Morgunblaðið - 22.12.2011, Side 6

Morgunblaðið - 22.12.2011, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 2011 Meira í leiðinniWWW.N1.IS JÓLAGJÖF VEIÐIMANNSINS Veiðikortið fæst á N1 Sigrún Rósa Björnsdóttir sigrunrosa@mbl.is Bjarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, hafnar því að leynd hafi hvílt yfir söluferli Perlunnar og að hafa gengið framhjá stjórn með gerð viljayfirlýsingar við hæstbjóðendur. Honum hafi verið falið að vinna áfram að málinu á stjórnarfundi 21. október sl., þegar búið var að kynna helstu niðurstöður í tilboðunum. „Og ég hef verið að gera það eftir bestu vitund.“ Hluti af því sé að fylgja þeirri venju að ræða við hæstbjóðendur og um- rædd viljayfirlýsing sé innan þess sem ramma sem hann starfi eftir. Viljayfirlýsingin, sem sé engan veginn skuldbindandi fyrir OR, snúist um að bjóðendum sé veittur ákveðinn frestur til að kanna hvort hægt sé að fella niður fyrirvarana og kaupa á uppgefnu verði í lok frestsins 31. mars nk. en ekki sé rætt við aðra á meðan. „Í henni leggjum einnig áherslu á að Perlan verið áfram opin almenningi endurgjaldslaust.“ Aðspurður hafnar Bjarni því jafn- framt að með því að skoða tilboð sem feli í sér jafnmiklar breytingar á lóð- inni sé salan gerð á breyttum forsend- um. „Við bjóðum Perluna til sölu og henni fylgir lóð og það eru ákveðin not heimil af henni skv. gildandi skipulagi. Öllum var frjálst að bjóða í eignina eftir sínu höfði.“ Allir vilja víðtækari not lóðar Fimm önnur tilboð bárust og segir Bjarni að þeir bjóðendur hafi einnig sett ýmsa fyrirvara, um þá hluti sem þurfi að ganga eftir svo þeir geti stað- ið við tilboðið. „Það er ljóst að flestir, ef ekki allir bjóðendur hugsa sér ein- hver víðtækari not af Perlunni heldur en eru í dag, enda stendur reksturinn ekki undir sér, með einungis leigu- tekjum af veitingahúsi sem rekið er á einni hæð.“ Í takt við stefnu Reykjavíkur Fjárfestarnir sem standa að 1,7 milljarða kauptilboði í Perluna eru ásamt Garðari K. Vilhjálmssyni lög- manni, Guðmundur Ingi Jónsson, Þorlákur Traustason og Þorvaldur Gissurarson. Tilboð þeirra felur í sér umfangs- miklar breytingar sem kalla á að Reykjavíkurborg endurskoði skipulag í Öskjuhlíðinni. Garðar segir að þar sem söluferlið var opið hafi þeim verið frjálst að setja fram hugmyndir um víðtækari not lóðarinnar, meðal ann- ars með hótelbyggingu. Það sé svo þeirra að eiga við skipulagsyfirvöld. „Hugmyndir okkar eru hins vegar í takt við þá ferðamálastefnu sem Reykjavíkurborg hefur gefið út og við kynntum okkur hana vel við undirbún- ing tilboðsins. Síðan er að sjá hve þeim er mikil alvara með þessa stefnu.“ Þemað „endurnýjanleg orka“ Fyrirhuguð uppbygging þýðir breytta ásýnd Perlunnar en Garðar segir að vegna þess hve stutt verk- efnið sé komið hafi ekki þótt tímabært að tala við Ingimund Sveinsson arki- tekt hennar. Að sjálfsögðu verði haft fullt samráð við hann ef verkefnið gangi eftir. Í tilboði Garðars og félaga er gert ráð fyrir að byggt verði hótel með þemað „endurnýjanleg orka“. Það yrði byggt upp í þremur áföngum og í þeim fyrsta yrðu ríflega 200 herbergi. Einnig yrði byggð upp 500 manna baðaðstaða í kringum Perluna og seg- ir Garðar að lögð verði áhersla á að samþætta veitingastaðinn, hótelið og baðstaðinn. Aðspurður segir hann að ef allt gangi eftir taki fyrsti áfanginn 2-3 ár en þarna skapist um 100-150 störf. Áætluð fjárfesting nemur um 7-10 milljörðum. – Hvað um fjármögnun og arðsemi verkefnisins? „Gróft áætlað gerum við ráð fyrir að starfsemin fari að skila viðunandi arðsemi eftir 3-4 ár, segir Garðar. „Við höfum rætt við aðila um fjármögnun og það eru næg tækifæri þar.