Morgunblaðið - 24.11.2011, Page 12

Morgunblaðið - 24.11.2011, Page 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. NÓVEMBER 2011 Örráðstefna um sorgina og hvernig fólk getur unnið með hana. Fimmtudaginn 24. nóvember kl. 16:30-18 Anna Rós Jóhannsdóttir, félagsráðgjafi, fjallar um fjölskylduna og sorgina. Bryndís Einarsdóttir, sálfræðingur, fjallar um streitu samfara áföllum og sorg. K. Hulda Guðmundsdóttir greinir frá sinni reynslu við að missa maka í blóma lífsins og séra Bernharður Guðmundsson fjallar um sorg efri ára. Krabbameinsfélagið Svona er lífið Sorgin í margbreytilegri mynd Krabbameinsfélag Íslands Skógarhlíð 8 105 Reykjavík 540 1900 www.krabb.is krabb@krabb.is Allir velkomnir. Aðgangur ókeypis. Sókn í sextíu ár • 1951-2011 Ljósin verða tendruð á Óslóartrénu á Austurvelli fyrsta sunnudag í að- ventu, sunnudaginn 27. nóvember nk. milli kl. 16 og 17. Sextíu ár eru liðin síðan íbúar Óslóar færðu Reykvíkingum fyrsta grenitréð að gjöf. Dagskráin verð- ur fjölbreytt og hátíðleg. Gunnar Halle, trompetleikari frá Noregi, er sérstakur gestur og leikur hann undir jólasöng Dómkirkjukórsins kl. 16. Toril Berge, formaður borg- arstjórnarflokks Venstre í Osló, mun afhenta borgarstjóra, Jóni Gnarr og Reykvíkingum tréð og verður það hin 8 ára gamla norsk- íslenska Sara Lilja Ingólfsdóttir Haug sem fær þann heiður að tendra ljósin á trénu. Góðir gestir munu einnig birtast á sviðinu við Austurvöll. Leikarinn Gunnar Eyjólfsson mun flytja kvæði um Leppalúða, Gói og Þröst- ur Leó mun flytja brot úr ævintýr- inu um Eldfærin sem og úr Baunag- rasinu. Að lokum munu Stúfur, Glugga- gægir og Hurðaskellir koma við en þeir hafa laumað sér í bæinn til að segja börnunum sögum og syngja jólalög. Óslóartréð var hoggið við Finne- rud í Nordmarka 11. nóvember sl. og er rúmlega 12 metra hátt. Ljósin tendruð á Óslóartrénu á Austurvelli Jól Óslóartréð í allri sinni dýrð. Jólatónleikarnir „Hátíð í bæ“ verða haldnir á Selfossi miðvikudaginn 7. desember. Er þetta í fimmta sinn sem þeir fara fram og verða að vanda í íþróttahúsinu Iðu. Kjartan Björnsson, skipuleggj- andi tónleikanna, segir að mikið sé lagt upp úr öflugum flytjendum, jafnt úr heimahéraði sem á lands- vísu. Meðal flytjenda er Strengja- sveit barna úr Tónlistarskóla Ár- nesinga og þríeykið Jóhanna Ómarsdóttir, Karítas Davíðsdóttir og Daníel Haukur Arnarson, allt ungt og efnilegt söngfólk úr héraði. Sigrún Hjálmtýsdóttir, Diddú, kem- ur fram líkt og frá upphafi, Pálmi Gunnarsson, Maríanna Másdóttir, kór Fjölbrautaskóla Suðurlands, Gissur Páll Gissurarson ten- órsöngvari og Jórukórinn. Allar konur á Suðurlandi sem fæddar eru á árinu 1941 fá endur- gjaldslausan aðgang. Miðar eru seldir á midi.is og á Rakarastofu Björns og Kjartans á Selfossi. Sungið Diddú hefur komið fram á öllum jólatónleikunum á Selfossi. Fjölbreytt atriði á tónleikunum „Hátíð í bæ“ á Selfossi Íbúafundur um málefni fatlaðs fólks í Garðabæ og á Álftanesi verður haldinn í Sjálandsskóla á morgun kl. 17-19, undir yfirskrift- inni „Í sama liði“. Fundurinn er lið- ur í vinnu við mótun stefnu í mál- efnum fatlaðs fólks í bæjarfélögunum. Á fundinum verður m.a. unnið í litlum hópum sem fjalla annars vegar um þjónustu við fötluð börn og hins vegar um málefni fullorðins fatlaðs fólks. Í báðum tilfellum verður