Morgunblaðið - 16.12.2011, Blaðsíða 43
MENNING 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 2011
Jólatilboð fraktflugs Flugfélags Íslands gerir þér kleift
að senda jólapakka frá 1–10 kg. til allra áfangastaða,
fyrir aðeins 1.100 kr.
Tilboðið gildir frá 10. til 20. desember.
SENDU JÓLAPAKKANA
HRATT OG ÖRUGGLEGA
570 3400
Akureyri
Egilsstaðir
Grímsey
Ísafjörður
Reykjavík
Vopnafjörður
Þórshöfn
ÍS
LE
N
SK
A
SI
A
.IS
FL
U
56
67
4
10
/1
1
flugfelag.is
Fjallað er með jákvæðum hætti um
leiksýningu Royal Shakespeare
Company (RSC), The Heart of Rob-
in Hood sem Gísli Örn Garðarsson
leikstýrir, í leikhúsbloggi breska
dagblaðsins Guardian. Segir þar að
foreldum á þeirri sýningu sem
blaðamaður sótti hafi verið brugðið
yfir því hversu blóðug hún væri en
það hafi þó verið ljóst frá upphafi
að sýningin yrði ekkert barna-
leikrit, RSC hafi í allri umfjöllun
um uppsetninguna gefið það til
kynna.
Í bloggfærslunni segir að í verk-
inu sé m.a. munkur skotinn í augað
með ör, hermenn ógni börnum eftir
að hafa hengt föður þeirra, ein per-
sóna verði höfðinu léttari og tung-
an skorin úr annarri. Þá sé kóng-
urinn vondi með dónalega tilburði
sem vísi til munnmaka og það hafi
sett margt foreldrið út af laginu.
Börnin sem sóttu sýninguna hafi
hins vegar ekkert látið á sig fá, þau
hafi þvert á móti verið alsæl enda
sneiði verkið framhjá öllum Hróa
hattar-klisjum og komist að kjarna
sögunnar margtuggnu. Mörgum
foreldrum hafi þótt nóg um og
blaðamaður segist furða sig á því,
börn hafi nú einu sinni gaman af
smáillgirni og ofbeldi og bendir til
dæmis á Grimmsævintýrin.
Leikritið The Heart of Robin
Hood er bannað börnum undir sjö
ára aldri.
Ljósmynd/Eggert Jónsson
Kjarninn Gísli Örn Garðarsson er
sagður komast að kjarna Hróa hattar.
Blóðugur Hrói
og börnin alsæl
Próflokaball verður haldið á Gauki
á Stöng í kvöld og leikur þar fyrir
dansi hljómsveitin Land og synir.
Hljómsveitin hefur verið iðin í
gegnum tíðina við sveitaballaleik
og er nú komin aftur á stjá eftir að
hafa legið í dvala. Land og synir
ætlar að rifja upp gamla takta og
bjóða upp á sveitaball á mölinni,
eins og segir í tilkynningu, í tilefni
prófloka. Ballið byrjar kl. 23.30.
Morgunblaðið/Jim Smart
Sveitaballastuð Strákarnir í hljóm-
sveitinni Land og synir árið 1999.
Próflokaball með
Landi og sonum
að skrifa handritið sem væri komið
vel á veg, en Baltasar og framleið-
andinn, Agnes Johansen hjá Sögn,
munu nú leita meðframleiðenda.
Dagur segir myndina fjalla um
mann á fimmtugsaldri sem eigi erf-
itt með að segja skilið við bernsku
sína. „Þetta er fyrst og fremst kar-
akterstúdía á óvenjulegri mann-
eskju,“ segir hann og að hann hafi
skrifað handritið með ákveðinn
leikara í huga en vilji ekki nefna
hver það sé, að svo stöddu. Tökur á
Fleygi munu líklega hefjast á næsta
ári eða snemma árs 2013.
Af Baltasar segir á Screen Daily
Vefurinn Screen Daily birti í gær
grein með viðtölum við leikstjórana
Baltasar Kormák og Dag Kára Pét-
ursson, en Baltasar og fyrirtæki
hans, Sögn ehf., munu framleiða
næstu kvikmynd Dags. Í greininni
segir að næsta kvikmynd Dags,
nefnd á ensku Rocket Man, verði
hans fyrsta kvikmynd á íslensku,
þ.e. með íslenskum leikurum, frá
því hann gerði Nóa albinóa sem
frumsýnd var árið 2003. Dagur
Kári staðfesti þetta í samtali við
Morgunblaðið í gær og sagði að ís-
lenskt vinnuheiti myndarinnar væri
Fleygur. Hann væri þessa dagana
að hann muni leikstýra kvikmynd-
inni Everest fyrir fyrirtækið Work-
ing Title og að undirbúningur hefj-
ist brátt fyrir tökur á kvikmyndinni
2 Guns sem Mark Wahlberg mun
fara með aðalhlutverk í. Þá verður
kvikmyndin Djúpið frumsýnd
snemma á næsta ári sem og Contra-
band. Baltasar vinnur einnig að
kvikmyndahandriti upp úr skáld-
sögu Arnalds Indriðasonar, Graf-
arþögn, og enn er unnið að fyr-
irhugaðri víkingamynd hans,
Viking. Baltasar er vissulega með
mörg járn í eldinum.
helgisnaer@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Íslenska Dagur Kári ætlar að hafa næstu kvikmynd sína á íslensku en hann
hefur gert kvikmyndir á íslensku, dönsku og ensku.
Fleygur vinnuheiti næstu kvikmyndar
Dags Kára sem Baltasar framleiðir