Morgunblaðið - 24.11.2011, Síða 20

Morgunblaðið - 24.11.2011, Síða 20
20 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. NÓVEMBER 2011 Á núverandi lög- gjafarþingi verður lagt fram frumvarp til laga um breyt- ingar á skráningu trúfélaga þar sem samkvæmt fyrirliggj- andi drögum verður m.a. heimiluð skrán- ing svonefndra lífs- skoðunarfélaga til jafns við trúfélög að uppfylltum vissum skilyrðum. Þessi breyting er fyrir löngu orðin tímabær og ber að fagna henni. Engu að síður er ástæða til að gera athugasemd við það hvernig lífsskoðunarfélög eru skilgreind og aðgreind frá trú- félögum í drögum frumvarpsins. Öll skráð trúfélög hér á landi eiga það sameiginlegt að (1) byggja á siðferði og lífsskoðunum, (2) tengja megi þau við þekkt hug- myndakerfi í heimspeki og sið- fræði, (3) miða starfsemi sína við siðferðisgildi og mannrækt, (4) eiga sér sögulegar eða menning- arlegar rætur, (5) fjalla um sið- fræði og þekkingarfræði með ákveðnum og skilgreindum hætti, (6) bjóða upp á tilteknar fé- lagslegar athafnir og (7) vera lífs- skoðunarfélög. Ekkert af þessu getur talist sér- kenni þeirra lífsskoðunarfélaga sem kjósa að skilgreina sig út frá hvers kyns trú og trúarsetningum á forsendum þröngrar túlkunar á trúarhugtakinu. Þrátt fyrir þetta er það að sjálfsögðu fullur réttur lífsskoðunarfélaga sem það kjósa að aðgreina sig frá hvers kyns trú í þrengri skilningi þess hugtaks. Í trúarbragðafræðum er það al- gengt sjónarmið að flokka skuli hvers kyns skipulagðar hreyf- ingar sem trúarlegar sem taka af- stöðu til trúarlegra viðfangsefna á borð við tilvist Guðs og hand- anveruleika og tilgang lífsins. Í þessu sambandi skiptir ekki máli hvort sú afstaða er jákvæð, nei- kvæð eða í formi efahyggju, að- eins ef viðkomandi hreyfingar taka einhvers konar afstöðu til þessara viðfangsefna teljast þær sjálfkrafa trúarlegar enda grund- vallist afstaðan á forsendum sem hvorki verða sannaðar né afsann- aðar með aðferðum raunvísinda. Af þeim sökum eru samtök guð- leysingja á borð við siðræna húm- anista flokkuð sem trúarleg í fræðibókum á borð við Encyclo- pedia of American Religions eftir bandaríska trúarbragðafræðing- inn J.G. Melton en ritverk hans um þessi efni hafa verið kennd í áraraðir í trúarbragðafræðum við guðfræði- og trúarbragða- fræðideild HÍ. Þess eru líka dæmi að slík félög guðleysingja skil- greini sig sem trúarleg og hafi notið þeirra réttinda sem því fylgja í einstökum ríkjum Banda- ríkjanna. Trúarbragðafræðingar eru þó ekki á einu máli um það hvernig skilgreina beri trúarhugtakið og er sömu sögu að segja af fjölda hreyfinga sem kenndar hafa verið við trúarbrögð í trúarbragðafræð- um. Þannig eru menn ekki á einu máli hvort t.d. búddismi, hindú- ismi, jógahreyfingar eða jafnvel sjálfur kristindómurinn séu trúar- brögð. Nauðsynlegt er að lög um skráningu trúfélaga og lífsskoð- unarfélaga taki mið af þessum mismunandi sjálfsskilningi skipu- lagðra hreyfinga sem sækjast eft- ir skráningu hér á landi og þeim réttindum sem því fylgja. Siðmennt hefur a.m.k. tvisvar sótt um skráningu hjá ríkisvald- inu til að öðlast jafna stöðu við skráð trúfélög hér á landi en verið hafnað í bæði skiptin á þeirri for- sendu að ekkert í landslögum heimili slíka skráningu lífsskoð- unarfélaga yfirlýstra trúleysingja. Auðvelt er að sýna fram á út frá forsendum trúarbragðafræða að Siðmennt geti flokkast sem trú- félag enda hefur hugmyndafræði þess félags, siðrænn húmanismi, bæði sögulegar og menningar- legar rætur meðal trúarbragða mannkyns (sbr. t.d. Melton). Ekk- ert í núverandi lögum um skrán- ingu trúfélaga ætti heldur