Morgunblaðið - 24.11.2011, Síða 32

Morgunblaðið - 24.11.2011, Síða 32
32 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. NÓVEMBER 2011 Nýjasta heimildarmyndÞorfinns Guðnasonarfjallar um Baldur nokk-urn frá Bakka í Svarf- aðardal, sama bæ og hinir frægu og fávísu Bakkabræður komu frá. Nýj- asti Bakkabróðirinn er Baldur Þór- arinsson sem hefur látið sig dreyma um það í tíu ár að ferðast hinum megin á hnöttinn til að hitta vin sinn og nafna sem flutti til Havaíeyja fyr- ir margt löngu. En Baldur kann hvorki ensku né er vanur að ferðast. Hann er vinalegur og góðlegur mað- ur sem er vinsæll í sveit sinni og það verður úr að nokkrir vina hans ákveða að fara með honum til þess- arar eyju í Kyrrahafinu. Myndin fylgir Baldri og félögum hans í und- irbúningnum og síðan endurfundum vinanna á Havaí. Þótt Baldur sé vinsæll meðal sveitunga sinna hefur hann ákveðna sérstöðu meðal þeirra. Sú sérstaða er undirstrikuð strax í fyrsta atriði myndarinnar þar sem hópur Svarf- dælinga syngur lag um hann en hann þegir. Strax á eftir er hann á meðal félaga þar sem öll syngja gamalt kvæði á meðan þau drekka öl, öll nema hann. Samfélagið í Svarfaðardal er óskaplega sjarmerandi. Þarna er glaðvært fólk og góðlegt. Þarna er fólk sídrekkandi, síhlæjandi og sí- syngjandi. Þarna brjóta menn heim- ilislega lögin með bruggi og heima- sölu á ýmiskonar góðgæti. Þetta samfélag umfaðmar mann þannig að maður finnur fyrir hlýju þess í sæti bíósins. Samtölin eru reyndar oft augljóslega uppdiktuð eða endur- tekin fyrir kvikmyndavélina. Fyrir vikið nær sagan að renna mjög greiðlega og markvisst, auk þess sem sérhver rammi myndarinnar er mjög örugglega teiknaður upp en í flestum heimildarmyndum verður stundum að fórna flottum ramma fyrir eitthvert atvik sem næst og verður að vera í myndinni. Því er ekki fyrir að fara í þessari mynd en stundum kemur örlítill stirðleiki í samtölin fyrir vikið. Maður finnur líka að flestir sem eru í mynd eru mjög meðvitaðir um myndavélina og því kemur stundum gervileg tilfinn- ing upp þar sem fólk er að tala sam- an en augljóslega alltaf að hugsa um vélina. Myndirnar af náttúrunni í Svarf- aðardal eru fallegar og Þorfinnur klippir myndina hugvitssamlega, sem dæmi þegar klippt er frá senu með körlum sem sitja inni að sumbli og enda söng með hrópi; næsta mynd er af fuglum á tjörn sem styggjast við eitthvað og fljúga af stað. Þannig er mynd og hljóð látið renna ljúflega saman. Það er líka hugvitssamlegt hvern- ig hann klippir yfir til Havaí en Þor- finnur sýnir ekkert frá ferðalaginu. Eftir langan undirbúning í Svarf- aðardal er síðan klippt á fætur Bald- urs í sandfjörunni á Havaí. Á meðan áhorfandinn horfir á sjóinn koma yf- ir tær hans í fjörunni áttar hann sig fljótlega á því að þetta er ekki ís- lensk fjara. Endurfundir vinanna eru síðan skemmtilegir og óvæntir. Havaí-kaflinn er engu síðri þótt þáttur Bandaríkjamannanna hafi verið svolítið skrýtinn, sérstaklega konu sem fór að hágráta yfir fegurð hests. En þetta er óskaplega falleg og stílhrein mynd. Bíó Paradís Bakka-Baldur bbbmn Stjórnandi: Þorfinnur Guðnason. Framleiðendur: Bjarni Óskarsson, Gísli Gíslason – Villingur ehf. BÖRKUR GUNNARSSON KVIKMYNDIR Skemmtileg Áhorfendur eru hvattir til að fara strax á þessa mynd því hún verður bara sýnd í kvöld og á morgun, fimmtudag og föstudag. Bakkabræður snúa aftur og fara til Havaí Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is Guðmundur Pétursson, eða Gummi P., er einn færasti gítarleikari landsins, um það held ég að enginn deili og hefur spilað með hundruðum listamanna og inn á annað eins af plötum. Guðmundur hefur auk þessa sinnt eigin tón- listarsköpun og fyrir þremur árum kom út platan Ologies, sem er mikill öndvegisgripur. Um hana reit greinarhöfundur m.a.: „Hugmyndum ægir semsagt saman en það er ekki svo að framvindan sé losaraleg eða tætinsgleg, síður en svo. En tónlistarstefnu er ei hægt að pinna niður þar sem Guðmundur snertir á djassi, blúsi, rokki, proggi og ný- bylgju og grautar þessu öllu saman og meiru til í þekkilega blöndu sem heldur manni sperrtum frá fyrsta tóni til þess síðasta.“ „Þetta er ekki meint sem framhald,“ svarar Guðmundur, aðspurður hvort hann sé á svip- uðum slóðum og greint er frá hér að framan. „En hún kallast samt ansi mikið á við síð- ustu plötur. Það er erfitt að lýsa þessu. Það er margt hér sem var ekki á síðustu plötu og margt þar sem er ekki hér!? Plöturnar eru ólíkar á ýmsan hátt en líkar einnig. Svarar þetta spurningunni (hlær)?