Morgunblaðið - 24.11.2011, Qupperneq 16
MARSVAGNINN CURIOSITY
Heimild: NASA Teikning: Chris Inton
NASA ætlar að skjóta á loft geimfari sem á að flytja geimvagninn Curiosity til Mars í því skyni að
rannsaka hvort aðstæður á reikistjörnunni séu eða hafi verið heppilegar fyrir lífverur. Geimvagninn
hefur einnig verið nefndur Mars Science Laboratory (MSL) og í honum eru fullkomustu rannsóknartæki
sem þróuð hafa verið til rannsókna á Mars
NÁKVÆM LENDING BURÐARFLAUG
BÚNAÐUR
CURIOSITY
SAMANBURÐUR
Á STÆRÐ
Mastcam-
mynda-
vél
REMS-
armur
SAM-
op
Hreyfi-
armur
APXS &
MAHLI
CheMin-
op
MARDI-
myndavél
RAD
DAN
Chemcam
Skýtur innrauðum
leysigeislum að
bergi til að kanna
efnasamsetningu
þess
Fallhlíf dregur úr hraðanum
Vagninn fellur úr skel sem gegndi því
hlutverki að verja hann á leiðinni
Hitaskjöldur
losnar af
Lendingartæki
og hjól færð út
Varnarskel og krani
Vagninn er undir
krana sem slakar
honum niður Kraninn
flýgur burt
Vagninn
losnar af
Geimfarinu
verður skotið á loft
á laugardag og gert
er ráð fyrir að ferðin
til Mars taki tæpa níu
mánuði. Geim-
vagninn á að lenda á
svæði sem er aðeins
20 km að stærð, miklu
minna en lendingar-
svæði fyrri Marsvagna
REMS - Veðurathugunartæki, mælir einnig útbláa geislun
SAM - Sýnagreiningartæki til að greina lífræn efni og gas
APXS - Röntgen-litrófsgreinir, mælir magn frumefna
MAHLI - Myndavél, tekur smásjármyndir í lit af jarðvegi
MARDI - Myndavél, tekur myndir á leiðinni niður
RAD - Geislunarmælir, kannar skaðlega geimgeislun
DAN- Á að mæla vetni eða ís og vatn á Mars
Atlas V-541
Lengd: 58 m
Heildarþyngd,
með eldsneyti
og geimfari:
531.000 kg
Þyngd vagnsins:
850 kg
Heildarþyngd
geimfarsins á
leiðinni með
lendingarbúnaði:
3.400 kg
HELSTU RANNSÓKNATÆKI
LENDINGARSTAÐUR
180. lengdarbaugur
MiðbaugurGale-
gígur
Terra
Sirenum
Terra
Cimmeria
Gígurinn er nefndur eftir
Walter Frederick Gale,
áströlskum bankamanni
sem gerðist stjörnu-
fræðingur (1865-1945)
Mars
Pathfinder
(1997)
Mars Exploration
(2007-2010)
Curiosity,
MSL (2011)
Áætlað er að
vagninn lendi á
Mars í ágúst á
næsta ári
Nýju könnunarfari bandarísku
geimvísindastofnunarinnar NASA
verður skotið á loft á laugardaginn
kemur og gert er ráð fyrir því að
það lendi á Mars í ágúst á næsta
ári, eftir tæplega níu mánaða ferða-
lag. Farið er mun stærra og búið
fullkomnari rannsóknartækjum en
geimför sem áður hafa verið send
til Mars.
Könnunarfarið heitir Curiosity
(Forvitni), eða Mars Science
Laboratory. Curiosity er geimvagn
og meðal annars með tveggja
metra langan hreyfiarm með áföst-
um loftbor og ýmis tæki sem gera
NASA kleift að rannsaka berg og
jarðveg Mars með meiri nákvæmni
en áður hefur þekkst. Í vagninum
er t.a.m. rannsóknartæki, sem skýt-
ur leysigeisla að bergi og kannar
samsetningu efna sem gufa upp
þegar geislinn lendir á berginu.
Meginmarkmiðið er að kanna
hvort aðstæður á Mars séu eða hafi
verið heppilegar fyrir lífverur.
„Þetta er draumavél geimvísinda-
mannsins,“ hefur fréttaveitan AP
eftir Ashwin Vasavada, sem vinnur
á rannsóknarstofu NASA. „Curios-
ity verður stærsta og flóknasta
tæki sem nokkru sinni hefur verið
komið fyrir á yfirborði annarrar
plánetu,“ hefur AP eftir Doug
McCuistion, sem stjórnar rann-
sóknum NASA á Mars. Curiosity
er um tvöfalt stærri en síðustu
könnunarförin sem send voru til
Mars, Spirit og Opportunity, og
vegur um 850 kílógrömm.
Áætlað er að leiðangurinn kosti
um 2,5 milljarða dollara, sem svar-
ar um 300 milljörðum króna.
