Morgunblaðið - 16.12.2011, Blaðsíða 1
F Ö S T U D A G U R 1 6. D E S E M B E R 2 0 1 1
Stofnað 1913 295. tölublað 99. árgangur
HUGINN AFKASTA-
MIKILL BARNA-
BÓKAHÖFUNDUR
GETUR SUNGIÐ
EINS OG
SHAGGY
GRILLAR HUMAR
Á GAMLÁRS-
KVÖLD
SYKURSÆT AGNES BJÖRT 39 ÁBÓT EFTIR SKAUPIÐ 22STOFNAÐI EIGIN BÓKAÚTGÁFU 10
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Steinunn Guðbjartsdóttir, formaður slitastjórnar
Glitnis, hefur tilkynnt þeim Ólafi Ísleifssyni, for-
manni stjórnar ISB Holding (sem fer með 95%
hlut í Íslandsbanka), Ástu Þórarinsdóttur stjórn-
armanni og Maríu Björgu Ágústsdóttur, stjórn-
armanni, að ákveðið hafi verið að skipta um stjórn
ISB Holding og skýrði hún þessa ákvörðun, sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins, á þann veg að
um áherslubreytingar
væri að ræða.
Steinunn sagði í
samtali við Morg-
unblaðið í gær, spurð
um ástæður þess að
stjórnin var sett af, að
breytingar væru
framundan. „Skila-
nefndin sem skipaði
stjórn ISB Holding
hættir um áramót og
það má segja að nýju
fólki fylgi nýjar
áherslur. Við erum að
fara inn í nýjan fasa
núna, sem er end-
urskipulagning,
mögulegir nauðasamningar hjá Glitni og inn í þá
atburðarás fléttast Íslandsbanki óhjákvæmilega.
Við teljum okkur vera að fá mjög hæft fólk þarna
til starfa,“ sagði Steinunn.
Fjármálaeftirlitið þarf að staðfesta slíkar
breytingar, en það hefur ekki enn verið gert.
Gunnar Andersen, forstjóri FME sagði í samtali
við Morgunblaðið í gær, að hin nýja stjórn þyrfti
að koma í hæfismat til FME, áður en hægt væri
að staðfesta breytingarnar. „Við þurfum að sann-
reyna óhæði þeirra, hæfi og hæfni. Við settum
fjölmörg skilyrði fyrir þessu eignarhaldsfélagi til
þess að tryggja sjálfstæði þess. Á næstunni verða
þessir nýju stjórnarmenn kallaðir hingað til okkar
í hæfismat,“ sagði Gunnar.
Öll stjórn
ISB sett af
Formaður slitastjórn-
arinnar segir að nýju fólki
fylgi nýjar áherslur
MNý stjórn ISB »6
Skilanefnd
» Skilanefnd Glitnis,
sem skipaði stjórn
ISB Holding, hættir
um áramót og for-
maður slitastjórnar
segir að nýju fólki
fylgi nýjar áherslur.
» Þau Tryggvi Páls-
son, Reynir Krist-
insson og Dagný
Halldórsdóttir, fara í
hæfismat hjá FME.
Ljúfan og sætan ilm lagði yfir miðbæinn í gær-
kvöldi þegar Ævar Örn Magnússon og Guð-
mundur Arngrímsson ristuðu möndlur í sykri og
kanil að dönskum hætti. Þeir höfðu komið sér
vel fyrir á horni Skólavörðustígs og Laugavegar
og hafa eflaust komið vegfarendum í jólaskap.
Ljúf angan á Laugavegi
Morgunblaðið/Ómar
Rekstrar-
aðilar IKEA-
verslunar-
innar á Ís-
landi hafa
fengið lóð í Vilníus, höfuðborg
Litháens, og stefna að opnun fyrstu
IKEA-verslunarinnar í Eystrasalts-
ríkjunum haustið 2013.
Kostnaður við uppbygginguna er
áætlaður um 45 milljónir evra sem
svarar til um 7 milljarða íslenskra
króna. Sigurður Gísli Pálmason
stjórnarformaður segir að verk-
efnið sé fullfjármagnað, að öllu
leyti frá útlöndum.
