Morgunblaðið - 24.11.2011, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 24.11.2011, Qupperneq 23
✝ Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, ANNA EINARSDÓTTIR, Hæðargarði 29, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Eir mánudaginn 21. nóvember. Hendrik Skúlason, Íris Sigurjónsdóttir, Þórður Skúlason, Elín Agnarsdóttir, Davíð Davíðsson, Embla Valberg, Einar Davíðsson, Helga Alfreðsdóttir, Jóhannes Davíðsson, Helga Jóhannesdóttir, Ragnar Davíðsson, Ingibjörg Vilhjálmsdóttir, Jón Halldór Davíðsson, Petrea Tómasdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, KRISTÍN KRISTJÁNSDÓTTIR, Bláskógum 12, lést á Skógarbæ föstudaginn 18. nóvember. Útför hennar fer fram frá Seljakirkju föstudaginn 25. nóvember kl. 15.00. Ólafur S. Ottósson, Steinunn Árnadóttir, Jóakim S. Ottósson, Helga Ottósdóttir, Gunnar Dagbjartsson, barnabörn, langömmubörn og langalangömmubörn. MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. NÓVEMBER 2011 ✝ Árni Magn-ússon fæddist í Reykjavík 25. des- ember 1937. Hann lést á heimili sínu á Seltjarnarnesi 17. nóvember 2011. Foreldrar Árna voru Magnús Guð- mundsson, sjómað- ur frá Melum, Ár- neshreppi á Ströndum, f. 1910, d. 1984, og Þórdís Árnadóttir, húsfreyja frá Þverhamri í Breiðdal, f. 1912, d. 1998. Árni var elstur þriggja systkina. Þau eru Jensína Guðrún, f. 1942, og Hersteinn, f. 1946, d. 1985. Eiginkona Árna frá 16. októ- ber 1966 er Móeiður Marín Þor- láksdóttir ritari, f. 27. febrúar 1941. Foreldrar hennar voru Þorlákur Eiríksson, sjómaður frá Borgarfirði eystra, f. 1898, maður á mörgum skipum tog- araflotans. Árið 1973 flutti Árni með fjölskyldu sína til Vest- mannaeyja þar sem hann varð skipstjóri á Breka. Síðan skip- stjóri og eigandi Vers VE 200 frá 1973 til 1979. Fjölskyldan flutti frá Vestmannaeyjum 1981. Árni gegndi formanns- stöðu í Skipstjóra- og stýri- mannafélaginu Verðanda 1981 til ’82. Árið 1981 fór Árni í end- urmenntun í verkstjórn og fisk- mati hjá Fiskvinnsluskólanum í Hafnarfirði. Starfaði hann sem slíkur hjá BÚR og síðar hjá Granda hf. allt til starfsloka 2003. Árni var í Kiwanisklúbbnum Elliða frá árinu 1992 og var hann forseti klúbbsins árin 2009 og 2010. Árni greindist með krabbamein 11. september sl., þá tók við stutt en snörp barátta sem lauk nú í nóvember. Árni verður jarðsunginn frá Seltjarnarneskirkju í dag, 24. nóvember 2011, og hefst athöfn- in kl. 13. d. 1993, og María Guðjónsdóttir, hús- freyja úr Reykjavík, f. 1907, d. 1994. Börn Árna og Mó- eiðar eru María, f. 1963, maki Pjetur Stefánsson, dóttir þeirra er Ásta Kristín. Þórdís, f. 1968, maki Daniel Marston, börn Þór- dísar eru Hlédís Maren og Magnús Jökull. Þor- lákur Már, f. 1969, sambýlis- kona Edda Huld Sigurðardóttir. Synir Þorláks eru Indriði Áki og Alexander Már. Árni ólst upp í Reykjavík. Hann gekk menntaveginn og lauk landsprófi frá Laug- arvatni. Hann fór snemma til sjós og lauk prófi frá Skipstjóra- og stýrimannaskólanum í Reykjavík 1962. Árni var stýri- Ég og pabbi áttum yndislegt samband síðasta áratuginn. Við urðum mjög náin og ég kynntist pabba alveg upp á nýtt. Hann kom út til okkar á hverju ári og dvaldist í nokkra mánuði og það var svo fallegt að sjá hann kynnast öðru fólki og bjarga sér sjálfur, svo sjálfstæðan og hugrakkan og op- inn fyrir nýjum upplifunum er- lendis. Hann var elskaður sem maðurinn Árni, virtur sem Árni skipstjóri og lofaður sem Árni tengdapabbi, maður orða sinna og gjörða. Ég kynntist honum aftur í gegnum annað fólk og var kominn tími til því allt of lengi sá ég bara Árna pabba og það var ekki sönn mynd af honum. Hann var svo miklu meira en bara pabbi minn. Hann var yndislegur maður sem lét sig allt óréttlæti miklu varða. Hann hafði sterkar skoðanir á pólitík og var