að standa í vegi fyrir því að Siðmennt geti hlotið skráningu sem trú- félag. Það er aðeins í greinargerð með lagafrumvarpi núverandi laga sem finna má athugasemd þess efnis að skilgreining hug- taksins trúfélag rúmi ekki lífs- skoðunarfélög sem boði trúleysi. Engu að síður eru fordæmi fyrir því að félög sem boði trúleysi í einni eða annarri mynd, einkum búddísk, hafi fengið skráningu á þeirri forsendu að þau leggi að mati ýmissa trúarbragðafræðinga stund á átrúnað eða trú sem tengja megi við trúarbrögð mann- kyns sem eigi sér sögulegar eða menningarlegar rætur. Enda þótt það ætti að vera hægðarleikur að veita Siðmennt skráningu trú- félags hér á landi er sjálfsagður hlutur að taka tillit til sjálfsskiln- ings þess félags að það sé aðeins lífsskoðunarfélag aðgreint frá öllu sem það skilgreinir sem trú. Þar sem aðgreiningin milli trú- félaga og lífsskoðunarfélaga í drögum þess lagafrumvarps sem nú hefur verið kynnt er gölluð er ástæða til að mæla með eftirfar- andi breytingu þar sem 1. mgr. 3. gr. núverandi laga hefur verið sameinuð viðbót draganna: „Skil- yrði fyrir skráningu trúfélags eða lífsskoðunarfélags er að um sé að ræða félag sem byggir á siðferði og lífsskoðunum sem taki skil- greinda afstöðu til trúar og trúar- setninga. Þá er það jafnframt skil- yrði fyrir skráningu að um sé að ræða félag sem miðar starfsemi sína við siðferðisgildi og mann- rækt, á sér sögulegar eða menn- ingarlegar rætur í trúarbrögðum mannkyns eða öðru heimspekilegu hugmyndakerfi og fjallar um sið- fræði og þekkingarfræði með ákveðnum og skilgreindum hætti. Það er ennfremur skilyrði að fé- lagið bjóði upp á tilteknar fé- lagslegar athafnir á borð við út- farir, giftingar, nafngjafir og fermingar.“ Eftir Bjarna Rand- ver Sigurvinsson og Pétur Pétursson » Ástæða er til að gera athugasemd við það hvernig lífs- skoðunarfélög eru skil- greind og aðgreind frá trúfélögum í drögum frumvarps til laga. Bjarni Randver Sigurvinsson Bjarni Randver er stundakennari við HÍ og Pétur er prófessor við HÍ. Pétur Pétursson Um trúfélög og lífsskoðunarfélög Í nokkur ár hafa bændur verið duglegir við að viðhalda áróðri um svokallað „fæðuöryggi lands- manna“. Upp á síðkastið hafa þeir verið súper duglegir við að moka áróðrinum yfir okkur landsmenn og það beint inn um póstlúgurnar og boðið upp á ókeypis áróður í formi bændablaðs. (Hver skyldi annars borga brúsann? Kannski þú?) Nú hafa þeir fært út kvíarnar því nú heitir fæðuöryggi landsmanna ekki lengur þessu nafni en er nú orðið að „fæðu- öryggi alls heimsins“. Þeir hafa alveg rosa- legar „áhyggjur“ af fæðuskorti þessara 7 milljarða íbúa jarð- arinnar. Nú verði þeir bara að gjöra svo vel að bretta upp ermarnar, gera skyldu sína við Guð og menn og auka framleiðsluna, þó eink- um á rollukjöti, svo all- ir fái nóg að borða úti í hinum stóra heimi. Þvílík hræsni! Þetta snýst auðvitað ekkert um fæðuöryggi jarðarbúa heldur bara þeirra eigin græðgi. Hvað þeir geti grætt á þessu og ekkert annað. Lítum á skrif ráðherrans Jóns Bjarnasonar í Mbl. 22.11. sl. Þar kemur fram að ekki sé gott að rassakastast með matinn heims- horna á milli því það auki svo brennslu jarðefna. Alveg rétt hjá honum. En í niðurlagi greinarinnar kemur fram að íslenskir bændur skuli um fram allt, efla útflutning, sem þýðir að sjálfsögðu aukna brennslu á jarðefnum þegar þeir flytja sínar afurðir heimshorna á milli, eða hvað? Hann harmar í sömu grein gíf- urlegt magn kornmetis og sykurs sem fer í framleiðslu eldsneytis úti í hinum spillta heimi en fagnar til- hugsuninni um að íslenskir bændur geti framleitt, innan tíðar, sitt