Verslanir IKEA hafa víða dregið
að sér aðrar smásöluverslanir. Gert
er ráð fyrir því í skipulagi versl-
unarsvæðisins í Vilníus að svo geti
einnig orðið þar. »2
Íslendingar byggja
upp IKEA í Litháen
Samkvæmt
langtímaveð-
urspá norsku
veðurstofunnar
mun snjóa hér á
landi dagana fyr-
ir jól og á að-
fangadag. Á
þetta bæði við
um Reykjavík og
Mývatn svo dæmi séu tekin. Því er
útlit fyrir hvít jól að þessu sinni, en
margt getur breyst í veðrinu á
rúmri viku.
Útlit er fyrir að veðurfarið hald-
ist svipað á landinu öllu fram yfir
jól, þó með þeirri undantekningu að
það geri skammvinna þíðu í að-
draganda jólanna strax eftir helgi
og fram í miðja viku ef tekið er mið
af veðurbloggi Einars Sveinbjörns-
sonar veðurfræðings. Gert hafði
verið ráð fyrir meiri hlýindum eftir
helgi en hlákuspáin virðist dregin
til baka.
Útlit fyrir snjókomu
á aðfangadag
dagar til jóla
8
Askasleikir
kemur í kvöld
www.jolamjolk.is
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Ekki var ljóst í gærkvöldi hvenær
þingsályktunartillaga um að fela
saksóknara Alþingis að draga til
baka ákæru á hendur Geir H.
Haarde fyrir landsdómi yrði lögð
fram á Alþingi eða hverjir yrðu með-
flutningsmenn Bjarna Benedikts-
sonar að málinu. Bjarni telur að
staðan í þinginu hafi breyst frá því
málshöfðun var samþykkt.
Þingmenn úr fjórum flokkum hafa
lýst yfir stuðningi við málið og áhuga
á að gerast meðflutningsmenn, sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins.
Málið var rætt í þingflokkunum í
gær. Andstaða var við það í þing-
flokki Samfylkingarinnar að þing-
menn flokksins gerðust meðflutn-
ingsmenn. Niðurstaða þingflokks
Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs varð sömuleiðis sú að þing-
menn flokksins stæðu ekki að þessu
máli. Björn Valur Gíslason, formað-
ur þingflokksins, sagði aðspurður að
flokkurinn bannaði ekki þingmönn-
um að styðja mál eða flytja með öðr-
um.
Þeir sem unnið hafa að málinu
telja að komin sé upp ný staða um
stuðning við kæruna sem samþykkt
var fyrir rúmu ári. Samkvæmt heim-
ildum Morgunblaðsins hefur komið
fram í samtölum þingmanna að sí-
fellt fleiri muni veita tillögu um aft-
urköllun málsins stuðning eða hlut-
leysi.
Þar er meðal annars rætt um til-
tekna þingmenn Framsóknarflokks-
ins sem greiddu atkvæði með máls-
höfðun og þingmenn VG sem
yfirgefið hafa flokkinn eða voru fjar-
verandi. Á móti hefur Róbert Mars-
hall, þingmaður Samfylkingarinnar,
sem greiddi atkvæði á móti máls-
höfðun, lýst því yfir að ekki sé rétt að
stöðva málið.
„Ég tel augljóst að þingið hljóti að
bregðast hratt og örugglega við. Ég
hefði ekki unnið að málinu nema ég
teldi aðstæður á Alþingi gjörbreytt-
ar,“ segir Bjarni Benediktsson, for-
maður Sjálfstæðisflokksins. Ekki
var búið að leggja tillöguna fram í
gærkvöldi, þegar Morgunblaðið
hafði síðast fréttir af málinu, og ekki
gengið frá því hverjir yrðu meðflutn-
ingsmenn. »4
Telur stöðuna breytta
Þingmenn undirbúa tillögu um að draga til baka ákæru á hendur Geir H. Haarde
Andstaða er í stjórnarflokkunum við að þingmenn gerist meðflutningsmenn