Morgunblaðið - 16.12.2011, Síða 44

Morgunblaðið - 16.12.2011, Síða 44
FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 350. DAGUR ÁRSINS 2011 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550 1. Ólst upp með grímu 2. Demi Moore verður áfram … 3. Átti sér ekkert einkalíf í æsku 4. Jennifer Aniston besta vinkona … »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Kvikmyndaleikstjórinn Dagur Kári Pétursson vinnur nú að handriti næstu kvikmyndar sinnar, Fleygur, sem framleidd verður af starfsbróður hans, Baltasar Kormáki og fyrirtæki hans, Sögn ehf. »43 Morgunblaðið/Golli Fleygur næsta kvik- mynd Dags Kára  Fjórða upplagið af plötu Mugisons, Haglél, er á leiðinni til landsins, alls 6.000 stykki. Framleidd eintök eru því orðin 30.000 og eru 24.000 farin frá útgefanda til kaup- enda og í búðir. Um- slagið er handgert og því óhætt að segja að hér sé á ferðinni Íslandsmet í slíkum fræðum. Hreint ótrúleg- ur árangur. Mugison mokar plötunum út Á laugardag Fremur hæg vestlæg eða breytileg átt og stöku él víða um land, en léttskýjað A-til. Frost 2 til 12 stig. Á sunnudag Vaxandi sunnanátt með snjókomu eða slyddu V-til síðdegis, en hægara og úrkomulítið eystra. Talsvert frost í fyrstu. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðvestan 8-13 m/s og léttskýjað framan af degi sunnantil en áfram él norðantil. Vestlægari í kvöld með élj- um vestanlands. Frost 0 til 10 stig, kaldast inn til landsins. VEÐUR Rúnar Kristinsson, þjálfari Íslands- og bikarmeistara KR í knattspyrnu, vonast eftir því að fá Brynjar Björn Gunnarsson til liðs við fé- lagið næsta sumar. Rúnar fékk þriðja unga leikmann- inn til liðs við KR í gær en segir óvissu um leik- mannahópinn og menn eins og Guðjón Baldvinsson og Kjartan Henry Finnbogason geti horfið á braut til er- lendra liða. »2 Rúnar vonast til að fá Brynjar Kári Steinn Karls- son reiknar með að það kosti sig fjórar milljónir króna á einu ári að búa sig undir Ólymp- íuleikana í London næsta sumar. Hann fer fjórum sinnum í æfingabúðir er- lendis og fær launalaus leyfi til þess hjá vinnuveit- anda sínum en hann hefur verið í 75 prósenta starfi síðan í byrjun október. »4 Fjögurra milljóna und- irbúningur hjá Kára Framarar féllu niður í fjórða sætið í úrvalsdeild karla í handboltanum í gærkvöld, þrátt fyrir að þeir væru með undirtökin fyrstu 40 mín- úturnar. HK vann að lokum Safamýr- arliðið, 30:27, og komst í þriðja sætið í staðinn. FH lenti í basli með botnlið Gróttu en komst í annað sætið með sigri á Seltjarnarnesi og Haukar náðu þriggja stiga forskoti. »2-3 Framarar brotnuðu og töpuðu í Digranesi ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Athygli vakti að í haustútskrift To- ronto-háskóla í Kanada á dögunum útskrifaðist bresk kona, Sara Al- Bader, með doktorsgráðu tæplega ári eftir að hún lést ásamt eig- inmanni sínum í bílslysi, en Odd- fríður Halla Þorsteinsdóttir, dósent við skólann, hafði umsjón með því að lokið var við doktorsverkefnið. Oddfríður Halla er vísindafræð- ingur og hefur búið í Toronto síðan 1998, en kennt við læknaskóla To- ronto-háskóla síðan 2001. Hún hefur haft umsjón með