eigið eldsneyti úr gróðri jarðar. Hver er munurinn? Hann hefur áhyggjur af vatns- skorti í framtíðinni. Ég bendi nú bara á allt regnvatnið sem ætlar allt lifandi að drepa. Er ekki hægt að beisla það og eima? Og sjóinn, er ekki hægt að eima hann líka og nýta til ræktunar og jafnvel manneldis? Hann gortar af miklu landrými á Íslandi til að rækta á. Víst er það satt en – 75% af því eru eyðimörk, jöklar, sandar og vötn. Þó er lang- stærstur hluti þess, eða um 50%, manngerð eyðimörk. Hann nefnir ekki einu orði hvar hann ætlar að láta nýta jörðina. Því spyr ég, á að halda áfram að nauðga þessum gat- slitna gróðri sem eftir er, eða er hann með eitthvað á prjónunum í sambandi við mikla aukningu á upp- græðslu eyðimerk- urinnar? Eða finnst honum eins og bónd- anum fyrir austan fjall; „að nóg sé af þessu græna úti um allt“? Eins og fram hefur komið hefur ráð- herrann miklar áhyggjur af mat- arskorti heimsbyggð- arinnar. Ég segi aftur á móti; það er til nógur matur nú þegar, honum er bara mis- skipt. Og hafi bændur virkilega al- vöru áhyggjur af þessum sveltandi sálum ættu þeir bara að senda bein- greiðslurnar til þeirra svo þeir geti keypt sér mat. Alla daga ársins er ógrynni af mat komið fyrir kattarnef þó svo að vitað sé um hungraðar manneskjur um allan heim. Það er til nógur matur fyrir alla. Það er því kolrangt hjá ráðherranum að okkur beri skylda til að ofnýta hér jarðargróður til að brauðfæða allan heiminn. Það eru til margir aðrir staðir í veröldinni sem eru betur til þess fallnir vegna þess að þar er bæði góður jarðvegur, mikill gróður, vatn og hlýindi til að framleiða mat. Það er líka mesti misskilningur í því að rollukjöt sé eini maturinn sem við getum fram- leitt því það er miklu hentugra og hollara að framleiða grænmeti til manneldis, auk þess sem það kemur ekki niður á gróðri landsins. Og ef fiskur nægir ekki og menn vilja endilega kjöt, þá er miklu skyn- samlegra að framleiða nauta-, kjúk- linga- eða svínakjöt, þar sem sú framleiðsla kemur ekkert niður á óbyggðum landsins. Ég mæli alla vega með miklum samdrætti í rollu- kjötsframleiðslu. Alveg nóg að fram- leiða það sem landinn vill éta og ekkert fram yfir það. Og muna að hafa me me í beitarhólfum. Eftir Margréti Jónsdóttur Margrét Jónsdóttir » Svar við grein ráð- herrans Jóns Bjarnasonar í Mbl. 22.11. 2011. Höfundur er eftirlaunaþegi. Fæðuöryggi er það, heillin Morgunblaðið birtir alla útgáfudaga aðsendar umræðugreinar frá lesendum. Blaðið áskilur sér rétt til að hafna greinum, stytta texta í samráði við höfunda og ákveða hvort grein birtist í umræðunni eða í bréfum til blaðsins. Blaðið birtir ekki greinar, sem eru skrifaðar fyrst og fremst til að kynna starfsemi einstakra stofnana, fyrirtækja eða samtaka eða til að kynna við- burði, svo sem fundi og ráðstefnur. Innsendikerfið Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein“, valinn úr felliglugganum. Ekki er lengur tekið við greinum sem sendar eru í tölvupósti og greinar sem send- ar eru á aðra miðla eru ekki birtar. Í fyrsta skipti sem formið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn í kerfið, en næst þegar kerfið er notað er nóg að slá inn netfang og lykilorð og er þá notandasvæðið virkt. Móttaka aðsendra greina Jólin 2011 ? Jólablað Morgunblaðsins kemur út næsta laugardag Að vanda er það stórglæsilegt, 128 bls. og stútfullt af skemmtilegu efni, m.a. uppskriftir, föndur, jólasiðir, jólaundirbúningur með börnunum og margt margt fleira. Ert þú búin að tryggja þér áskrift? Sími: 569 1122, netfang: askrift@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.