Morgunblaðið - 22.12.2011, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 22.12.2011, Qupperneq 2
Leikskólagjöld » Grunngjald fyrir eitt barn í 8 klukkustunda dvöl á leikskóla með fullu fæði er 24.500 kr á mánuði í Reykjavík. » Í Mosfellsbæ er sama grunn- gjald, fyrir 8 klukkustundir og fullt fæði 31.642 kr á mánuði. » Í Garðabæ er gjaldið 33.390 krónur og í Hafnarfirði er það 33.730 krónur á mánuði, en 26.815 kr. í Kópavogi. FRÉTTASKÝRING Una Sighvatsdóttir una@mbl.is „Við höfum áhyggjur af því að þetta geti komið sér illa fyrir margar efna- minni fjölskyldur,“ segir Rósa Stein- grímsdóttir, formaður stjórnar Barnanna okkar, samtaka foreldra- félaga leikskóla, en leikskólagjöld og skólamáltíðir hækka í öllum sveitar- félögum á höfuðborgarsvæðinu um áramótin og víða á landsbyggðinni. Sveitarfélögin vísa flest í almennar verðlagshækkanir sem ástæðu gjaldskrárhækkana. Á síðustu 12 mánuðum hækkaði verðlag um 6% en leikskólagjöld hækka víða meira. Hlutfallslega er hækkun einna mest hjá Reykjavíkurborg og á Akureyri, eða um 12-13%. Í fjárhagsáætlun Mosfellsbæjar er gert ráð fyrir 11- 12% hækkun á gjaldskrám leikskóla. Hækkunum varpað á foreldra Í Kópavogi hækka leikskólagjöld um 6,9% um áramót og í Hafnarfirði hækkaði gjaldskráin um 10% í októ- ber síðastliðnum. Leikskólagjöld hækka einnig í Fjarðabyggð, í Reykjanesbæ, Fjallabyggð og víðar. Þrátt fyrir hækkunina verða leik- skólagjöld í Reykjavík áfram þau lægstu á landinu, að því er segir í til- kynningu frá borgarstjórn. Rósa Steingrímsdóttir segist fagna því að ekki sé gerð krafa um frekari nið- urskurð í leikskólum í krónum talið, en harmar engu að síður að kostnaði vegna verðlagshækkana sé að hluta til varpað á foreldra með hækkun gjalda. „Leikskólum er skorinn mjög þröngur stakkur eftir niðurskurð síðustu ára og ég hefði viljað sjá meiri leiðréttingu og aukin framlög til leikskóla. Sérstaklega í ljósi þess að búið var að lofa að fjármunir sem áttu að sparast með hagræðingu vegna sameiningar leikskóla ættu að renna beint í leikskólana aftur.“ Þrengt að fjárhag foreldra  Gjöld fyrir vist og mat á leikskólum hækka víða  Áfram lægst gjöld í Reykja- vík þótt hækkunin sé mest þar  Sveitarfélög vísa í verðlagsþróun sem skýringu 2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 2011 Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@simnet.is 17 ára Loftdæla 12V 30L kr. 8.995 Hjólkoppar 12/13/14/15/16” frá kr. 795 Topplyklasett Ofurtilboð kr.13.995 Mössunarvél, hraðastýrð kr.14.995 Öryggisbox digital kr.6.995 Airbrush loftdæla með þrýstijafnara kr.19.999 Opið 22. des. kl. 9-22, 23. des. kl. 9-23 og 24. des. 10-13 Verkfæralagerinn Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Marta María Jónasdóttir fréttastjóri dægurmála martamaria@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Skúli Hansen skulih@mbl.is Kostnaður við hvert greiðsluaðlögun- armál hjá umboðsmanni skuldara er 320-350 þúsund krónur. Pétur H. Blöndal alþingismaður gerði kostnað við málasýslu embættis- ins að umtalsefni í liðinni viku. „Þetta eru um fjögur þúsund mál hjá þeim og það er búið að setja í þetta tvö þúsund milljónir með þessu framlagi 2012 og því er þetta um hálf milljón á mál,“ sagði Pétur. Mál hjá umboðsmanni skuldara væru almennt mjög dýr í rekstri. Að sögn Péturs væri hægt að spara peninga með því að einfalda um- sóknarferlið og gera það stafrænt, þannig að fólk gæfi einungis upp kennitöluna sína í stað þess að hlaupa út um allan bæ að ná í öll nauðsynleg gögn sem eru til í kerfinu. „Á að gera ráð fyrir því að við gerum ekki neitt annað en vinna með greiðslu- aðlögun og að það hafi ekki verið neinn stofnkostnaður við að koma embættinu á fót?