“ Segir söluferlið eðlilegt  Forstjóri OR hafnar að hafa farið framhjá stjórn með undirritun viljayfirlýs- ingar  Hæstbjóðendur segja tilboð í samræmi við ferðamálastefnu Reykjavíkur Perlan – söluferli » Perlan á Öskjuhlíð er eitt þekktasta kennileiti í Reykjavík » Samkvæmt upplýsingum frá OR sækja árlega um 600.000 gestir hana heim, margir þeirra erlendir ferðamenn. » Stjórn OR samþykkti í jan- úar að selja Perluna. Borgarráð Reykjavíkur samþykkti í júní fyrirhugaða sölu. » Perlan var sett í almenna sölu og höfðu sex tilboð borist er tilboðsfrestur rann út 17. október. » Hæsta tilboð var 1.688,8 milljarðar. Perlan Í hæsta tilboði er gert ráð fyrir samþættingu veitingahúss, baðstaðar og hótels. Gert er ráð fyrir um 200 herbergja hóteli í fyrsta áfanga. Kjartan Magn- ússon, borgar- fulltrúi Sjálf- stæðisflokks, lagði fram tvær tillögur á stjórn- arfundi OR í gærkvöld. Hann vildi að upplýst yrði opinberlega hverjir hefðu gert tilboð í Perluna, og fjárhæðirnar. Einnig vildi að upplýst yrði nán- ar um fyrirvara í tilboðunum. Til- lögunni var frestað til næsta fund- ar. Kjartan lagði auk þess til að forstjóri OR fengi ráðgjöf hjá borgarlögmanni, skipulags- og byggingasviði og fleiri aðilum áð- ur en frekari ákvarðanir yrðu teknar um söluna. Tillagan var felld. Kjartan segir óraunhæft að ætla að skipulagsyfirvöld muni á svo skömmum tíma, fram í lok mars, ná að afgreiða málið. „Það er í rauninni verið að teyma mennina á asnaeyrunum,“ segir hann. Auk þess muni aðrir áhugasamir aðilar varla sætta sig við málsmeðferð- ina. kjon@mbl.is Kjartan Magnússon Aflétti leynd og afli frekari ráðgjafar Gylfi Magnússon er einn fulltrúa meirihlutans í stjórn OR og hann segist ekki skilja það sem hann kallar ástæðulaust „upphlaup“ vegna málsins. Ekki sé búið að taka neina ákvörðun um sölu. Eðlilegt sé að rætt sé við þann aðila sem hafi átt hæsta tilboðið. Hann segir skipulagsmál alls ekki vera neitt á borði Orkuveit- unnar og því ástæðulaust að hafa áhyggjur af þeim, skipulags- yfirvöld muni ræða við tilboðs- gjafann um þau. En er ekki óraunhæft að þeim muni takast að afgreiða málið á svo skömm- um tíma? „Ég hef enga skoðun á því, það er alfarið mál tilboðsgjafans,“ sagði Gylfi. „Hann valdi þessa dagsetningu [31.mars]. Þetta snýst bara um það hvort hann falli frá fyrirvörum, hann hefur frest til þess fram að þeim tíma.“ kjon@mbl.is Engin ákvörð- un verið tekin Gylfi Magnússon Skúli Hansen skulih@mbl.is „Jú, það er komin sátt í málið, hann hringdi í mig hann Trausti Bjarna- son og kannaðist ekkert við að hafa heyrt þetta lag, þannig að ég gat minnt hann á að hann var að vinna fyrir mig í jarðvegsframkvæmdum í Skerjafirði einu sinni og hann spilaði stundum á píanóið okkar og ég gaf honum disk og þar var þetta lag, þar hefur hann heyrt lagið,“ segir Gísli Helgason blokkflautuskáld. „Við sættumst á það að höfundarrétt- urinn er alfarið minn og hann við- urkennir mistök sín og hann mun sjá til þess að lagið verði endurskráð hjá STEFi.“ Morgunblaðið sagði frá því í gær að Gísli hefði kært lagið „Bráð- um koma jólin“ til STEF sökum lík- inda þess við lag hans „Ástarljóð á sumri“. „Trausti mað- ur að meiri“ Að sögn Gísla hefur málið vald- ið honum miklu erfiði og hugarangri. „En mér finnst Trausti maður að meiri að við- urkenna þessi mistök,“ segir Gísli. Afsökunarbeiðni Trausta Í tilkynningu frá Trausta Bjarna- syni segir eftirfarandi: „Eftir að hafa heyrt lagið hans, er alveg á hreinu að versið í laginu mínu er í öllum megindráttum ná- kvæmlega eins og lagið hans Gísla. Þetta þykir mér náttúrlega mjög leitt, og vil taka það fram að ekki hafði ég minnsta grun fram að þessu að þetta lag líktist öðru lagi á neinn hátt. Þarna hefur það gerst sem ég geri ráð fyrir að flestir höfundar ótt- ast, að melódía sem maður er að vinna með og maður telur sig vera að vinna upp frá grunni, hefur verið samin áður. Ég bið Gísla Helgason hér op- inberlega afsökunar á þessu, og af- sala mér öllum höfundarrétti á lag- inu, og hef tilkynnt STEFi það. Ég hef nú talað við Gísla og við vorum sammála um að skráningu lagsins yrði breytt, þannig að hann einn sé skráður höfundur lagsins.“ Sátt um höfundarrétt  Trausti Bjarnason biðst opinberlega afsökunar  Skráningu lagsins hjá STEFi verður breytt Gísli Helgason

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.