Fjallað er ítarlega um Curiosity
og rannsóknir geimvagnsins í grein
eftir Sævar Helga Bragason á
Stjörnufræðivefnum,
www.stjornufraedi.is. bogi@mbl.is
„Draumavél geim-
vísindamannsins“
Nýr geimvagn sendur til Mars
16 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. NÓVEMBER 2011
Færeyingar veiða grindhval, eða marsvín, nálægt Þórshöfn í Færeyjum.
Þar er löng hefð fyrir því að veiða grindhvali með því að reka þá á land. Til
eru skrár yfir veiðarnar allt aftur til ársins 1584. Fylgt er nákvæmum
reglum, meðal annars um hvernig skipta eigi aflanum milli sveitarfélaga.
Reuters
Grindhvalir reknir á land
Aldagömul veiðihefð í Færeyjum
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Jose Manuel Barroso, forseti fram-
kvæmdastjórnar Evrópusambands-
ins, kynnti í gær tillögur um að emb-
ættismenn sambandsins fengju
aukið vald til afskipta af fjármálum
ríkja á evrusvæðinu. Framkvæmda-
stjórnin vill að embættismennirnir
fái vald til að krefjast breytinga á
fjárlagafrumvörpum aðildarríkja og
ákveða hvenær þau þurfi að lúta sér-
stakri fjárhagslegri stjórn embættis-
manna ESB, að sögn AFP.
Framkvæmdastjórnin vill einnig
að Evrópski seðlabankinn fái heim-
ild til að gefa út ríkisskuldabréf fyrir
evrusvæðið til að liðsinna aðildar-
ríkjum í vanda. Ríkisstjórn Þýska-
lands hafði áður lagst gegn þeirri til-
lögu og Angela Merkel, kanslari
Þýskalands, áréttaði þá afstöðu í
gær. „Þetta gengur ekki,“ sagði hún
og kvað það „mikið áhyggjuefni“ og
„ekki við hæfi“ að framkvæmda-
stjórnin héldi tillögunni til streitu.
Þjóðverjar vilja ganga lengra
Þjóðverjar eru andvígir útgáfu
slíkra skuldabréfa af ótta við að þeir
sitji að lokum uppi með reikninginn.
Þeir vilja raunar ganga lengra í fjár-
hagslega eftirlitinu með skuldugum
ríkjum og að Evrópudómstóllinn fái
vald til að refsa þeim sem brjóta
reglur myntbandalagsins.
Barroso sagði að fylgja þyrfti út-
gáfu skuldabréfanna eftir með því að
heimila embættismönnum ESB að
senda eftirlitsmenn í fjármálaráðu-
neyti ríkja á evrusvæðinu og krefjast
breytinga á fjárlagafrumvörpum
sem þeir telja geta ógnað fjárhags-
legum stöðugleika á svæðinu.
Olli Rehn, sem fer með málefni
evrunnar í framkvæmdastjórninni,
sagði að embættismenn ESB myndu
fá íhlutunarvaldið þegar fram-
kvæmdastjórnin og Evrópski seðla-
bankinn kæmust að þeirri niður-
stöðu að fjárhagslegum stöðugleika
á evrusvæðinu væri stefnt í hættu.
Þegar hann var beðinn um að lýsa
forsendunum fyrir slíkri niðurstöðu
sagði hann að framkvæmdastjórnin
gæti ekki séð fyrir allar aðstæður
sem kynnu að koma upp og kalla á
slíka íhlutun í fjármál aðildarríkja.
Vill að ESB fái aukið
vald til íhlutunar
Lagt til að ESB geti krafist breytinga á fjárlagafrumvörpum
Reuters
Skuldavandi Jose Manuel Barroso, forseti framkvæmdastjórnar Evrópu-
sambandsins, kynnir tillögur hennar á blaðamannafundi í Brussel í gær.
Vill aukinn samruna
» Angela Merkel vill að
skuldavandi evruríkja verði
leystur með breytingum á
sáttmálum Evrópusambands-
ins og auknum pólitískum
samruna.
» Þýska stjórnin segir að
sameiginleg skuldabréf leysi
ekki skuldavanda evrulanda
og minnki þrýstinginn á skuld-
ug ríki, þannig að þau verði
tregari til að taka sjálf á
skuldavanda sínum.
Tekist hefur að ná sambandi við
ómannað geimfar sem Rússar ætl-
uðu að senda til annars af tunglum
Mars en er enn fast á sporbraut
um jörðu. Ratsjárstöð á vegum
evrópsku geimferðastofnunar-
innar, ESA, í Ástralíu hefur náð út-
varpsmerkjum frá Fóbos-Grunt-
geimfarinu, sem skotið var á loft
8. nóvember. ESA segir að unnið
sé með Rússum að því að meta
hvernig best sé
að viðhalda
fjarskipta-
sambandinu.
Geimfarið á að
fara á braut um
Mars og senda
lítinn kanna til
tunglsins Fóbos
til að safna sýn-
um og flytja þau til jarðar.
Náðu sambandi við geimfarið
EVRÓPSKT GEIMFAR FAST Á BRAUT UM JÖRÐU
Fóbos-Grunt fyrir
geimskotið.