“ segir Svanborg Sigmarsdóttir, upplýsingafulltrúi Umboðsmanns skuldara. Að sögn Svanborgar kostar hvert greiðsluaðlögunarmál að meðal- tali um 320-350 þúsund krónur, en þar af fara um 200 þúsund krónur í lög- fræðikostnað og afgangurinn í beinan launakostnað innan embættisins. „Fyrir utan þessa 3.800 aðila sem hafa sótt um greiðsluaðlögun eru um 7.000 manns, a.m.k., sem hafa komið í ráð- gjafarþjónustuna, margir af þeim fara í greiðsluaðlögun en það þýðir þó að við þurfum að manna ráðgjafarþjónustuna til þess að taka við 7.000 manns,“ segir Svanborg. Hvert mál kostar að meðal- tali 320-350 þúsund krónur  Mikill lögfræðikostnaður hjá umboðsmanni skuldara Pétur Blöndal Svanborg Sigmarsdóttir Jólasmálán geta orðið 80 þúsund Fyrirtækið Hrað- peningar ætlar að bjóða fámennum hópi viðskipta- vina sinna upp á 80 þúsund króna lán í desember, samkvæmt upp- lýsingum frá fyr- irtækinu. Ekkert hefur verið auglýst um þessa hækk- un og engar upplýsingar er að finna um þessi sérstöku kjör á heimasíðu fyrirtækisins. Kostnaður við lántökuna verður sambærilegur því að taka tvö 40 þús- und króna lán en það er hið venju- bundna hámarkslán frá fyrirtækinu. Lántökugjald af 40 þúsund króna láni er 9.250 krónur sem greiddar eru þegar lánið er borgað upp. Því má áætla að lántakan hjá þeim sem nýta sér 80 þúsund króna lánin verði 18.500 krónur. Þetta er nærri því að vera 25 prósent af heildarvirði láns- ins. Eitt annað fyrirtæki býður upp á sambærileg skammtímalán en það er Kredia en ekki hafa fengist upp- lýsingar um það hvort það muni bjóða sínum viðskiptavinum upp á hærri lán yfir jólahátíðina. Lántöku- kostnaður Kredia er sá sami og hjá Hraðpeningum. vilhjalmur@mbl.is  Lántökugjaldið nemur 18.500 kr. „Við erum afskaplega þakklát þeim á Fáskrúðs- firði því við vitum að allir sem eru komnir yfir miðjan aldur kunna afskaplega vel að meta mar- íneraða síld,“ segir Ásgerður Jóna Flosadóttir, formaður Fjölskylduhjálpar Íslands, sem fékk í gær sendar hátt í 400 fötur af síld frá Loðnu- vinnslunni á Fáskrúðsfirði. Síðasta jólaúthlutun Fjölskylduhjálparinnar fer fram í dag og gerir Ásgerður Jóna ráð fyrir því að að henni lokinni hafi á bilinu 2.300-2.400 manns fengið mat- arúthlutun frá samtökunum þessi jólin. Um 60 sjálfboðaliðar leggja Fjölskylduhjálp lið um jólin en til viðbótar fengu samtökin nú liðsstyrk 10 erlendra krakka frá sjálfboðaliða- samtökunum SEEDS. Þá hafa margar góðar gjafir borist á aðventunni, bæði frá fyrirtækjum og einstaklingum sem koma með mat og jóla- gjafir handa þeim sem standa höllum fæti. „Við erum ógurlega þakklátar enda er það fólkið í þjóðfélaginu sem gerir okkur kleift að hjálpa þessum stóra hópi og þjóðin á þakkir skildar.“ Morgunblaðið/Sigurgeir S. Á þriðja þúsund fengu jólaúthlutun Fjölskylduhjálp Íslands barst maríneruð síld frá Fáskrúðsfirði Miklir um- hleypingar urðu í veðrinu í gær og í kjöl- farið varð mjög hált á vegum um stærstan hluta landsins. Nokkrir bílar enduðu utan vega á Suðvesturlandi en ekki er vitað til þess að fólk hafi orðið fyrir alvarlegum meiðslum. Síð- degis gerði hláku og var slökkvi- liðið á höfuðborgarsvæðinu kallað nokkrum sinnum út vegna vatns- leka, þar sem stífluð niðurföll urðu til þess að vatn tók að leka inn í íbúðir. Stormur gekk yfir Suður- og Vesturland þegar líða tók á gær- kvöldið og var víða slæm færð. Veðurstofan spáði því að storm- inn lægði með morgninum og víð- ast hvar frysti að nýju í dag. Umferðaróhöpp og vatnsleki í hláku

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.