Morgunblaðið - 16.12.2011, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 16.12.2011, Blaðsíða 21
FRÉTTIR 21Erlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 2011 Fríðindak ort Golfarans Golfkortið JÓLAGJÖF GOLFARANS Kortið fæst á völdum stöðvum Golfkortið 2012 Spilað um allt Ísland - 31 golfvellir Einstaklingskort 9.000 kr, Fjölskyldukort 14.000 kr Upplýsingar á golfkortid.is Kíkið inn á leikinn Makindi Kópurinn í sófanum. Kona nokkur á Nýja-Sjálandi rak upp stór augu þegar hún kom heim til sín á dögunum og sá óvæntan gest; kóp sem sat í sófa í stofunni. Kópurinn er sagður hafa farið af nálægri strönd, yfir fjölfarna götu, inn um kattarlúgu í hús konunnar, upp stiga, inn í eldhús og þaðan í stofuna. „Ég hélt ég hefði séð of- sjónir,“ hefur nýsjálenska blaðið Herald eftir konunni. Kópur fór inn í hús NÝJA-SJÁLAND A.m.k. 143 Indverjar hafa dáið af völdum heimabruggs sem innihélt baneitraðan tréspíra. Margir hinna látnu voru fátækir verkamenn sem höfðu ekki efni á löglegu áfengi, keyptu bruggið á ólöglegum börum eða af bruggurum í fátækrahéraði sunnan við Kalkútta. Reuters Yfir 140 manns hafa dáið af völdum eitraðs heimabruggs í fátækrahéraði LÁTNIR ÁSTVINIR SYRGÐIR Á INDLANDI Jacques Chirac, fyrrverandi forseti Frakklands, var fundinn sekur um spillingu og fékk tveggja ára skil- orðsbundinn fangelsisdóm fyrir rétti í París í gær. Chirac er gefið að sök að hafa tekið þátt í misnotk- un á opinberu fé þegar hann var borgarstjóri Parísar. Féð var notað til að borga starfsmönnum flokks forsetans fyrrverandi. Chirac átti yfir höfði sér allt að tíu ára fangelsi. Hann hefur sagt að sú spilling, sem lýst er í ákærunni, hafi átt sér stað, en hann hafi ekki vitað af henni. Chirac er fyrsti fyrrverandi þjóð- höfðingi Frakklands sem dreginn er fyrir dóm síðan Philippe Pétain marskálkur var dæmdur fyrir land- ráð eftir heimsstyrjöldina síðari. Dómurinn kom mörgum á óvart, enda hafði jafnvel saksóknari óskað eftir því að Chirac yrði sýknaður þar eð hann taldi að ekki hefði tek- ist að sanna aðild hans að málinu. Chirac er 79 ára og var ekki við- staddur dómsuppkvaðninguna vegna heilsubrests. Reuters Dæmdur Jacques Chirac íhugar nú að áfrýja dómnum í spillingarmálinu. Chirac fundinn sekur um spillingu FRAKKLAND Ársgamall drengur lifði af fall nið- ur af tíundu hæð byggingar í Japan og hlaut varla skrámu. Faðir barns- ins fleygði barninu út um glugga og hefur verið handtekinn fyrir morð- tilraun. Að sögn japanskra fjöl- miðla lenti barnið í runna á lóð byggingarinnar. Þar fann lögregla það grátandi skömmu síðar. Litli drengurinn er rispaður í andliti eftir greinarnar á runn- anum en að öðru leyti heill heilsu. Ungt barn lifði af tíu hæða fall JAPAN Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Hernaði Bandaríkjanna í Írak lauk formlega með táknrænni athöfn ná- lægt Bagdad í gær, tæpum níu árum eftir umdeilda innrás í landið. Stríðið í Írak kostaði tugi þúsunda manna lífið, en mikil óvissa er um mannfallið meðal óbreyttra borgara. Um 1,75 milljónir Íraka flúðu heim- kynni sín eftir að innrásin í landið í mars 2003 leiddi til hryðjuverka og blóðugra átaka milli íraskra sjíta og súnníta. Mjög erfitt er að meta mannfallið meðal óbreyttra borgara vegna skorts á áreiðanlegum opinberum gögnum og allar niðurstöðurnar sem birtar hafa verið eru mjög umdeild- ar. Samtökin Iraq Body Count hafa áætlað mannfallið út frá upplýsing- um frá fjölmiðlum og öðrum gögn- um, meðal annars tölum frá líkhús- um. Samtökin áætla að alls hafi nær 114.000 óbreyttir