Morgunblaðið - 24.11.2011, Page 21

Morgunblaðið - 24.11.2011, Page 21
UMRÆÐAN 21 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. NÓVEMBER 2011 Í grein hér í blaðinu laugardaginn 20. nóv- ember svarar séra Þór- hallur Heimisson mér á ská hvað varðar af- drif okkar þegar veg- ferð okkar hér lýkur, enda flókið mál. Hins vegar, þá setti að mér nokkurn hroll við lest- ur upphaflegrar grein- ar hans í blaðinu 7. nóvember, en þar segir hann „að frá Cluny-klaustrinu kom ein stærsta siðbótarhreyfing miðaldanna, áður en alda siðbreytingarinnar reið yf- ir“. Það er og. Það skýtur nokkuð skökku við að hreyra það frá fulltrúa helstu kirkju mótmælenda í Norður-Evrópu að mikil siðbót hafi orðið út frá Cluny- klaustrinu á miðöldum, en jafnframt að mótmælendahreyfingin hafi leitt af sér siðbreytingu. Að vísu var breytingin hér á landi í formi hall- arbyltingar, þegar kristnir mótmæl- endur gerðu Jón Arason biskup og syni hans, kristna kaþólska, höfðinu styttri og hirtu eigur kirkjunnar. Þannig var því ekki varið í Norður- Evrópu. Þar varð kúvending til betri vegar, alltént fyrir mig sem mót- mælanda og kallaðist kúvendingin „refomering“, endurmótun. Það var á engan hátt líkt og þegar við skipt- um frá vinstri akreinarakstri yfir á hægri. Lítum ögn nánar á þessa miklu siðbót í kjölfar áhrifa frá Cluny- klaustrinu. Hjátrú var mikil á þess- um tíma og kirkjunni í mun að stýra fjöldanum, enda miklar væringar í páfagarði, spilling og valdabarátta. Helvítiskenningin hefur reynst kirkjunni óbrigðult stjórntæki gegn- um tíðina, og á dögum Cluny- munkanna var það stjórntæki nýtt til fulls gegn sauðsvörtum al- múganum í því að menn gætu snúið sér í auknum mæli til kirkj- unnar, þ.e. þeirrar kaþ- ólsku, og stuðlað að andlegri velferð horf- inna vina og vanda- manna með fyr- irbænum. Var áhersla lögð á flýtimeðferð gegnum hreinsunareld- inn, árum og and- skotum öllum til mikillar raunar. Þessi mikla siðbót fólst sem sé í því að knýja lýðinn undir stjórn eða aga kirkjunnar með hugmyndafræð- ina um sálarheill nákominna í hreinsunareldinum að vopni. Út frá þessum tíma átti sér stað mikið um- rót í Evrópu, klaustrum fjölgaði ört, en frá þeim verður það ekki tekið að þar stunduðu menn hin ýmsu fræði og ráku skóla, og upp úr þessum suðupotti spruttu krossferðirnar. Þá hafi menn hugfast að þeir sem sættu sig ekki við járnaga kirkjunnar á þessum tíma og viðurkenndu ekki ægivald hennar en byggðu heldur mál sitt á grundvelli Biblíunnar einnar, voru taldir réttdræpir og hundeltir. Taldi kirkjan sér fært í skjóli hinnar svokölluðu miklu sið- bótar og stuðnings sauðsvarts al- múgans að rétta kirfilega yfir trú- villingum, en kirkjan úthrópaði þá sem réttdræpari en landráðamenn. Hófst þar ferli Rannsóknarréttarins í nafni kirkjunnar, sem stóð í ein- hverjar aldir. Siðbreytingin, svo nefnd, kom sem andsvar við yfirgangi kirkj- unnar og kúgun gagnvart almenn- ingi, sem endaði með stofnun mót- mælendakirkjunnar í anda Marteins Lúters, sem kallaði á siðbót, ekki siðbreytingu, en forsendur þeirrar siðbótar voru: 1. Ritningin ein (sola scriptura). Burt með hefðina og mannasetn- ingar. 