Morgunblaðið - 16.12.2011, Blaðsíða 20
FRÉTTASKÝRING
Hörður Ægisson
hordur@mbl.is
Hægt væri að afnema gjaldeyris-
höftin á innan við ári í tveimur
áföngum. Annars vegar með útgáfu
ríkisins á langtímaskuldabréfum í
erlendum gjaldmiðlum sem hægt
yrði að nota til þess að létta mögu-
legum þrýstingi af gjaldeyrismark-
aði og hins vegar afnámi almennra
gjaldeyrishafta samhliða því að
hömlum sem nú eru í gildi verði af-
létt í þrepum á um það bil tólf mán-
aða tímabili. Þetta kemur fram í
greinargerð sem hópur sérfræðinga
vann fyrir Viðskiptaráð um tillögur
að afnámi hafta.
Fyrsta skref áætlunarinnar geng-
ur út á að losa um „snjóhengju“
óþolinmóðs fjármagns með því að
veita öllum eigendum aflandskróna
– innlendum sem erlendum – tæki-
færi til að bjóða í langtímaríkis-
skuldabréf í erlendum gjaldmiðlum.
Í kjölfarið væri hægt að selja slík
bréf á virkum eftirmarkaði og
breyta þannig í aðrar tegundir er-
lendra eigna (hlutabréf, skuldabréf,
bankainnstæður og fasteignir).
Fram kemur í skýrslu Viðskipta-
ráðs að útgáfan muni ekki auka
skuldsetningu ríkisins þar sem hún
verður notuð til þess að greiða upp
aðra fjármögnun. Hugmyndin er því
að setja snjóhengjuna í langt endur-
greiðsluferli og með þeim hætti
skapa skilyrði til að hefja afnám
hafta.
Innleiðing varúðarreglna
Slíkt skuldabréfaútboð gæti auk
þess leitt í ljós hversu stór hluti afla-
ndskrónueigenda hefði í raun og
veru áhuga á að flytja þær úr landi.
Yrði lítil þátttaka í útboðunum
myndi það hugsanlega gefa til
kynna að hægt væri að afnema höft
án þess að eiga von á jafnmiklu út-
flæði fjármagns og margir óttast.
Samfara öðru skrefi áætlunarinn-
ar – afnámi almennra gjaldeyris-
hafta – er lagt til að þegar í stað séu
útfærðar varúðarreglur sem ætlað
er að sporna við því að þeir brestir
sem orsökuðu gjaldeyriskreppuna
hér á landi geti komið upp á ný. Slík-
ar reglur miða að því að koma í veg
fyrir óhóflega erlenda skuldsetningu
og gjaldmiðlaskekkingu efnahags-
reikninga, meðal annars með því að
banna sveitarfélögum að taka erlend
lán og minnka tímabundið hámarks-
heimild lífeyrissjóða til að fjárfesta í
erlendum eignum – úr 50% í 30%.
Skýrsluhöfundar – þar á meðal er
Gylfi Magnússon, fyrrverandi efna-
hags- og viðskiptaráðherra – leggj-
ast hins vegar gegn fyrirvaralausu
afnámu hafta án annarra aðgerða
vegna hættu á miklu útflæði fjár-
magns. Á það er bent að hrein gjald-
eyrisstaða Seðlabankans er neikvæð
um 83 milljarða króna og því er
gjaldeyrisforðinn ekki nægjanlega
traustur til þess að takast á við mik-
ið útflæði fjármagns á skömmum
tíma.
Ekki forsenda afnáms
Lagt er til að Seðlabankinn reyni
að sporna við óhóflegum og lang-
vinnum sveiflum í raungenginu, sem
gæti – ef vel er staðið að málum –
leitt til uppbyggingar gjaldeyris-
forða á hagkvæman hátt. „Stærð
gjaldeyrisforðans nú er ekki nægj-
anleg að teknu tilliti til væntra út-
greiðslna á næstu misserum til að
stunda slík inngrip á gjaldeyris-
markaði og því þyrfti Seðlabankinn
fyrst um sinn að auka við regluleg
gjaldeyriskaup sín á markaði óháð
stöðu gengisins.“
Ekki er tekið undir það sjónarmið
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins að fyrst
þurfi að kortleggja framtíðarskipan
peningamála hér á landi áður en
ráðist er í afnám gjaldeyrishafta.