varpað fram spurningum um hverju megi breyta í þjónust- unni eins og hún er skipulögð í dag. Íbúafundur um mál- efni fatlaðs fólks Sorg og áföll hafa mikil áhrif á fólk og hefur Krabbameinsfélagið ákveðið að halda örráðstefnu í dag, fimmtudag, kl. 16.30-18.00 til að fjalla um sorgina í sinni marg- breytilegu mynd. Örráðstefnan verður haldin í húsi Krabbameinsfélagsins, Skóg- arhlíð 8. Þar mun Anna Rós Jó- hannesdóttir, félagsráðgjafi á Landspítalanum, fjalla um fjöl- skylduna og sorgina. Bryndís Ein- arsdóttir, sálfræðingur hjá Heilsu- stöðinni, ræða streitu samfara áföllum og sorg. K. Hulda Guð- mundsdóttir mun greina frá reynslu sinni við að missa maka í blóma lífsins og séra Bernharður Guðmundsson mun ræða sorg efri ára. Örráðstefnan er öllum opin og aðgangur er ókeypis. Örráðstefna um sorg og áföll STUTT Rúnar Pálmason runarp@mbl.is Sementsverksmiðjan á Akranesi ætlar að hætta framleiðslu á sem- enti í vor, til bráðabirgða. Staðan verður metin eftir tvö ár en til þess að forsendur skapist til að hefja framleiðslu á nýjan leik þyrfti salan að verða ríflega tvöfalt meiri en hún er nú. Níu manns, sérhæfðu og góðu starfsfólki, verð- ur sagt upp störfum frá og með næstu mánaðamótum vegna þessa. Uppsagnirnar og fram- leiðslustoppið var tilkynnt á starfs- mannafundi í gærmorgun. Í til- kynningu til fjölmiðla kom fram að sement verður flutt inn frá norska framleiðandanum Norcem AS sem er einn eigenda Sementsverk- smiðjunnar. Sementið verður flutt til hafna á Akranesi og Akureyri. Minnsta sala frá upphafi Á þessu ári stefnir í að Sem- entsverksmiðjan selji um 30.000 tonn sem samsvarar um þriggja mánaða framleiðslu í verksmiðj- unni. Þetta verður minnsta sala frá því verksmiðjan var stofnuð fyrir 53 árum. Að jafnaði hefur salan verið um 100.000 tonn en varð mun meiri í svonefndu góðæri. „Mark- aðsaðstæður eru svo erfiðar að það er ógerningur að halda framleiðslu áfram við óbreyttar aðstæður,“ sagði Gunnar H. Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri Sementsverksmiðj- unnar, í samtali við Morgunblaðið. Full afköst verksmiðjunnar eru í kringum 120-130.000 tonn en Gunnar sagði að til þess að for- sendur væru til að hefja fram- leiðslu á ný þyrfti salan að vera á bilinu 70-80.000 tonn. Að sögn Gunnars nemur heildarsala sem- ents hér á landi á þessu ári um 55.000 tonnum. „Jafnvel þótt við værum með markaðinn allan sjálfir væri ástandið samt svo slæmt að við yrðum að grípa til aðgerða,“ sagði Gunnar. Það væri sérstakt áhyggjuefni að sementssala hefði enn minnkað á þessu ári. „Þegar fyrirtækið var endurfjármagnað í byrjun þessa árs áttu menn von á að þetta ár yrði svipað og í fyrra. En það hef- ur ekki gengið eftir, salan hjá okk- ur hefur minnkað um 25%,“ sagði hann. Áætlanir hefðu gert ráð fyr- ir að sementssala myndi aukast hægt og rólega á næsta ári. „En eins og útlitið er núna get ég ekki séð nein teikn á lofti sem benda til þess.