stoltur af að vera vinstrimaður, alveg í gegn og allt- af. Hann var sá sem leitað var til þegar eitthvað bjátaði á og ég veit að oft var hann inni í persónuleg- um málum þeirra sem unnu hjá honum, ekki endilega vegna þess að hann vildi það, heldur vegna þess að fólk leitaði til hans með ýmislegt og hann reyndi að hjálpa. Hann mátti ekkert aumt sjá og það voru ekki til í honum fordóm- ar og átti hann það til að skamma mann hátt og snjallt ef maður dæmdi fyrir fram fólk eftir klæða- burði, stétt eða litarhætti. Pabbi vildi vera indjáni þegar allir aðrir vildu vera kúrekar og ég hef hann grunaðan um að halda alltaf með því liði sem var að tapa í ensku knattspyrnunni því einhver varð að halda með því. Elsku pabbi, ég kveð þig nú og þakka þér þolinmæðina og biðst fyrirgefningu á frekjunni og óhemjuganginum í mér langt fram eftir aldri. Það var yndislegt að vera dóttir þín og algjör heiður að fá að læra af þér. ES. Fonzie og Bugsy sakna þín mikið og hafa ekki fengið almenni- legan göngutúr síðan þú fórst. Þórdís Árnadóttir. Þegar ég sest niður til þess að skrifa nokkur minningarorð um Árna bróður minn og vin, sem lést 17. þ.m., hrannast minningarnar upp. Fyrstu minningar mínar um hann eru frá því þegar við fjöl- skyldan ásamt Herdísi ömmu fluttum að Skúlagötu 70. Árni var stóri bróðir minn, þá átta ára gam- all, ég var fjögurra ára og Her- steinn litli bróðir okkar var nokk- urra mánaða. Á Skúlagötunni var góð aðstaða fyrir börn að alast upp. Á milli Skúlagötu og Laugavegar var stórt leiksvæði og fótboltavöllur. Þar æfði Árni fótbolta flesta daga með strákum úr Fram og Val. Hann valdi Val sem sitt félag og æfði og spilaði með þeim á sínum yngri árum. Valsari var hann til æviloka. Árni var strax mjög úrræða- góður, sem stóri bróðir kom það í hans hlut að gæta mín. Kenndi hann mér bæði að synda og hjóla, þær minningar eru alveg sérstak- ar í hjarta mínu. Eftir nokkrar ferðir í Sundhöllina henti hann mér í djúpu laugina og ég synti. Þannig var það líka með hjóla- kennsluna; hann lét mig fara á hjólið í brekku, ýtti mér af stað og ég hjólaði. Það var stór stund þegar fjöl- skyldan flutti í Ásgarðinn, en þá var Árni farinn að stunda sjóinn. Hann fór í Stýrimannaskólann og lauk þaðan prófum. Hann sigldi mikið til útlanda og ekki var leið- inlegt þegar stóri bróðir kom heim færandi litlu systur flott föt. Árin liðu, Árni fann stóru ástina í lífi sínu, hana Móu, fjölskyldan stækkar og flytur til Vestmanna- eyja. Börnin þeirra eru þrjú, þau María, Þorlákur og Þórdís. Þegar skroppið var til Reykja- víkur var alltaf slegið upp veislu í Ásgarðinum. Fjölskyldan var mikið matarfólk og höfum við haldið uppi matarmenningu for- eldra okkar. Í fjölskylduboðunum var Árni alltaf aðalmaðurinn, unga fólkið hændist að honum, enda fylgdist hann vel með hvað hver og einn var að aðhafast. Það var okkur mikið áfall þegar Hessi bróðir okkar lést aðeins 38 ára úr hjartaáfalli frá konu og tveimur litlum dætrum. Við missi hans má segja að samband okkar Árna hafi breyst í djúpa vináttu sem stóð til hans hinsta dags. Árni las mikið og var vel að sér í öllum málum og mjög pólitískur. Töluðum við oft saman í síma og tókum stöðuna í þjóðmálunum, ekki vorum við alltaf sammála, en þá útskýrði Árni málið fyrir mér og gerði það svo skemmtilega. Þessara símtala okkar á ég eftir að sakna mikið. Eftir að hann fór á eftirlaun fóru þau hjónin að stunda golf. Vorum við í sama golfklúbbi og ánægjulegt var að hitta þau á golf- vellinum, taka með þeim hring eða bara spjalla saman um þessa skemmtilegu ástríðu. Bróðir minn var ótrúlega dug- legur þrátt fyrir mikil veikindi, en hann stóð ekki einn, Móa hans stóð alltaf við hlið hans, í blíðu og stríðu. Banalegan var stutt, hann lést á heimili sínu umvafinn