„Hvorki er nauðsynlegt né ráðlegt
að bíða með losun gjaldeyrishafta
þar til framtíðarfyrirkomulag
peningastefnunnar liggur fyrir.
Umgjörð peningastefnunnar er og
verður í sífelldri endurskoðun.“
Afnám gjaldeyrishafta á einu ári
Gjaldeyrishöft Til lengri tíma leiða höft til efnahagslegrar sóunar.
Starfshópur Viðskiptaráðs vill að ríkið ráðist í útgáfu langtímaskuldabréfa í erlendri mynt
Styrkja þarf gjaldeyrisforða Seðlabankans til að sporna gegn hættunni á miklu útflæði fjármagns
Afnám á einu ári
» Starfshópur Viðskiptaráðs
leggur til afnám hafta innan
tólf mánaða í tveimur skref-
um.
» Útgáfa ríkisins á lang-
tímaskuldabréfum í erlendri
mynt til að létta á mögulegum
þrýstingi á gjaldeyrismarkaði.
» Afnám almennra gjaldeyr-
ishafta þar sem samhliða yrðu
þrepuð upp fjárhæðarmörk á
fjármagnsflutningum og út-
gönguskattur þrepaður niður.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
20 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 2011
● Hlutabréf í japanska myndavélafram-
leiðandanum Olympus lækkuðu um
21% í kauphöllinni í Tókýó í gær vegna
ótta fólks um að það þurfi að auka
hlutafé fyrirtækisins verulega og virði
hlutabréfa muni þynnast út.
Tap Olympus á fyrstu sex mánuðum
rekstrarársins nam 32,3 milljörðum
jena, rúmum 50 milljörðum króna. Er
fyrirtækið enn á athugunarlista kaup-
hallarinnar á meðan rannsókn stendur
yfir á bókhaldsbrellum þess en talið er
að þeir hafi falsað bókhaldið um fimm
ára skeið.
Hlutabréf Olympus féllu
um 21% í kauphöllinni
Reuters
Farinn Woodford, fyrrverandi forstjóri
Olympus, ljóstraði upp um víðtækt svindl.
● Evrusvæðið mun
ganga í gegnum nokkra
niðursveiflu fyrri hluta
næsta árs, eða „napran
vetur,“ eins og endur-
skoðendafyrirtækið
Ernst & Young orðaði
það. Hin milda kreppa
sem fyrirtækið telur lík-
lega á næsta ári hjá
evru-ríkjunum verður til
þess að hagvöxtur alls
ársins 2012 er áætlaður
aðeins 0,1%. Einnig er
talið að atvinnuleysið
fari ekki undir 10% á
svæðinu.
Tölur frá skuldugasta ríki Evrópu, Grikklandi, sýna að þegar árið endar er lík-
legt að landið hafi slegið öll sín met um efnahagslega niðursveiflu. Árið 2010
dróst hagkerfi landsins saman um 4,5% en í ár stefnir í að samdrátturinn verði
enn meiri en þau 5,5% sem spáð hafði verið fyrir um.
Grikkland Skuldsettasta ríki Evrópu.
Niðursveifla hjá evru-ríkjunum á næsta ári
Reuters
● Matsfyrirtækið Fitch Ratings hefur
lækkað lánshæfiseinkunn fimm evr-
ópskra banka á þeim forsendum að þeir
eigi við lausafjárvanda að stríða. Bank-
arnir eru Danske Bank, Crédit Agricole,
Rabobank, Banque Federative du Credit
Mutuel og OP-Pohjola Group. Er ein-
kunn Danske Bank lækkuð úr A+ í A.
Lánshæfiseinkunn
Danske Bank lækkuð
!"# $% " &'( )* '$*
+,,-,
+./-,0
++1-23
,+-40.
,5-4/+
+1-03+
+,/-,1
+-3213
+.1-21
+3.-2.
+,,-0/
+./-1
++1-//
,+-0+
,5-03+
+1-35,
+,/-24
+-31,+
+..-,4
+3/-+,
,+1-5+..
+,,-1.
+/5-+2
++.-44
,+-01,
,5-3++
+1-334
+,/-//
+-3121
+..-1/
+3/-32
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
Munið að slökkva
á kertunum
Setjið aldrei servéttu
utan á kerti
Slökkvilið
höfuborgasvæðisins