borgarar beðið bana. Mannfallið var mest í mars 2003, í mánuðinum sem innrásin var gerð, þegar nær 4.000 manns lágu í valnum, að mati samtakanna. Þessar tölur eru þó umdeildar vegna þess að fréttum um mannfall bar oft ekki saman, auk þess sem ekki er vitað í sumum tilvikum hvort hinir látnu voru óvopnaðir borgarar eða liðsmenn vopnaðra hópa. Írösk stofnun, sem nýtur stuðn- ings Sameinuðu þjóðanna, komst að þeirri niðurstöðu að um 151.000 Írakar hefðu beðið bana á tímabilinu frá mars 2003 til júní 2006. Læknaritið Lancet birti árið 2006 niðurstöður íraskra lækna og banda- rískra vísindamanna sem töldu að um 655.000 Írakar hefðu dáið af völdum stríðsins og átaka sjíta og súnníta. Vísindamennirnir báru saman tölfræðilegar upplýsingar um ástandið fyrir innrásina og fyrstu misserin eftir hana. Um 4.800 hermenn féllu Herir ríkjanna, sem tóku þátt í hernaðinum, hafa birt nákvæmar upplýsingar um mannfallið meðal er- lendu hermannanna og samkvæmt þeim féllu um 4.800 hermenn. Sam- kvæmt nýjustu gögnum frá banda- ríska varnarmálaráðuneytinu biðu 4.487 bandarískir hermenn bana í Írak. Breski herinn missti alls 179 hermenn. Gríðarlegur kostnaður Fjárhagslegi kostnaðurinn var einnig gríðarlegur. Áætlað er að heildarkostnaður Bandaríkjanna vegna hernaðarins í Írak nemi 802 milljörðum dollara, sem svarar 98.000 milljörðum króna, að sögn fréttavefjar breska ríkisútvarpsins. Kostnaður Bretlands nam 9,24 milljörðum punda, eða 1.700 millj- örðum króna. 0 500 1.000 1.500 2.000 2.500 3.000 3.500 4.000 0 30 60 90 120 150 ÁÆTLAÐ MANNFALL Í ÍRAK 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009 20112010 140 141 131 Basra 156 Babil 217 Diyala 266 Bagdad 1.421 Salahuddin 437 Kirkuk 103 Anbar 1.335 0-99 100-499 500+ 1. maí Bush lýsir yfir því að átökunum sé lokið 28. júní Bandaríkin færa völdin í hendur íraskri bráða- birgðastjórn 30. des. Saddam Hussein tekinn af lífi 10. jan. Bush tilkynnir að liðsauki verði sendur til Íraks 17. nóv. Samið um að bandaríska herliðið verði kallað heim fyrir lok þessa árs 15. des. Írakar kjósa nýtt þing og ríkis- stjórn mynduð 1. jan. Bandaríska herliðið fær formlegt umboð Íraka 31. ágúst Banda- rískum hermönnum fækkað úr 88.000 í 50.000 21. okt. Tilkynnt að banda- ríska herliðið fari frá Írak fyrir lok ársins EFTIR HÉRUÐUM 12.087 11.113 15.471 580 906 897 961 322 150 60 53872 24.950 9.357 4.704 4.045 3.57928.187 Óbreyttir borgarar Erlendir hermenn 3.977 3.160 2.165 1.540 20. mars Innrás undir forystu Bandaríkjahers 13. des. Saddam Hussein náðist 376 Heimildir: Iraq Body Count, icasualties Ítalía Búlgaría Úkraína EFTIR LÖNDUM 4.487 179 33 23 18 13 11 41 BANDARÍKIN Bretland Pólland Spánn Georgía 5 El Salvador 5 Lettland 3 Danmörk 7 Slóvakía 4 Rúmenía 3 Ástralía 2 Eistland 2 Taíland 2 Holland 2 Aserbaídsjan 1 Tékkland 1 Kasakstan 1 Ungverjaland 1 S-Kórea 1 Fídji- eyjar 1 Mannfallið meðal óbreyttra borgara: Tölurnar koma frá samtökunum Iraq Body Count sem safna upplýsingum um mannfallið. Mikil óvissa er þó um dánartölurnar. Nýjustu upplýsingarnar eru frá 19. nóvember sl. Mannfallið meðal erlendra hermanna: Frá byrjun stríðsins til 30. nóvember sl. Alls 4.805 113.493 BorgararHermenn MANNFALL MEÐAL ERLENDRA HERMANNA MANNFALL MEÐAL ÓBREYTTRA BORGARA Mikil óvissa um tölu fallinna í stríðinu  Tugir þúsunda Íraka og þúsundir hermanna biðu bana Reuters Kveðjuathöfn Hermenn taka bandaríska fánann niður við táknræna athöfn í herstöð nálægt Bagdad í gær þegar hernaði Bandaríkjanna lauk formlega.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.