Morgunblaðið - 24.11.2011, Page 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. NÓVEMBER 2011
Helgi Hrafn Jónsson birt-ist óforvarandis í ís-lensku tónlistarlífi meðbreiðskífuna Glóandi
haustið 2005, en fram að því var
hans helst getið sem básúnuleika í
klassískri tónlist. Örlögin höguðu
því þó svo að hann lagði básúnuna á
hilluna að miklu leyti vegna axl-
armeiðsla, en dró fram gítarinn og
tók að semja lög.
Á Glóandi bauð Helgi upp á al-
þýðlega alþjóðlega poppmúsík,
prýðis plata, en fullfjarlæg, eig-
inlega of alþjóðleg og ekki nógu
persónuleg. Á næstu skífu, For the
Rest of my Childhood, opnaði hann
hjarta sitt algerlega, ef svo má
segja; bersöglistextar og lág-
stemmdar laga-
smíðar þar sem
kassagítar og pí-
anó voru yfirleitt
í aðalhlutverki og
röddin notuð svo
veikt og sparlega
að stundum var sem áheyrandinn
stæði á hleri. Margt var og af-
skaplega vel gert á þeirri plötu, en
annað fullfínlegt og brothætt.
Nú þegar Helgi sendir frá sér
þriðju sólóskífuna má svo segja að
hann sé búinn að finna fjölina sína,
finna jafnvægið á milli hins fínlega
og hins fjöruga; innhverfir depurð-
artextar kallast á við úthverfan lífs-
trega. Víst fer platan rólega af stað
í lagatvennunni ljúfu The Melting
Point of / Salt, en svo hefst fjörið
þegar í næsta lagi, Darkest Part of
Town, sem nýtur ekki síst skemmti-
legrar raddsetningar. Útsetningar
eru einmitt mjög skemmtilegar á
skífunni, áðurnefnd raddsetning er
gott dæmi um það, en líka hrífandi
hádramatískir strengir í Dimmu og
vel útfært slagverk í Good Firem-
an. Nefni líka hugvitsamlegan takt
og snjöll taktskipti í Stuck in Traf-
fic og líka vel skældan og villtan
gítar í því skemmtilega lagi. Spila-
mennska á plötunni er öll til fyr-
irmyndar, þar er hvergi snöggan
blett að finna.
Helgi er lunkinn lagasmiður, en
honum hættir til að fela laglínurnar
um of því þó það sé gaman að fara á
hnotskóg eftir einhverju sem gefið
er í skyn þá er fátt skemmtilegra
en að fá laglínuna upp í fangið og
heyra hana síðan þræða sig í gegn-
um viðkomandi lag. Það er og helsti
kostur skífunnar að lögin eru aug-
ljósari, ef svo má segja, en þola
engu að síður mikla hlustun og gefa
reyndar meira af sér eftir því sem
oftar er hlustað, eins og á að vera
með góða tónlist.
Eins og getið er hér að ofan þá
eru textar skífunnar ýmist trega-
fullir eða daprir, fólk leitar sér fró-
unar í glaumi bæjarins, en maður
hefur á tilfinningunni að það muni
ekki ganga eftir – þó húsið fyllist af
gestum endar það með því að mað-
ur dansar einn. Þetta er því per-
sónuleg og sterk plata og það er nú
einu sinni svo að þær plötur sem
eru persónulegastar, innilegastar,
eru líka þær plötur sem ná til
flestra.
Maðurinn dansar alltaf einn
Helgi Jónsson - Big Spring bbbbn
ÁRNI
MATTHÍASSON
TÓNLIST
Innilegur Á Big Spring er Helgi Hrafn Jónsson búinn að finna fjölina sína,
búinn að finna jafnvægið á milli hins fínlega og hins fjöruga
„Strákurinn setur mig í núið“
Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
Út er komin platan Tree of Life og er Her-
bertson fyrir henni skráður. Hér er um að
ræða þá feðga, Herbert Guðmundsson og
Svan Herbertsson og er þetta fyrsta breið-
skífa þeirra. Samstarfið var gert opinbert í
fyrra, er lagið „Time“ kom út en á Tree of
Life leggja þungavigtarmenn einnig gjörva
hönd á plóg en þar má nefna Gunnlaug
Briem, Harald Þorsteinsson, Stefan Magn-
ússson, Tryggva Hübner og þá Magnús og
Jóhann. Aron Þ. Arnarsson, Nikulás Ró-
bertsson, Jóhann Ásmundsson og Arnþór
Örlygsson komu þá að upptökumálum og
sjálfur Mike Pollock aðstoðaði við textagerð.
Herbert þarf þá ekki að kynna en sonur
hans Svanur hefur lengi sýnt að hann er
mikið efni og var t.a.m. valinn söngvari
Músíktilrauna árið 2010.
