðra fyllingunni. Aðal- innihaldið sé brauð sem bætt er sam- an við uppáhaldskryddum hvers og eins, hnetum, grænmeti og fleiru. En í raun sé fyllingin sambland af hverju því sem fólki finnst gott að láta malla saman. „Mér finnst tilheyra að gera trönuberjasultuna sjálf en síðan hef ég vanið mig á einfalt meðlæti, sætar kartöflur og gulrætur og rósakál. Síðan hef ég haft með ávaxtasalat sem frænka mín gerir alltaf fyrir jól- in. Mér finnst sérstaklega gaman að elda fyrir svona veislur. Þó ég sé flutt heim hélt ég þakkargjörðarmáltíð í hittifyrra. Þá færði ég boðið yfir á sunnudag og bauð vinum og börnum í stóran kalkún en fékk þau til að koma með meðlæti með sér. Fólk gerir það gjarnan úti ef margir eru að koma saman. Í ár ætla ég að elda þakk- argjörðarkalkúninn fyrir fjölskyld- una á gamlárskvöld með öllu tilheyr- andi,“ segir Sandra Ósk. Fjólublár kalkúnn Sandra Ósk notar enn sömu að- ferð og fyrst þegar hún eldaði kal- kún. Hún þvær og hreinsar kalkún- inn, nuddar hann með ólífuolíu og kryddar síðan með salti, pipar og kryddjurtum. Svo breiðir hún yfir hann viskastykki og eys reglega yfir það bræddu smjöri. Síðustu 30 mín- úturnar eða svo tekur hún viska- stykkið af og leyfir kalkúninum að verða fallega brúnn. Hún varar fólk við að nota litað viskastykki. Eitt sinn notaði hún hvítt viskastykki sem var með bláum röndum, og eftir hálftíma var kalkúnninn orðinn fjólublár. Sem betur fer sá Sandra Ósk fljótt hvers kyns var og náði að rífa kalkúninn út og skola hann áður en í óefni fór. Hún hefur líka eldað kalkún í bök- unarpoka og segir það hafa heppnast mjög vel. Fylling „stuffing“ Árið 2001 eyddi ég þakkargjörð- inni í góðum vinahópi heima hjá vina- Eldar kalkún með öllu tilheyrandi Eftir að hafa búið stærstan hluta ævi sinnar í Bandaríkjunum viðheldur Sandra Ósk Sigurðardóttir þeirri hefð að elda þakkargjörðarkalkún með öllu tilheyrandi. Góða fyllingu í kalkúninn og heimagerða trönuberjasultu segir hún vera ómiss- andi. Þakkargjörðarhátíðin er alla jafna afslöppuð hátíð þar sem fólk nýtur þess að vera saman og borða góðan mat áður en jólaörtröðin byrjar. Morgunblaðið/Sigurgeir S. Áhugakokkur Söndru Ósk Sigurðardóttur finnst sérstaklega skemmtilegt að elda fyrir veislur. Morgunblaðið/Arnaldur Ómissandi Með kalkúninum verður að vera gómsæt fylling. Vefsíðan knuz.is er frábær síða um knús og jafnrétti. Hún er í raun fram- hald á bloggi Gunnars Hrafns Hrafn- bjargarsonar, en hann lést fyrir aldur fram fyrr á þessu ári. Vefsíða þessi var stofnuð til minningar um Gunnar Hrafn en hann lét sig jafnréttismálin varða og bloggaði um málefnið á skemmtilegan hátt. Á knuz.is er að finna allskonar greinar og pistla (ým- ist frumsamið eða þýtt) um femínísk málefni, sem nokkrir aðilar setja reglulega inn. Einnig geta áhuga- samir sent efni til birtingar. T.d er þar frábær grein sem Kristín Vilhjálms- dóttir þýddi og ber hún yfirskriftina: Mikið ertu mjó í dag! Fjallar hún um hversu varhugavert getur verið að hrósa fólki fyrir þyngdartap, því ástæðan getur verið óviðráðanlegar aðstæður. Átröskun getur legið að baki og þá er slíkt hrós hvatning til að halda áfram á rangri braut. Vefsíðan www.knuz.is Staðgöngumæðrun Er eitt af því sem fjallað er um á vefsíðunni knuz.is Meira knús og aukið jafnrétti Hún Gréta Gísladóttir er fantaflink listakona sem býr á Akureyri. Hún sýn- ir um þessar mundir nokkur verka sinna á Selfossi. Full ástæða er til að hvetja fólk til að kíkja á þessar sýningar sem eru á þremur stöð- um. Stærstu verkin eru á Ljósheimum á Sjúkra- húsinu á Selfossi, því þar er nægt veggpláss fyrir þær, en þau verk gerði Gréta fyrir Kirkju- listaviku Akur- eyrarkirkju í vor. Á fæðingarmáldeildinni á sama sjúkrahúsi er til sýnis ein mynd sem heitir „lifi lífið“ og er hún af barnshafandi konu. Í Gallerí Garði Mið- garði er svo sýning hennar með minni verkum og heitir hún „Blúnda“. Sjón er sögu ríkari. Endilega… …kíkið á verkin hennar Grétu Listakona Gréta við eitt af stóru verkum sínum. Nóvember verður lokað með stæl í Sláturhúsinu á Egilsstöðum um helgina. Á föstudagskvöldið verða tónleikar með ADHD, þeim vinsæla djasskvartett, sem kynna mun sinn annan disk. Á laugardagskvöldinu stígur fimm manna Hljómsveit Lay Low síðan á svið og kynnir lög af nýútkomnum diski ásamt eldra efni. Í Valaskjálf verður um helgina sýnt forvarnarleikritið Hvað ef, en sýningar verða sunnudaginn og mánudaginn næstkomandi. Um er að ræða leiksýningu þar sem not- ast er við leik, söng, ljóð og tónlist til fræðslu. Þar er á nýstárlegan og skemmtilegan hátt farið yfir kaldar staðreyndir varðandi neyslu vímu- efna, einelti, sjálfsmorð og fleira. Markmiðið er að sýna unglingum fram á að þeir hafi val í lífinu. Dagskrá um helgina Tvennir tónleikar og leiksýning í Sláturhúsinu á Egilsstöðum Djass ADHD kvartettinn stígur á svið í Sláturhúsinu og leikur ný lög. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.