2. Trúin ein (sola fide). Hver mað- ur er prestur. Hinn réttláti lifir fyrir trú. 3. Kristur einn (solus Christus). Frelsun mannins fæst fyrir fórn- ardauða Krists. Kirkjan frelsar ekki. 4. Andkristur (Antichristus). Guð einn fyrirgefur syndir. Það kerfi sem setur sig á stall með Kristi en er um leið rotið inn að beini uppfyllir lýsingu Biblíunnar á andkristi. Af- staða Lúters hvað andkrist varðaði harðnaði eftir því sem hann eltist. Það skýtur því nokkuð skökku við, að lútersk-evangelíska kirkjan, arf- taki siðbótarinnar, skuli gera jafn lítið úr vægi siðbótarfrömuðanna og raun ber vitni, en leggja þess í stað slíka áherslu á siðbót með áherslu á líðan horfinna vina og vandamanna í skugga hugmyndafræði kaþólsku kirkjunnar. Lútersk-evangelíska kirkjan á í reynd ekki að vera í nokkrum einasta vafa um að horfnir ástvinir séu nú í sæluríkisfaðmi Guðs, víðs fjarri sorg og sút, þ.e. ef hún tekur mark á eigin kenningu um lífið og dauðann, en það helst leitast menn við að sanna sem þegar leikur einhver vafi á. Hins vegar, þá er virðingarvert að minnast horfinna ástvina og þakka samverustundir með þeim. Það gengur ekki fyrir kirkjuna að viðahafa svo tilgreinda fyrirbænaguðsþjónustu fyrir þeim sem horfnir eru, heldur ætti hún þess í stað að halda minningarguð- sþjónustur vegna þeirra sem lokið hafa vegferð hér.“ Fyrirbænir, gerist þeirra þörf? Eftir Ómar Torfason »Kirkjan á ekki að vera í nokkrum vafa um að horfnir ástvinir séu nú í sælufaðmi Guðs, þ.e. ef hún tekur mark á eigin kenningu um lífið og dauðann. Ómar Torfason Höfundur er sjúkraþjálfari. Lífið gerist í núinu. En allt of oft látum við núið renna úr greipum okkar með því að hraða okkur fram hjá mik- ilvægum augnablikum í dag og eyða dýr- mætum sekúndum lífs okkar í áhyggjur af framtíðinni eða vanga- veltur um fortíðina. Við gefum okkur lítinn tíma til að stunda íhugun og koma kyrrð á hugann. Núvitund er ástand þar sem við höfum athygli í núinu á opinn og virkan hátt. Núvitund þýðir að maður er með hugsunum sínum eins og þær eru, án þess að grípa þær eða ýta þeim burt. Í stað þess að láta lífið líða hjá án þess að lifa því, vaknar maður til meðvitundar og upplifir það á virkan hátt. Hér fyrir neðan eru tíu góð ráð til að þjálfa núvitundina: 1. Gerðu einn hlut í einu, í stað þess að vinna í mörgum hlutum sam- tímis. Þegar þú ert að vökva blómin, einbeittu þér þá að því. Þegar þú ert í sturtu, vertu þá bara þar. Ekki reyna að sinna öðrum verkefnum samtímis á meðan þú ert í símanum eða úti að keyra. 2. Gerðu hlutina hægt og af ráðnum hug. Gefðu þér tíma, gerðu hlut- ina af ásetningi og einblíndu á það sem þú ert að gera. 3. Gerðu minna. Hægt er að gera hlutina betur og af meiri athygli ef maður gerir minna. Með því að fylla daginn af verkefnum verður maður á þeytingi við að komast úr einu verkefni og yfir í það næsta. Til að geta gert minna er mik- ilvægt að forgangs- raða og sleppa því sem er ekki mik- ilvægt. 4. Hafðu bil á milli verkefna. Þetta gef- ur þér meiri ró og skapar einnig rými ef verkefni taka lengri tíma en áætlað var. 5. Verðu a.m.k. 5 mínútum á dag í að gera ekki neitt. Sittu í kyrrð og vertu meðvitaður um hugsanir þínar. Einblíndu á andardráttinn. Taktu eftir því sem er að gerast í kringum þig. Láttu þér líða vel með þögnina og kyrrðina. Þetta mun taka aðeins 5 mínútur. 6. Hafðu ekki áhyggjur af framtíð- inni – einblíndu á núið. Við erum oft það upptekin af framtíðinni að við gleymum að upplifa, hvað þá heldur njóta þess sem er að ger- ast hér og nú. Vertu meðvitaðri um eigin hugsanir og lærðu að taka eftir því þegar þú ert með áhyggjur af framtíðinni. Njóttu líðandi stundar. 