fjöl- skyldu sinni. Elsku bróður mínum þakka ég samfylgdina í nær sjötíu ár og bið honum guðsblessunar á nýjum leiðum. Trúi ég því að Ásgarðs- fjölskyldan sé þar sameinuð á ný og taki á móti mér þegar minn tími kemur. Þín systir, Jensína Magnúsdóttir (Lillý). Fallinn er frá einstakur frændi. Árni frændi var alltaf hress og kátur. Í fjölskyldunni var hann höfðinginn hjá okkur í Ásgarðs- genginu. Í sorginni fer um okkur gleði, því að Árni var alltaf glaður, hann var með stríðnisglott í aug- um og smitaði frá sér gleði. Árni frændi var alltaf að spyrja hvernig við hefðum það og hvernig börn- unum okkar vegnaði, og það var svo gott að vera spurður því: Svona á það að vera, við eigum að sýna hvert öðru áhuga. Þar sem Árni var þar var Móa, þau voru sem eitt. Mamma og Árni frændi voru ekta systkini, gerðu hvort annað sterkara og pössuðu vel hvort upp á annað. Hugur okkar er hjá Móu, Mæju, Láka og Þórdísi og fjöl- skyldu þeirra. Missirinn er mikill. Vertu sæll frændi, minningarn- ar lifa að eilífu Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Þórður og Þórdís. Mér er margt betur lagið en að halda á penna eða pikka á tölvu, en Árni Magnússon á það inni hjá mér að ég kveðji hann á prenti. Kynni okkar Árna hófust í Vest- mannaeyjum fyrir u.þ.b. 35 árum eða stuttu eftir gos og uppbygging eftir hamfarirnar að komast á skrið, en þá var stofnað bygging- arfélag nefnt Dverghamar og gengum við Árni í það félag og drógumst saman um parhús. Þarna í byrjun þekktumst við ekki neitt og það hafði slegið í smá- brýnu milli okkar á einum fund- inum í félaginu og ég var ekkert mjög hrifinn þegar við drógumst saman, en það breyttist fljótt því við nánari kynni féllu flestir fyrir Árna. Hann átti auðvelt með að tjá sig og lá ekkert á skoðunum sínum, hvort sem um pólitísk eða per- sónuleg mál var að ræða. Hann var félagshyggjumaður nokkuð langt til vinstri, þó fannst mér á allra síð- ustu árum hann aðeins vera farinn að hallast í stjór. Árni hafði þegar við kynntumst nýlega fest kaup á 70-80 tonna bát af Fiskiðjunni, sem hét Ver, en árið 1979 verður hann fyrir þeirri erfiðu lífsreynslu, á heimleið úr róðri, að fá brotsjó á bátinn og honum hvolfir og farast fjórir menn af sex manna áhöfn. Árna ásamt öðrum manni tókst við illan leik að komast í gúmmíbátinn og var bjargað af aðvífandi skipi. Eftir þennan atburð sagði hann skilið við sjómennskuna og haslaði sér völl á öðrum vettvangi, flutti frá Eyjum og hóf störf hjá Granda í Reykjavík. Um þetta leyti varð líka annar vendipunktur í lífi Árna, þegar hann sagði skilið við Bakkus og fór að búa alfarið með fjölskyldunni. Minningar mínar um Árna eru að mestu leyti bundnar við Eyjarnar, sjórinn var þá starfsvettvangur beggja og þótt við stæðum aldrei á sama þilfari var margt brallað þegar fast land var undir fótum og ekki allt við barna hæfi. Ég hugsa að á þeim árum hafi Móa alloft tal- ið upp að tíu áður en hún sagði eitt- hvað við sinn kall. Eins og áður sagði var Árni félagshyggjumaður og lét sig þau mál nokkru varða, var t.d. um skeið formaður skipstjóra- og stýrimannafélagsins Verðanda í Eyjum o.fl. Eftir að farsímaöldin gekk í garð er næsta hljótt á ljós- vakanum, en áður fóru samskipti manna á sjónum fram um talstöðv- ar á vissum bylgjulengdum sem allir gátu hlustað á. Þar fóru þeir oft á kostum Árni og Óskar á Frá, er þeir leystu lífsgátuna hvor með sínu lagi, það var oft ómetanleg dægrastytting, sem maður á aldrei framar eftir að njóta, að fylgjast með þeim umræðum. Kæra Móa, Mæja, Þórdís og Láki, þið eigið alla mína samúð, ykkar missir er mikill og ég sakna vinar. Guð blessi Árna Magnússon. Stefán Sigurðsson. Leiðir okkar Árna lágu saman 1984 þegar hann hóf störf sem verkstjóri hjá Bæjarútgerð Reykjavíkur (BÚR) á