„Við unnum þetta mikið til í stofunni
heima,“ útskýrir Herbert. „Strákurinn er
svo klár með alla þessa tölvutækni og er
með öll þessi upptökuforrit á hreinu. Við
unnum lögin svo saman; ég kom með mel-
ódíu, hann hljómagang og svo sá hann um
útsetningar.“
Herbert segir að þeim feðgum fari vel að
vinna saman, ferlið hafi verið nokkuð
snuðru- áreynslulaust og ekkert um ýfingar
eða árekstra.
„Það var Svanur sem stakk upp á því við
mig að við gætum gert þetta mestanpart
heima, mér dettur aldrei neitt annað í hug
en að fara í rándýr hljóðver. Strákurinn set-
ur mig í núið.“
Fortíð/nútíð
Herbert segir að fortíðin og nútíðin séu
því að mætast á plötunni í vissum skilningi.
„Mér finnst þetta vera það besta sem ég
hef komið nálægt. Þannig líður manni akk-
úrat núna. Það kom mér á óvart, já, hvað
það var skemmtilegt - og auðvelt - að vinna
með stráknum. Reynsluboltarnir voru líka
að segja mér þetta. Að hann væri alveg með
þetta drengurinn.“
Herbert segir að framhald verði á þessu
samstarfi, það sé alveg klárt.
„Ég hélt að ég hefði hreinlega klárað mig
af með Spegli sálarinnar (2008). Að ég væri
bara hættur í tónlist. En það er aldeilis
ekki. Nú er eins og eitthvað nýtt sé að hefj-
ast.“
Fyrsta breiðskífa
feðganna Svans og
Herberts, Tree of Life,
er nýkomin út
Eplið og Eikin Svanur Herbertsson og Herbert Guðmundsson eru Herbertson.
- US WEEKLY
HHHH
- BACKSTAGE
HHHH
ROWAN ATKINSON
HHH
- K.I. -PRESSAN.IS
- OK
HHHHH
- THE SUN
HHHH
MÖGNUÐ GAMANMYND
KVIKMYNDIR.IS
HHHH
- EMPIRE
HHHH
- US WEEKLY
HHHH
- CBS TV
HHHH
MIÐASALA Á WWW.SAMBIO.IS
TWILIGHT:BREAKINGDAWN kl. 5:30 - 8 - 10:30 2D 12
TWILIGHT:BREAKINGDAWN kl. 5:30 - 8 - 10:30 2D VIP
TOWERHEIST kl. 5:30 - 8 - 10:20 2D 12
THE IDES OF MARCH kl. 5:30 - 8 - 10:20 2D 14
THE INBETWEENERS kl. 8 - 10:30 2D 16
THEHELP kl. 5:40 - 8:20 2D L
JOHNNYENGLISHREBORN kl. 5:50 2D 7
/ ÁLFABAKKA
TWILIGHT:BREAKINGDAWN kl. 5:30 - 8 - 10:40 2D 12
THE IDES OF MARCH kl. 8 - 10:30 2D 14
THE INBETWEENERS kl. 8 - 10:30 2D 16
ÆVINTÝRITINNA Enskt tal kl. 5:30 - 8 3D 7
THEHELP kl. 10:20 2D L
ÞÓR kl. 5:30 3D L
THETHREEMUSKETEERS kl. 5:30 3D 12
TWILIGHT:BREAKINGDAWN kl. 8 2D 12
IMMORTALS kl. 10:30 3D 16
WHATS YOUR NUMBER kl. 8 - 10:20 2D 12
/ EGILSHÖLL
/ KRINGLUNNI
/ KEFLAVÍK
/ AKUREYRI
/ SELFOSSI
TWILIGHT:BREAKINGDAWN kl. 5:30 - 8 - 10:30 2D 12
THE IDES OF MARCH kl. 8 - 10:30 2D 14
THE INBETWEENERS kl. 10:20 2D 16
THEHELP kl. 5:20 2D L
TWILIGHT:BREAKINGDAWN kl. 8 - 10:20 2D 12
THESKINILIVEIN kl. 8 2D 16
THETHREEMUSKETEERS kl. 10:20 2D 12
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG
KEFLAVÍK SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL OG KRINGLUNNI
SÝND Í EGILSHÖLL OG AKUREYRI
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL
OG KRINGLUNNI
SÝND Í ÁLFABAKKA
NÆSTU SÝNINGAR Á FÖSTUDAG
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL OG KRINGLUNNI
SVIKRÁÐ
SÝND Í ÁLFABAKKA
MAGNAÐUR ÞRILLER
100/100
PHILADELPHIA
INQUIRER
91/100
ENTERTAINMENT
WEEKLY
„MÖGNUÐ OG VEL
GERÐ MYND“
-H.V.A. - FBL
HHHH
VERTU MEÐ ÞEIM FYRSTU Í
HEIMINUM TIL AÐ SJÁ HIÐ
MAGNAÐA ÆVINTÝRI UM
BELLU, EDWARD OG JACOB
SÝND Í EGILSHÖLL