námi sem tengist heilbrigðisástandi í þróunarlönd- unum en Sara Al-Bader vann að ný- sköpun á sviði heilbrigðisvísinda í þróunarlöndum. Ætluðu að flytja Hjónin Sara Al-Bader og Michael Smoughton voru á leið frá Toronto til Halifax þegar þau lentu í ísingu og létust í bílslysi skammt frá Mont- real í nóvember í fyrra. Þau voru í gömlum bíl sem eiginmaðurinn ætl- aði að flytja með sér til Bretlands þar sem hann hafði fengið vinnu sem skipulagsfræðingur í London. Hún ætlaði að taka lestina til baka frá Halifax og ljúka ritgerðinni en fara síðan á eftir honum til Eng- lands. Fór fyrir hópnum Ekki er algengt að fólk fái dokt- orsgráðu eftir að hafa fallið frá. Oddfríður Halla segir að samstúd- entar Söru hafi strax eftir slysið kannað hvort Sara, sem var 34 ára þegar hún lést, gæti ekki útskrifast með þeim. Þeir hafi komist að því að Háskólinn í Toronto fylgir ákveðinni stefnu um hvernig veita skuli þess konar gráður. Í kjöl- farið hafi hópurinn at- hugað hvaða skilyrði þyrfti að uppfylla til þess að draum- urinn yrði að veruleika. Nemarnir hafi komist að því að verkefninu þyrfti að mestu leyti að vera lokið og þar sem það hafi verið raunin hafi þeir ákveðið að ljúka því í samein- ingu. „Ég var í verkefnisnefnd hennar, hafði oft talað við hana um verkefnið og tók því að mér að leiða hópinn,“ segir Oddfríður Halla. Oddfríður Halla bætir við að fé- lagar Söru hafi verið önnum kafnir við eigin verkefni og fljótlega komist að því að það var ekki eins auðvelt og þeir héldu að setjast niður með texta annars nemanda og þurfa að laga og breyta. „Það er ekki auðvelt að fara inn á svæði annars manns og því tók ég að mér að vinna með text- ann,“ segir Oddfríður Halla. Doktor um ári eftir andlátið  Oddfríður Halla fylgdi verkefninu eftir í Toronto Útskrift Oddfríður Halla Þorsteinsdóttir, þriðja frá vinstri, með nýju doktorunum og foreldrum Söru Al-Bader. Fjórir nemendur komu að loka- verkefni Söru Al-Bader með Odd- fríði Höllu Þorsteinsdóttur og var hún leiðbeinandi þriggja þeirra í doktorsnáminu. Ritgerðin fjallar um nýsköpun heilbrigðisvísinda í Afríku. Rannsóknir Söru í Suður- Afríku og Gana voru hluti af dokt- orsverkefni hennar og bar hún þær saman við gögn frá Tan- saníu og Úganda. Oddfríður Halla segir að það hafi auð- veldað að fá samþykki fyrir út- skriftinni að Sara hafði birt tvær greinar úr rannsókn sinni í virtum tímaritum, m.a. í Nature Bio- technology. „Það er gaman að okk- ur tókst að ljúka þessu og Sara fékk doktorsgráðuna. Ritgerðin hennar er góð og við vildum að röddin hennar heyrðist,“ segir hún, en Oddfríður Halla kynnti rit- gerðina á ráðstefnu í Argentínu á dögunum. Kynnti ritgerðina í Argentínu NÝSKÖPUN HEILBRIGÐISVÍSINDA Í AFRÍKU Sara al-Bader  Hljómsveitin White Signal frá Reykjavík og Hafnarfirði sigraði í jólalagakeppni Rásar 2 með laginu Jólanótt. Lagið er eftir Guðrúnu Ólafsdóttur og textinn eftir hana og Katrínu Helgu Ólafsdóttur. Liðs- menn hljómsveit- arinnar eru allir á aldrinum 14 – 16 ára. Þetta er 9. árið sem keppnin er haldin. White Signal á jólalag ársins á Rás 2

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.