Meistara- völlum. Þar störfuðum við saman í nokkra mánuði og í framhaldi af því hjá Granda hf. við sérvinnslu karfa, sem komið var upp í frysti- húsi BÚR við Grandagarð þegar BÚR og Ísbjörninn hf. voru sam- einuð. Verkefnin voru margvísleg. Á Meistaravöllum var saltfisk- og skreiðarverkun auk karfavinnslu fyrir Japansmarkað. Á Granda- garði var fyrsta og eina sérvinnsla á karfa í heiminum, en einnig var þar grálúðuvinnsla, sem og loðnu og loðnuhrognafrysting. Á þessum tíma var ég ungur og reynslulítill sem stjórnandi, en tíminn á Grandagarði með þeim Árna og Elínu Hallgrímsdóttur mér við hlið ásamt öllu því góða fólki sem þar starfaði varð mér einstaklega lærdómsríkur, eftirminnilegur og ánægjulegur. Ég á Árna mikið að þakka. Hann var 18 árum eldri en ég og hafði verið skipstjóri til margra ára. Því bjó hann yfir mikilli þekk- ingu og reynslu sem hann var óspar á að miðla. Við náðum strax mjög vel sam- an og með okkur tókst vinátta sem hélst alla tíð. Árni var mjög vel gefinn, kappsamur og ráðagóður. Hann stóð alla tíð eins og klettur við hlið mér í þeim fjölbreyttu verkefnum sem okkur voru fengin til úrlausnar og fyrir það verð ég ævinlega þakklátur. Það var líka ákaflega gaman að vinna með Árna. Hann var mikill sögumaður og átti auðvelt með að sjá spaugilegu hliðina á hlutunum. Eins og sönnum húmorista sæmir gerði hann fyrst og fremst grín að sjálfum sér og það óspart. Gott geðslag hefur eflaust átt sinn þátt í að hjálpa Árna í gegnum þau miklu áföll sem mættu honum í líf- inu. Þegar maður hugsar til Árna kemur Móeiður eiginkona hans upp í hugann. Árni var ákaflega stoltur af Móu sinni eins og hún er kölluð og mátti vera það, glæsileg og vel gerð kona sem hún er. Eftir að við hættum að vinna saman var alltaf jafn hressandi og endurnærandi að hitta Árna á förnum vegi og fá sögur af því hvað á daga hans hafði drifið. Af börn- um og barnabörnunum sem hann var svo stoltur af og ferðalögum sem þau Móa kunnu svo vel að njóta og svo að sjálfsögðu af golf- inu sem hann fór að stunda í seinni tíð. Við Sólveig minnumst Árna fyr- ir þann velvilja og vináttu sem hann sýndi okkur og börnum okk- ar alla tíð. Í hjarta okkar geymum við dýrmæta minningu um góðan mann. Móu og fjölskyldunni vott- um við okkar dýpstu samúð. Torfi Þ. Þorsteinsson. Árni Magnússon MOSAIK Hamarshöfða 4 110 Rvk sími 587 1960 www.mosaik.is TILBOÐSDAGAR Frí uppsetning á höfuðborgarsvæðinu og frí sending út á land á legsteinum sem pantaðir eru í nóvember ✝ Yndisleg mamma okkar, dóttir, systir og mágkona, INGIBJÖRG VAGNSDÓTTIR, Holtastíg 11, Bolungarvík, lést á heimili dóttur sinnar í Kína sunnudaginn 20. nóvember. Jarðarförin verður auglýst síðar. Kristín, Birna og Ívar Ketilsbörn, Birna Hjaltalín Pálsdóttir, Soffía, Hrólfur, Margrét, Pálína, Haukur og Þórður Vagnsbörn og fjölskyldur. ✝ Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, SIGRÚNAR SIGURÐARDÓTTUR, Vallarbraut 6, Njarðvík. Sérstakar þakkir til starfsfólks á D-deild Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja fyrir frábæra umönnun. Guðmundur Ásgeirsson, Sigurrós Sigurðardóttir, Gréta Ásgeirsdóttir, Konráð Erlendsson, Hallfríður Ó. Ásgeirsdóttir Burke, Charles E. Burke, Skúli S. Ásgeirsson, Elín H. Hermannsdóttir, Valgeir Ásgeirsson, Rannveig Lilja Garðarsdóttir, Sigurður Á. Ásgeirsson, Hafdís Hafsteinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SVANA SIGRÍÐUR JÓNSDÓTTIR, Sólheimum, Kleifum, Ólafsfirði, sem lést þriðjudaginn 15. nóvember, verður jarðsungin frá Ólafsfjarðarkirkju laugardaginn 26. nóvember kl. 11.00. Þorvaldur Héðinn Einarsson, Matthildur Björg Jónsdóttir, Ásgerður Einarsdóttir, Finnur F. Óskarsson, S. Ásta Sigurfinnsdóttir, Vilhjálmur Hróarsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.