7. Vertu á staðnum þegar þú talar við fólk. Hversu mörg okkar hafa varið tíma með fólki en hugsað á sama tíma um eitthvað allt annað, eins og hvað við ætlum að segja næst eða hvað við ætlum að gera seinna þennan dag? Hlustaðu af athygli og njóttu þess virkilega að njóta tíma þíns með viðkomandi. 8. Borðaðu hægt og gæddu þér á matnum. Stundum hámum við í okkur mat án þess að finna bragð- ið. Gott er að gefa sér tíma til að njóta hvers einasta bita og ná sem mestu út úr matnum. Það skemmtilega er að þannig borðum við líka minna auk þess sem við meltum matinn betur. 9. Lifðu hægt og gæddu þér á lífinu. Láttu fara vel um þig í því sem þú ert að gera á núlíðandi stundu, t.d. í heita pottinum, í fjallgöngu eða þegar hlustað er á tónlist. Hægðu á þér og gæddu þér á hverju ein- asta augnabliki. Notaðu skynfær- in og vaknaðu til meðvitundar um heiminn í kringum þig. 10. Gerðu hversdagsleg verkefni að hugleiðslu. Við upplifum hvers- dagsleg verkefni eins og þrif eða eldamennska oft sem strit en bæði verkefnin eru í raun frábærar leiðir til að stunda núvitund. Einbeittu þér að verkefninu, beindu athyglinni að því, og framkvæmdu það hægt. Hægt er að vera gjörhugull á hvaða stundu sem er með því að veita því sem er að gerast hér og nú athygli. Hugsaðu um þig sem eilíft, þögult vitni, og taktu eftir augnablikinu. Hvað heyrirðu? Hvað sérðu? Hvaða lykt finnurðu? Það skiptir ekki máli hvernig tilfinningin er – þægileg eða óþægileg, slæm eða góð – þú skoðar hana einfaldlega af því að þetta snýst um núið. Haltu áfram að æfa þig því æfingin skapar meistarann í þessu eins og svo mörgu öðru. Að lifa í núinu – 10 góð ráð Eftir Ingrid Kuhlman » Lífið gerist í núinu. En allt of oft látum við núið renna úr greip- um okkar með því að hraða okkur fram hjá mikilvægum augnablik- um. Ingrid Kuhlman Höfundur er framkvæmdastjóri Þekkingarmiðlunar. Mikið hefur verið rætt um þau áform kínverska auðmanns- ins Huangs Nubos að kaupa jörðina Gríms- staði á Fjöllum, sem er ein landmesta bú- jörð landsins. Sýnist sitt hverjum. Sumir fagna áhuga Nubos, sem er með risavaxn- ar hugmyndir um uppbyggingu ferða- þjónustu á jörðinni, en aðrir gjalda varhug við því að erlendir auðmenn eignist íslenskar nátt- úruperlur og geti hugsanlega í framtíðinni takmarkað aðgengi al- mennings að eigin landi. Ég hef engar forsendur til að ætla annað en að Nubo gangi gott eitt til og hann sjái viðskiptatæki- færi í því sem mörgum finnst að- eins vera örfoka eyðimörk. Ekki má heldur gleyma að hann hefur lýst yfir því að hann afsali sér öll- um vatnsréttindum, öðrum en þeim sem hann þarf til þess að starfrækja ferðaþjónustuna, og þeim auðlindum sem kunna að finnast í jörðu innan landareign- arinnar. Þrátt fyrir það er eðlilegt að stjórnvöld gefi sér góðan tíma til þess að marka stefnuna í mál- um sem þessum til framtíðar og svari þeirri spurningu hvort rétt sé að erlendir ríkisborgarar geti í krafti auðmagns keypt upp stóra hluta landsins. Í þessu sambandi er vert að leiða hugann að öðru en þó ekki óskyldu máli. Á árunum fyrir efna- hagshrunið fór fram skipuleg söfn- un íslenskra auðmanna á jörðum þar sem laxveiðileyfi voru meðal hlunninda. Þeir stórtækustu sönk- uðu að sér tugum jarða í þessu skyni. Erlendir ríkisborgarar létu heldur ekki sitt eftir liggja og frægasta dæmið er sennilega kaup svissnesks