“ Guðmundur og blaðamaður leggjast nú á eitt um að komast að niðurstöðu og verða ásáttir um að eitthvert form sé að verða til, Guðmundur sé kominn nær einhverju sem hægt væri að kalla algerlega hans eigið. „Eitthvað svoleiðis,“ segir hann. „Ég er a.m.k. sjálfur farinn að greina betur eitthvert form þarna. Þetta er að þokast í ákveðna átt, það er að skerpast á einhverjum stíl þarna.“ Guðmundur segist vinna þetta mikið til einn, en meðspilarar á plötunni séu svo þeir Styrmir Hauksson (hljóðbútar, hljóð og raddir), Davíð Þór Jónsson (píanó og flauta), Hrafnkell Orri Egilsson (selló), Eyþór Gunn- arsson (bongó og kongótrommur) og Kristinn Snær Agnarsson (trommur). „Trommarinn er lykilaatriði,“ segir Guð- mundur. „Þegar ég er búinn að semja tónlist- ina, þá er ég farinn að heyra í ákveðnum trommurum. Og þá hringi ég í viðkomandi. Ég og Kristinn höfum unnið nokkuð mikið saman í Senuþjófunum og það er taug þarna á milli.“ Guðmundur gefur lítið fyrir að hann sé upp- tekinn maður, hann eigi vel af tíma fyrir eigin tónlist. „En auðvitað er það ákveðin sjálfspíning að gera svona plötur. Það fara mjög margir klukkutímar í þetta.“ Platan verður kynnt í kvöld með hljómleikum á Faktorý en með Guðmundi á þeim tónleikum koma fram þeir Pétur Ben. (gítar og selló), Styrmir Hauksson (hljóðgervlar og slagverk), Valdi Kolli (bassi) og Kristinn Snær Agnarsson (trommur og slagverk). Einn „En auðvitað er það ákveðin sjálfspíning að gera svona plötur …“ Ákveðin sjálfspíning  Guðmundur Pétursson gítarleikari gefur út þriðju sólóplötu sína, Elabórat Útgáfunni verður fagnað í kvöld á Faktorý með tónleikum Fyrsta plata Guðmundar, Muzac, kom út árið 1997, fyrir heilum fjórtán árum. Önnur platan, Ologies, kom hins vegar út árið 2008 þannig að Guðmundur er farinn að herða róðurinn lít- ið eitt, svo spaugilega sé að orði komist. Um Ologies sagði Guðmundur í viðtali við Árna Matthíasson: „Þetta er tilraunaverkefni sem ég ákvað að leyfa að þróast og láta svo standa. Platan var ekki tekin upp á svo löngum tíma, en það fór mikil vinna í eft- irvinnslu á henni, það var mikið nostrað við upptökurnar.“ Þrjár sólóplötur FERILLINN Ný Elabórat er nýjasta platan.  Söngvakeppni Sjónvarpsins hefst laug- ardaginn 14. janúar 2012. Auglýst var eftir lögum í keppnina og bárust alls 164 lög. Val- nefnd hefur nú valið fimmtán lög úr inn- sendum lögum. Höfundar þeirra eru: Axel Árnason og Ingólfur Þórarinsson, Árni Hjartarson, Ellert H. Jóhannsson, Gestur Guðnason, Greta Salóme Stefánsdóttir, Her- bert Guðmundsson og Svanur Herberts- son, Hilmar Hlíðberg Gunnarsson, Magnús Hávarðarson, María Björk Sverrisdóttir, Fredrik Randquist og Marcus Frenell, Pétur Arnar Kristinsson, Sveinn Rúnar Sigurðsson og Valgeir Skagfjörð. Alls eru því sextán lagahöfundar sem taka þátt að þessu sinni. Fimm lög keppa í senn í beinni útsendingu frá myndveri Sjónvarpsins 14., 21. og 28. jan- úar. Áhorfendur og dómnefnd velja þau lög sem komast áfram í úrslitaþáttinn og hefur símkosning helmingsvægi á móti atkvæðum dómnefndar. Úrslitin fara fram laugardags- kvöldið 11. febrúar. Lagið sem ber sigur úr býtum verður framlag Íslands í Söngva- keppni evrópskra sjónvarpsstöðva sem hald- in verður í Bakú í Aserbaídsjan í maí á næsta ári. Lögin verða frumflutt á Rás 2 til að gefa áhorfendum kost á að heyra lögin áður en þau keppa í beinni útsendingu. Söngvakeppni Sjónvarpsins hefst 14. janúar og fimmtán lög hafa verið valin til keppni  Miðvikudaginn 30. nóv- ember, kl. 21, munu Kor- mákur & Skjöldur frum- sýna nýja línu sem hönnuð er af Guðmundi Jörundssyni, yfirhönnuði Herrafataverzlunar Kor- máks & Skjaldar. Sýn- ingin fer fram í Þjóðleik- húskjallaranum. Herrafatasýningarnar nutu mikilla vinsælda fyrir aldamót en voru loksins endurvaktar fyrir síðustu jól við frá- bærar undirtektir. Herrafatasýningarnar eru með öðru sniði en venjulegar tískusýn- ingar þar sem um eiginlegt skemmtikvöld er að ræða. Margir af helstu skemmtikröftum þjóð- arinnar koma fram og er siður að hafa eina poppstjörnu fyrir hvert ár. Ný herralína frá Kormáki & Skildi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.