“ Engin stórverkefni Ládeyða í byggingaiðnaði, í kjölfar gríðarlegra framkvæmda á flestum sviðum, fer ekki bara illa með Sementsverksmiðjuna; um 12- 15% atvinnuleysi er meðal iðn- aðarmanna í byggingargeiranum og margir hafa farið til útlanda til vinnu. „Við sjáum engin teikn á lofti um að það séu einhver stórverk- efni að fara í gang,“ sagði Finn- björn A. Hermannsson, formaður Samiðnar. Alls konar verkefni væru að fara af stað sem tækju „fimm eða tíu kalla“ en ekkert stórt. Vinna við Búðarhálsvirkjun væri reyndar í gangi en engin ákvörðun hefði verið tekin um aðr- ar virkjanir en virkjunarfram- kvæmdum fylgdu aðrar stór- framkvæmdir. Finnbjörn sagði að íbúða- markaður væri aðeins að taka við sér en hann færi hægt af stað. Morgunblaðið/Árni Sæberg Akranes Verksmiðjan í gangi. Stopp á sementið í bili  Sementsverksmiðjan á Akranesi hættir framleiðslu  Ætla að sjá til eftir tvö ár  Þyrfti að selja 70-80.000 tonn Sementssala Sementsverksmiðjunnar í tonnum 160.000 140.000 120.000 100.000 80.000 60.000 40.000 20.000 0 2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 10 0. 0 0 0 13 2. 0 0 0 14 1. 0 0 0 15 3. 0 0 0 11 8. 0 0 0 37 .0 0 0 38 .5 0 0 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Börn Harðar Bjarnasonar, arkitekts Skálholtskirkju, hafa skotið útgáfu framkvæmdaleyfis fyrir byggingu Þorláksbúðar við hlið Skálholtskirkju til úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála. „Þessi niðurstaða er vonbrigði fyrir nefndina,“ segir Nikulás Úlfar Másson, forstöðumaður húsafriðun- arnefndar, um þá niðurstöðu Katrín- ar Jakobsdóttur, mennta- og menn- ingarmálaráðherra, að synja tillögu nefndarinnar um friðun Skálholts- kirkju og Skálholtsskóla og næsta ná- grennis og vísa málinu aftur til nefnd- arinnar. Húsafriðunarnefnd mun funda um stöðu mála á næsta fundi nefndarinnar sem væntanlega verður í byrjun desember. Nikulás Úlfar veit ekki betur en að afstaða húsafriðunarnefndar sé óbreytt, hún hafi viljað friða mann- virkin og talið að Þorláksbúð rýrði gildi þeirra húsa sem fyrir eru. Húsa- friðunarnefnd getur hafið vinnu við friðun, samkvæmt almennum ákvæð- um húsafriðunarlaga. Nikulás segir að það ferli felist í því að gefa eig- endum færi á að koma með skoðanir sínar á friðun en vekur um leið at- hygli því á að eigandi húsanna hafi talað nokkuð skýrt. Vísar hann til af- stöðu kirkjuráðs sem heimilaði bygg- ingu Þorláksbúðar. Geta stöðvað framkvæmdir Börn Harðar Bjarnasonar, arki- tekts Skálholtskirkju, hafa óskað eft- ir því að úrskurðarnefnd skipulags- og byggingarmála úrskurði um hvort framkvæmdaleyfi vegna Þorláksbúð- ar sé í samræmi við deiliskipulag og hvort yfirleitt liggi fyrir deiliskipulag sem heimili bygginguna. Hörður H. Bjarnason, sonur Harðar, segir að óskin sé sett fram til að fá úr því skor- ið hvað sé rétt í þessu og máli og tryggja að það sé í opnu og gagnsæju ferli. Lengi hefur verið til skoðunar að endurgera þessa byggingu. Lögmað- ur Þorláksbúðarfélagsins segir að gerð sé grein fyrir tóft Þorláksbúðar í deiliskipulagi frá 1996 og í grein- argerð með skipulagstillögunni komi fram að til skoðunar sé að endurgera Þorláksbúð. Úrskurðarnefndin mun óska eft- ir gögnum frá byggingarnefnd upp- sveita Árnessýslu áður en kveðinn verður upp úrskurður. Nefndin hefur heimild til að stöðva framkvæmdir til bráðabirgða, óski kærandi þess. Þorláksbúð kærð til úrskurðarnefndar  Börn Harðar Bjarnasonar arkitekts vilja fá úr því skorið hvort gert sé ráð fyrir byggingunni á deiliskipulagi Þorláksbúð Tölvuteikning af væntanlegri Þorláksbúð í Skálholti. Vegg- irnar hafa þegar verið hlaðnir og byrjað á timburgrindinni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.