auðkýfings á öllum bú- jörðum og eyðibýlum í Mýrdal og þar með að veiðirétti í Heiðarvatni og Vatnsá sem er gjöful á sjóbirt- ing og lax. Í kjölfar þessara kaupa var Heiðarvatni lokað fyrir ís- lenskum almenningi og aðgengi að Vatnsá takmarkað verulega. Nú er reyndar farið að selja veiðileyfi í Heiðarvatn á nýjan leik og í Vatnsá geta menn veitt, greiði þeir uppsett verð. Eftir hrun stóðu stangaveiði- félög og aðrir veiðileyfasalar frammi fyrir því að vera með samninga, sem bundnir voru vísi- tölu, og kaupendahóp sem segja má að hafi verið hruninn. Á þessu var í flestum tilvikum tekið með samkomulagi leigutaka og landeig- enda um frystingu vísitöluhækk- ana um skeið. Nú virðast vera breyttir tímar og um það vitna ný- leg útboð og tilboð í laxveiðiár eins og Laxá á Ásum og Þverá og Kjarará. Í báðum tilvikum er um gríðarlegar hækkanir á leigugjöld- um að ræða. Fram hefur komið að verð veiðileyfa fyrir eina stöng í þrjá daga í Laxá á Ásum næsta sumar verði um 1,4 m.kr. sem sagt er vera 75% hækkun milli ára. Hæstu til- boðin í Þverá og Kjarará voru upp á tæpar 112 m.kr. en að teknu tilliti til kostn- aðar við netaupptöku í Hvítá og annars kostnaðar, auk þess sem vísitalan fór í gang um leið og til- boðin voru opnuð, má búast við því að leigu- upphæðin slagi hátt í 130 m.kr. þegar nýir leigutakar taka við ánni sumarið 2013. Það er því ekki nema von að aðrir veiðiréttareigendur hugsi gott til glóðarinnar næst þegar samið verður um aðrar af betri laxveiðiám landsins. Núverandi leigusamningar um tvær aðrar Borgarfjarðarár, Norðurá og Grímsá, renna út eftir næsta sum- ar og viðmiðið í nýjum samningum verður sennilega sprengitilboðið í Þverá og Kjarará. Á þetta er minnst hér til að hvetja íslenska stangaveiðimenn til að standa saman um að taka ekki þátt í þeirri helstefnu sem nú virð- ist eiga að marka. Íslenskir stangaveiðimenn, sem áhuga hafa á laxveiði, eru á góðri leið með að verða landlausir í eigin landi. Þeir hafa ekki efni á að borga 3.000 evrur (um 480 þús. ISK) fyrir stangardaginn á besta tíma og ekki einu sinni 1.000-1.500 evrur fyrir daginn á jaðartímum. Stjórn- völd mættu leiða hugann að þess- ari þróun, þ.e.a.s. ef þau hafa virkilegar áhyggjur af því að verið sé að takmarka aðgengi Íslendinga að náttúruperlum landsins. Næstkomandi laugardag verður aðalfundur Stangaveiðifélags Reykjavíkur, öflugasta og stærsta stangaveiðifélags landsins með um 4.000 félagsmenn, haldinn á Grand Hótel Reykjavík. Það er besti vettvangur félagsmanna til að ræða málin og hafa áhrif á stefnu- mörkunina. Ég hvet félagsmenn til að mæta á aðalfundinn og koma skoðunum sínum á framfæri. Með veiðikveðju. Eftir Eirík Stefán Eiríksson Eiríkur Stefán Eiríksson » Íslenskir stanga- veiðimenn, sem áhuga hafa á laxveiði, eru á góðri leið með að verða landlausir í eigin landi. Höfundur er blaðamaður og er höf- undur Stangaveiðihandbókanna. Landlausir, íslenskir stangaveiðimenn - nýr auglýsingamiðill 569-1100 finnur@mbl.is Ársalir fasteignamiðlun og fyrirtækjasala Ef þú vilt selja, leigja eða kaupa fasteign eða selja eða kaupa fyrirtæki í rekstri, hafðu samband. Ársalir FASTEIGNAMIÐLUN Engjateigi 5, 105 Rvk 533 4200 Ársalir ehf fasteignamiðlun 533 4200 og 892 0667 arsalir@arsalir.is Engjateigi 5, 105 Rvk Björgvin Björgvinsson, löggiltur fasteignasali

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.